Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 37

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 37
ÆSKUSTÖÐVARNAR KVADDAR „Bítur hann ekki menn ? “ spurði ég. „Oho, þú hefur stinginn, gengur á hljóðið, kemur auga á zha og þá heggur þú til hans. Þetta dýr er mjög liðugt og slóttugt, hleypur beint í áttina til þín og skýtur sér milli fóta þinna. Feldur þess er sleipur eins og áll.“ Aður hafði ég enga hugmynd um að til væru svona margir nýstárlegir hlutir á jarðríki. Marglitar skeljar í fjörunni, eða hið áhættusama líf melónunnar. Ég vissi bara að hægt var að kaupa hana í búðinni. „Við stöndum á sandbreiðunni, flæðið er í þann mund að koma. Fjölmargir stökkfiskar hoppa án afláts í vatnsskorpunni, þeir hafa tvo fætur líkt og frosk- ur.“ Hugur hans rúmaði svo marga furðulega og skemmtilega hluti, sem aðrir kunningjar mínir höfðu ekki hugmynd um. Þeir höfðu aðeins, rétt eins og ég sjálfur, glápt upp í heiðan himininn takmarkaðan af fjórum veggjum húsa- garðsins. Til allrar óhamingju leið vormánuðurinn fyrr en varði, Run Tu varð að halda heim. Ég grenjaði eins og ég gat, sjálfur faldi hann sig í eldhúsinu, grét og vildi ekki koma út; að síðustu bar faðir hans hann út í fanginu. Seinna færði faðir hans mér frá honum böggul með skeljum og nokkrar mjög falleg- ar stélfjaðrir. Ég sendi honum líka eina eða tvær gjafir. En við höfðum aldrei hitzt síðan. Þegar móðir mín nú minntist á hann, skaut þessum endurminningum skyndilega og í fullri birtu upp í huga minn líkt og eldingu. Líkast því að ég hefðu nú fyrst komið auga á fegurð æskustöðva minna. Ég svaraði um hæl: „Mikið er það gott ... hvernig líður honum?“ „Hann . .. efnahagurinn er ekki sem á verður kosið.“ Móðir mín leit út um gluggann og bætti við: „Þetta fólk er komið einu sinni enn, það lætur sem það ætli að kaupa húsgögn og ber svo hluti á brott eftir geðþótta. Ég verð að líta eftir því.“ Hún stóð á fætur og gekk út. Að utan barst kliður af röddum nokkurra kven- manna. Ég benti Hong Er að koma nær, til að masa við mig. Ég spurði hann hvort hann kynni að skrifa, hvort hann hlakkaði til að flytja. „Förum við með lest?“ „Já, við förum með lest.“ „Skipi?“ „Fyrst með skipi síðan ...“ „Húrra, svona myndarlegt, þú hefur svo sítt skegg!“ kallaði einhver skyndi- lega furðulega hárri og skerandi röddu. Ég hrökk við og flýtti mér að standa 27

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.