Tímarit Máls og menningar - 01.05.1942, Blaðsíða 68
62
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
sagði, að það væri menningarlegt hlutverk nazismans
að steypa bolsjevismanum af stóli. Hitler lét Göbbels
sinn lesa heiminum þann boðskap, að þýzki lierinn væri
nú lagður í mestu herför veraldarsögunnar — til þess
að bjarga siðmenningunni og kristindóminum úr liáska.
Utanríkispólitískir spámenn á íslandi sögðu daga Rauða
liersins talda. Stalín væri dauðhræddur við Hitler og
allar frásagnir um útbúnað Rauða hersins væru skrum-
sögur, er kommúnistar Vesturlanda befðu borið út fyr-
ir rússneskt gull.
Josepb E. Davies skrifar formálann að bók sinni 1.
október 1941 og segir svo: „Rússland á nú i orustu mik-
illi. Það er komið undir úrslitum þessarar orustu, hvort
samfélag þjóðanna á jörðunni muni verða skipulegt
og friðsælt heimsþjóðfélag, eða bvort því rnuni verða
stjórnað af bullum og stigamönnum, er eyði öllum verð-
mætum lífsins.“ Það skal tekið fram, að höfundurinn
er ekki kommúnisti. Honum þykir heiður að því að
vera kallaður kapítalisti, eða öllu beldur „indívídúal-
isti“ og telur auðvaldsskipulagið fullkomnasta þjóð-
félagsskipulag sögunnar. Hann endurtekur þetta víða í
bók sinni — eins og til þess að eyða öllum grun um,
að liann hafi „litazt“ í samlífinu við bina rauðu stjórn-
arberra.
Þegar Davies eru borin tíðindin um innrás Þjóðverja
í Rússland, er bann staddur í Washington. Fréttaritari
United Press spjT um álit hans á þessum tíðindum.
Davies svarar, að heimurinn muni furða sig mjög á
vörn Rauða hersins, og þótt Hitler legði undir sig mik-
inn hluta Ukraínu, þá mundi það verða upphaf vand-
ræða hans. „Blöðin gerðu allmikið úr þessum ummæl-
um, því að þau voru gagnstæð skoðunum allra binna
beztu liernaðarsérfræðinga að lieita má,“ segir Davies
stoltur. —
Joseph E. Davies kennir til Moskvu 19. janúar 1987.
Hann furðar sig á liinu mikla starfslífi borgarinnar.