Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 91
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 273 steininn, — eða hitt sótti að og dró úr honum, að allt væri hégómi og eftirsókn eftir vindi, jafnvel listin. En hann var snillingur, þjóðhagi. Sum kvæði lians munu verða sígild. Mörg önnur eru dvergasmið, þótt efnið sé smávægilegt. Því mun þjóð- in hverfa að Illgresi hans aftur og aftur, eigi síður en kvæð- um höfuðskáldanna. Magnús hefur stundum dreymt um meiri afrek, þess á milli fundizt allt hafa farið í mola og uppskeran lítils virði. En hann var svo glöggskyggn á sjálfan sig, eins og flest annað, sem hann hugsaði um, að hann mun vel hafa séð á siðari árum, hvert hlutskipti hans var orðið, — og unað þvi vel. S. N. Steinn Steinarr: Ferð án fyrirheits. Útgef. Heims- kringla. Rvík 1942. Steinn Steinarr er hugrakkur og nýr. Hann hefur einskis skálds fordæmi látið verða sér hlekk um fót og engar venjur forms né rímþrælkunar murka lífið úr kvæðum sinum. Honum liefur snemma orðið ljóst, að liann varð að berjast einn til þeirra landa, er hann vildi vinna, og sjálfur að smíða sér vopn- in til að sigra með. Og hvort sem hann hefur lesið sögu hern- aðarlistarinnar eða ekki, hefur hann komizt að þeim leyndar- dómi hennar, að sigurvegari verður sá einn i stríði, sem beitir nýrri gerð vopna og nýrri tækni og á þá dirfsku til að bera, að hirða aldrei hversu fer um lif sitt. Steinn hefur jafnan fundið sér viðfangsefni, sem eru frumleg, og velt þeim fyrir sér, þar til hann gat sett þau fram á nýstárlegan og skarpan hátt. Oft glímir hann við heimspekileg efni, en þó aldrei önnur en þau, sem varða uppruna og tilgang hans sjálfs, og kemst þá vitanlega fyrr en varir i rökþrot. Gaman er að veita athygli, hvernig vald lians á þessum yrkisefnum vex og hvernig per- sónuleiki hans rís samhliða til aukins sjálfstrausts með hverj- um sigri yfir viðfangsefnunum. Mér virðast ýmsir skilja Ijóð Sleins svo, að þau hafi einungis eitt að flytja: boðskap um það, að allt né fánýtt, jafnvel blekking ein, enginn hlutur sé til, og mætti þá draga af því þá rökréttu ályktun, að ljóð Steins séu ekki heldur til og fásinna að vera að skrifa um þau ritdóm. Ég hef aldrei ætlað þennan bölsýnistón Steins eða lifsafneitun- ar neinn boðskap, er hann væri að flytja, aldrei annað en leit lians að ráðningu á sjálfum sér og tilveru sinni á þessari hjá- kátlegu jörð. Ég hef aldrei getað orðið uppnæmur af hinu nei- kvæða í ljóðum Steins, með hvað skýrum stöfum sem það hefur staðið þar letrað, því að baki orðanna finn ég alltaf slá jákvæð- an vilja, skapandi hug og heitt skap — og trú á lifið og lifs-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.