Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 58
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 2. Ég fæddist í Kíef 14. janúar árið 1891. 1891 er ártal sem rússar muna vel, já og franskir vínframleiðendur reyndar líka. Það var hungursneyð í Rúss- landi, í tuttugu og níu héruðum var uppskerubrestur. Léf Tolstoj, Tsjékhof, Korolénko reyndu að hjálpa hinum hungruðu, söfnuðu fé, settu upp matstof- ur; allt þetta var sem dropi í hafið og árið 1891 var lengi síðan nefnt „hungur- árið“. Franskir vínbændur auðguðust á víni þessa árs, þurrkarnir brenndu kornið en bættu gæði vínberjanna; þrautatímar fyrir bændur Volguhérað- anna eru óhj ákvæmilega gleðidagar fyrir búrgúndska og gaskónska vínyrkju- menn; á þriðja tug okkar aldar spurðu sérfæðingar enn eftir víni merktu 1891. Arið 1943 var fluttur frá Leníngrad til Moskvu eftir „frosna veginum“ vagn með gömlu Saint-Émilion frá 1891. Samtrest1 bað mig og A. N. Tolstoj að reyna gæði þessa frelsaða víns. I flöskunum reyndist vera súrt vatn, — vínið var dáið (hvað sem útbreiddar þjóðsögur segja þá deyja jafnvel hin beztu vín fjörutíu til fimmtíu ára gömul). 1891 ... Hve fjarlægt virðist þetta ár nú. Alexander þriðji ríkti yfir Rúss- landi. í hásæti Bretlands sat Viktoría drottning, sem mundi umsátur Sevasto- pol, ræður Gladstones, tyftun Indlands. I Vínarborg ríkti í friði og spekt Franz Jósef, sem sté í hásæti á því minnisverða ári 1848. Enn voru á lífi aðal- persónur sorgarleikja og gleðileikja fyrri aldar: Bismarck, Galiffet hershöfð- ingi, hinn þekkti diplomat rússneska keisarans Ignatéf, Mac Mahon, Fogt, sem stúdentar okkar þekktu af ávarpi Karls Marx. Engels var enn á lífi. Pasteur og Setsjénof, Maupassant og Verlaine, Tsjækovskí og Verdi, Whitman og Louise Michel störfuðu enn. Gontsjarof dó árið 1891. Ef við ímyndum okkur yfirborð hlutanna árið 1891, þá hefur heimurinn breytzt svo mikið, að okkur virðist sem ekki sé liðin ein mannsævi heldur nokkrar aldir. París komst af án ljósaauglýsinga og bifreiða. Um Moskvu var sagt: „stórt sveitaþorp“. í Þýzkalandi runnu skeið sitt á enda rómantíkusar, ástfangnir af linditrjám og Schubert. Ameríka var handan við sól og mána. Joliot-Curie, Majakovskí og Paul Éluard voru ófæddir. Hitler var tveggja ára. Heimurinn leit í fljótu bragði friðsamlega út, það var hvergi barizt; Ítalía var aðeins farin að líta hýru auga til Abbyssíníu, Frakkland bjóst til að leggja undir sig Madagaskar. Blöðin ræddu um heimsókn franska flotans til Kron- stadt: auðsjáanlega verður stofnað til fransk-rússnesks bandalags gegn Þrí- 1 Samtrest: samband grúsískra vínframleiðenda. 48

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.