Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 126
236 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Ég tel, að hugmynd bókarinnar sé þegar allljós: Klukkan á Þingvöllum er tákn þess helgasta, sem Island á. Rán hennar er sterkasta tákn þess, hve hart er að íslenzku þjóðinni gengið af konungsvaldinu danska. Megininntak bökarinnar er annars vegar að sýna kúgun og arðrán danska valdsins, hins vegar niðurlægingu íslenzku þjóðarinnar, „þjóðar í lífsháska", þegar svartast liorfði í sögu hennar, en jafnframt rökföstum mótmæium hennar gegn ágengn- inni (öldungurinn ofan úr Bláskógaheiðinni) og óbugandi, harðneskjufullri réttlætiskennd hennar (Jón Hreggviðsson fyrst og fremst) og óslökkvandi, fórn- fúsri menningarþrá að einum þræði (Arnas Arnæus). Um þetta efni er hægt að rita endalausar bækur á óendanlega margan hátt. Sagnfræðingurinn þræðir „staðreyndir". Skáldið velur tákn, symból, finnur sér ákveðna atburði og persónur, leitar að stíl, er svarar til yrkisefnisins, eins og hann er frekast fær um að skynja áhrif þess. Segjum upphafið sé þetta: höfundurinn hefur einhvern tíma orðið svo djúpt gripinn af meðferð hins erlenda kúgunarvalds á íslenzku þjóðinni, að ekkert af því, sem hann hefur um þetta lesið eða heyrt flutt, svarar til þeirra áhrifa, er hann sjálfur hefur orðið fyrir. Hann hefur einhvern tíma sviðið undan þessari meðferð eins og bernnimarki smánarinnar, og honum aldrei fundizt hún nægilega sterkt túlkuð, fundizt hennar óhefnt. Efnið stríðir á hug hans, ef til vill árum saman. Ilann leitar að nógu sterku atriði, er geti túlkað þessa niðurlægingu í líkingu. íslenzka þjóðin hefur verið rænd og smánuð meira en nokkur orð eða sagnfræði fær lýst. Þar kemur, að skáldið finnur þetta tákn. Helgasti staður íslands eru Þingve’.Iir. Klukkan þar er tvöfalt tákn helgi þjóðarinnar. „Henni var hríngt til dórna og á undan aftökum. Svo var klukk- an forn að einginn vissi leingur aldur hennar með sannindum. En um það er sagan hefst var laungu kominn brestur í þessa klukku og elztu menn þótt- ust muna hljóm hennar skærari. Samt undu garnlir menn enn þessari klukku.“ Þegar harðast er gengið að í styrjöldum, eru klukkur brotnar niður. Nær varð ekki gengið íslenzku þjóðinni en brjóta niður og flytja til útlanda „klukku landsins" á helgasta stað þjóðarinnar. Sterkara tákn kúgunar hennar varð ekki fundið. Þá er annað atriði, stórvægilegast alls: hvernig lifði þjóðin af niðurlæg- ingartíma sína, hvað bjargaði henni úr lífsháska ]ieim, sem hún var komin í á verstu undirokunar- og einangrunartímunum? Skáldinu er ekki sízt í mun að finna tákn þeirra lífsafla með þjóðinni, sem burgu henni út úr allri nauð og jafnvel nafni henr.ar með heiðri fram í dögun nýrrar sögu. Hann finnur einkum tvenns konar tákn: ódrepandi réttlætistilfinningu almennings, er gerir óaflátanlega uppreisn gegn kúgun og rangsleitni af blindum hetjuskap, og leiftrandi arfsögulega menningarþrá einstaklinga, sem fórna öllu fyrir ljós hennar. íslenzka þjóðin er varnarlaus beitt órétti. Órétturinn kemur fram við þjóð- ina alla, öld fram af öld. Það er í engri sögu, engu skáldverki, unnt að færa frarn öll dæmi slíks, þau eru óendanleg. Ráðið er að velja ákveðnar persónur,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.