Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Page 65
MENNIRNIR, ÁRIN, LÍFIÐ pilt“, bauð mér te og kökur, ég afþakkaði. Hann sagði mér, að til hans hefði komið stúlka, sem segðist vera frænka mín og bæði um leyfi til að heimsækja mig. „Ég spurði hana: hvað heitir móðir hans, — en hún vissi ekki einu sinni föðurnafn yðar. Hvers vegna takið þið svona fífl í samtök ykkar? Ég lét ekki handtaka hana. Yður grunar auðvitað um hverja ég er að tala? Jakovlévu, Asju.“ Ég átti erfitt með að stilla mig, en sagði kæruleysislega, að þetta kæmi málinu ekki við. Höfuðsmaðurinn laug að mér. Skömmu eftir að Asja kom til hans til að biðja um heimsóknarleyfi var gerð húsrannsókn hjá henni, og til allrar ógæfu lá bréfið sem ég hafði sent henni úr fangelsinu óopið á borði hennar, — hún hafði ekki haft tíma til að lesa það og eyðileggja. Áttunda apríl var Asja handtekin og ákærð um aðild að nemendasamtökunum, en tveim vikum síðar var henni sleppt gegn tvöhundruð rúblna tryggingu. Auðvitað hataði ég Vasíléf höfuðsmann, en mér fannst hann fróðlegur persónuleiki, slóttugur rannsóknari úr skáldsögu, því áður hafði ég haldið alla lögreglumenn vera heimska og fáfróða haltukjafta. Oryggislögreglan var til húsa á Kúdríntorginu. Þangað var ég fluttur í leigu- vagni, við hlið mér sat lögregluhermaður. Ég horfði með ákefð á vegfarendur, — máske sæi ég kunningja bregða fyrir .. . Á götunum gengu iðnaðarmenn, spjátrungar, menntaskólastúlkur, hermenn. í görðunum blómstruðu sýringa- runnar. Engir kunningjar ... Við síðustu yfirheyrsluna var mér sagt, að fyrir þátttöku í nemendasamtök- um rússneska sósíaldemókrataflokksins yrðu eftirtaldir nemendur leiddir fyrir dómstól: Erenbúrg, Oskolkof, Neumark, Lvova, Ivenson, Sokolof og Jakov- léva, — brot á 126. grein, paragraf a. Auk þess yrði ég ákærður fyrir brot á 102. grein, fyrsta paragraf, fyrir starf meðal hermanna. Vasíléf útskýrði glott- andi: „Yður persónulega ber að dæma til sex ára, en þér sleppið með fjögur ár fyrir æsku sakir. Þar á eftir — lífstíðarútlegð. En þér hlaupizt á brott það- an, ég þekki yður ...“ Nokkrum föngum tókst að notfæra sér hirðuleysi yfirvaldsins í Súséfskaja og skipulögðu flóttatilraun, fjórum tókst að sleppa, ef ég man rétt. í fyrsta skipti sá ég fangavörðinn daufan í dálkinn. Ekki veit ég hvort hann var rekinn úr starfi, en við fengum að súpa seyðið af þessum viðburði: okkur var þegar í stað dreift á önnur fangelsi sem „þátttakendum í flóttatilraun". Varla var ég kominn inn úr dyrum í Basmannajafangelsinu þegar eftirlits- maðurinn æpti á mig: „Niður með brækurnar!" Það var leitað á mér mjög nákvæmlega. Ur himnaríki lenti ég í helvíti. Vænn löðrungur kynnti mig í 55

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.