Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Síða 29

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Síða 29
SAMSKIFTI VIÐ KÍNVERJA saga til næsta bæjar. Einhverntíma hefði það líka þótt í frásögur færandi að drepsóttir hafa verið kveðnar nið- ur þar eystra og heilbrigðismálum kippt í viðunandi horf á örfáum ár- um, að tekizt hefur að beizla að veru- legu leyti stærstu og háskalegustu fljótin, afstýra mestu hörmungunum af völdum flóða og þurrka með risa- vöxnu mannvirkjakerfi, vatnsmiðlun, varnargörðum og áveitum. Ef menn hafa ekki orðið fyrir því óláni að láta áróðursmeistara slá augu sín kalda- stríðsblindu, þá er raunar sama hvert litið er í kinverska alþýðulýðveldinu, hvarvetna birtast einhverjar framfar- ir og umbætur, margar þeirra smá- vægilegar að vísu og aðeins til bráða- birgða, aðrar með miklum myndar- brag, svo sem vænta mátti af stórþjóð, en sumar æfintýri líkastar, jafnvel þótt miðað sé við fólksfjölda. Til dæmis er það undravert hversu hratt kínverjar iðnvæðast, hversu vel þeim hefur heppnazt að endurbæta og ger- nýta gamlan vélakost og hvílíkan sæg nýrra verksmiðja þeir hafa reist á ell- efu árum, meðal annars fjölmörg tröllaukin iðjuver, þar sem beitt er fullkomnustu tækni. Vissulega hafa þeir notið stuðnings annarra sósí- alskra ríkja, einkum og sér í Iagi Sovétríkjanna, sem munu hafa revnzt þeim harla örlát, hvorki skorið við nögl gjafir, lánsfé né aðra aðstoð (og ætla ýmsir að slík breytni sé drottni allsherjar fullt eins geðfelld og útbýt- ing kristilegra smárita). En stuðning- ur nokkurra vinveittra rikja mundi þó hafa hrokkið skammt til að lyfta þess- um grettistökum, ef kínverja hefði skort dugandi forystulið, eindrægni, hagsýni, vilja og metnað til að komast skjótt og rösklega úr kútnum. Iðn- væðing þeirra væri að sjálfsögðu mesta glapræði, ef ekki hefði verið unnið jafnframt henni að endurreisn og umbótum á flestum öðrum sviðum þjóðlífsins, eins og drepið var á hér að framan. Því má bæta við að stökk- þróun sú sem orðið hefur í fræðslu- og menningarmálum kínverja síðan alþýðulýðveldið var stofnað, er ekki aðeins vitnisburður um atorku þeirra, framtakssemi og menntaþrá, heldur blátt áfram einsdæmi. Fyrir rúmum áratug kunni lítið brot kínversku þjóðarinnar að lesa og skrifa, en nú hefur þessu hlutfalli verið snúið við. Tugir miljóna fullvaxta fólks í Kína hafa á ári hverju lært lestur og skrift, þrátt fyrir þá margslungnu örðug- leika, sem fylgja notkun hins forna táknleturs. í öllum landshlutum er verið að hrinda í framkvæmd stig af stigi mjög fullkominni fræðslulög- gjöf, nýir skólar bætast við í sífellu og þá ekki síður aðrar menningarstöðv- ar, svo sem óperuhallir og leikhús, fé- lagsheimili, hvíldarheimili, bygging- ar yfir söfn af ýmsu tagi o. s. frv. Láta mun nærri að nú njóti kennslu tíu sinnum fleiri kínversk börn en 1949 og nemendum í miðskólum og æðri 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.