Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Síða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Síða 64
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hálíðlega yfir því, að allur hávaði væri bannaSur frá níu til tólf á morgnana. Nákvæmlega klukkan níu byrjuSu þrír stjórnleysingjar aS kyrja hásum rómi: „Megi fáninn svarti verSa sigurtákn, hins sárhrjáSa öreigalýSs . ..“ Þeir viS- urkenndu ekki neinar reglur, jafnvel fangavörðurinn var smeykur við þá: „ÞiShérna sko ... farið með öfgar.“ (Þegar ég árið 1936 var sex mánuði með stjórnleysingjum á AragonvígstöSvunum minntist ég oftar en einu sinni fanga- klefans í Súséfskaja). Annars ríkti stjórnleysi ekki aðeins í okkar klefa heldur og í lögreglunni: í sama klefa sátu menn, handteknir af tilviljun; þeir biðu frelsis á hverri stundu, og bófar, ákærðir fyrir vopnuð rán; yfir þeim vofði gálginn. Eina viku sat með okkur sóknarnefndarformaður nokkur, hann hafði verið tekinn í misgáningi þegar leitað var að nafna hans. Hann sannaði hverjum okkar mjög nákvæmlega, að hann væri fórnarlamb tilviljunar, að hann væri maður flekk- laus og löghlýðinn, jafnvel í hugsunum, og hann gat ekki með nokkru móti skilið hvers vegna við hlógum að honum. Og þegar tilkynnt var, aS hann mætti fara heim, varð hann hræddur og sagðist vita, að nú yrði hann áreiðanlega sendur hingað aftur, hann hefði heyrt svo mikið af ólöglegu tali þessa viku. Einn þjóðbyltingarmaður, sem tekið hafði þátt í vopnuðu eignarnámi, beið lífláts. Hann var nefndur ívanof, máske var það dulnefni. Hann gerði sér upp brjálæði. Fyrst lét hann sér nægja stutt æðisköst, síðar breytti hann annað- hvort um aðferð eða bilaði í raun og veru: sólarhringum saman hrjáði hann okkur með ópum, svipuðum fuglavæli, ástæðulausum hlátri, slitróttu tali. Vasíléf höfuSsmaður í lögregluhernum fór með rannsókn máls míns. Hann reyndi að vinna traust mitt, talaði um kaun stjómarfarsins, kvaðst sjálfur vera framfarasinni hið innra með sér. Stundum skjallaði hann mig, stundum espaði hann mig með hæðni roskins og óheimsks hundingja. Hann vildi gjarna vita, hver væri höfundur greinarinnar „Tveggja ára starf sameinaðs flokks“, hvort nýr klofningur væri í aðsigi, hver aðstaða Leníns væri. Ég svaraði spurningum hans með einsatkvæðisorðum: hin ýmsu skjöl hefðu hinir og þessir menn fengið mér, og myndi ég ekki nefna þá. Hann talaði stundum um almenn efni: um Gorkí, um hlutverk æskunnar, um framtíð Rússlands; sagði við mig: „Ég á son á yðar aldri, þetta er bjáni sem ekki hefur áhuga á neinu, böll, stelpur, líkjörar, það er hans líf. En við yður er ánægjulegt að tala, þér eruð frumlegur unglingur, já og vel lesinn.“ Við eina yfirheyrsluna tók hann að lesa upphátt bréf frá Asju, sem hafði fundizt þegar ég var handtekinn. Ég reiddist, æpti að þetta kæmi máli mínu ekki við, að ég myndi ekki þola hon- um neinar svívirðingar. Hann var mjög ánægður, kallaði mig „skapmikinn 54
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.