Tímarit Máls og menningar - 01.05.1942, Qupperneq 69
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
63
hinum nýju byggingum og „þægilegum klæðnaði fólks-
ins, sem virðist vera mjög almennur“.
Davies kynntist brátt fremstu stjórnmálamönnum
Rússlands. Mannlýsingar hans eru skemmtilegar og
stinga allmjög í stúf við þær fordæðumyndir, sem blaða-
menn nútímans hafa gert af þessum mönnum. Hon-
um lízt sérstaklega vel á Kalínin, forseta Ráðstjórnar-
lýðveldanna. Hann telur Kalínin hinn hezta mann, mjög
duglegan og látlausan. Litvinov álítur hann fremsla
utanríkismálaráðherra í heimi. Eins og vænta mátti,
átti Davies ekki mikil skipti við Stalín. Hann talaði
aðeins einu sinni við hann, nokkru áður en hann fór
frá Moskvu alfarinn. Davies lýsir þessu svo i bréfi til
dóttur sinnar: „Hann heilsaði mér alúðlega, brosandi
og látlaus, en var samt liinn virðulegasli. Mér virtist
liann vera sterkur maður, rólegur og vitur. Hin brúnu
augu lians eru ákaflega góðleg og mild. Rörn mundu
vilja sitja á kné hans og hundar mundu hænast að hon-
um. Það er erfitt að bendlá persónu hans, gæði hans og
hógvært látleysi við þá viðburði, sem hér hafa orðið
í sambandi við aftökur herforingja Rauða hersins, og
annað því líkt. Yinir hans segja, og Trojanovskí sendi-
herra fullvissar mig um það, að það liafi verið gert i
varnarskyni gegn Þýzkalandi — og að sá dagur muni
renna upp, er heimurinn muni kynnast „þeirra mál-
stað“.“
Davies segir, að Stalin hafi milda kýmnigáfu til að
bera, hugsun hans sé skörp, en mest finnst honum koma
til um vit hans. „Ef þú getur hugsað þér mann, sem
er gjörsamlega gagnstæður því, er liinn óðasti and-Stal-
ínisti gerir sér í hugarlund, þá gætir þú hugsað þér
þennan mann,“ segir Davies í bréfinu til dóttur sinnar.
Nokkrum dögum eftir að Davies tók við sendiherra-
embætti sínu í Moskvu hófust málaferlin gegn Radek
og öðruni stjórnmálaleiðtogum bolsjevíkaflokksins.
Davies sendir stjórn sinni mjög ítarlega skýrslu um