Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 87
UMSAGNIR UM BÆKUR son, listmálarann og kommúnistann, sem er ágætlega útfærð lýsing á einstaklingi og manngerð í senn. Og ekki má gleyma sögn- manni sjálfum. Þorvaldur menningarfulltrúi er að mín- um dómi geysiathyglisverð persóna, ekki aðeins fyrir það, að góðmennska hans, mannkærleikur og skilningur virðist jaðra við það ótrúlega, án þess þó að verða óraun- sætt, heldur einkum og sér í lagi vegna þeirrar sjálfsþekkingar sem hann virðist þegar búinn að ná. Ætla mætti, að manni sem svo ljóslega veit takmörk sín væri óhætt í tilverunni; fétt er eins haldgott og að þekkja eigin vankanta, að sagt er. Samt mun það ekki vaka sérstaldega fyrir höf. að láta líta svo út sem Þorvaldur hafi öðlazt einhvem yfirmannlegan þroska og sé þar af leiðandi fær í flestan sjó. Hitt myndi sönnu nær, að höf. hafi nauðugur viljugur komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé „harkan, sem gildir“ — en harkan er nú einmitt það, sem Þorvald vantar, — og hann veit það. Undir flestum kringumstæðum er hann þol- andi, ekki gerandi. Hann er Ljósvíkings- manngerðin, án þess þó að vera skáld. Svo ólíkar sem aðstæður þeirra em, hans og Ólafs Kárasonar, minna þeir harla mikið hvor á annan. Uppruni beggja og uppeldi virðast líka eiga hliðstæður. Sendibréf frá Sandströnd er í senn þjóð- félagsleg og sálfræðileg skáldsaga, einkum þó sálfræðileg hvað snertir sjálfslýsingu og -íhygli sögumanns. Ég er þeirrar skoðunar, að þegar á allt sé litið reynist síðamefnda atriðið öllu betur heppnað hjá höf. en hið fyrra, og má hann vel við una, ef svo er. Sannleikurinn er sá, að hann ætlast geysi- mikið fyrir með sögunni í heild. Hún á jafnvel að vera lýsing á þjóðfélaginu í hnot- skurn. Og kannski er það þess vegna sem Sandströnd verður næsta ósennileg sem ein takmörkuð þorpsbyggð á íslandi; slík glansmynd af þorpi er varla til í rauninni, að ég hygg. Engu að síður verður það heill- andi rammi utan um persónur og atburði sögunnar. Það er a. m. k. blessunarlega laust við lágkúru umfram það sem efni standa til. En reisnin og glæsileikinn er þá kannski í samsvarandi skyldleika við þró- unina í íslenzku þjóðfélagi undanfarin ár. Það er skoðun mín, að yfirleitt hafi Stef- áni tekizt ágætlega með þessa sögu, um sumt prýðisvel, og að á síðasta áratug hafi ekki komið út margar íslenzkar skáldsögur öllu athyglisverðari en hún. Hann hefur skipað sér sess meðal ágætustu rithöfunda okkar, þeirra vandvirkustu — og þeirra sem þora að taka sér fyrir hendur samtímann. Elías Mar. Dínus saga drambláta Riddarasögur 1 Háskóli íslands 1960. Jónas Kristjánsson bjó til prentunar. Fyrir tveimur árum hófst fomritaútgáfa á vegum Háskóla íslands með Skarðs- árbók Landnámu sem Jakob Benediktsson bjó til prentunar og bætti þar úr langri og brýnni þörf með þeim ágætum að fárra hefði verið. Háskólinn hefur nú látið prenta annað fomrit, Dínus sögu drambláta, fyrsta bindi í flokki riddarasagna sem margar eru enn óprentaðar eða í ófullnægjandi útgáf- um. Útgáfunefnd háskólans hefur nú látið allskammt stórra höggva á milli og verður nú framhalds beðið með eftirvæntingu. Útgefandi Dínus sögu drambláta, Jónas Kristjánsson (skjalavörður í Þjóðskjala- safni), er enginn viðvaningur því að hann hefur nú í rúman áratug gefið sig að vís- indastörfum á þessu sviði; fyrstu árin í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Jóns Helgasonar, en hin síðari hér í Reykjavík og þá að vísu í hjáverkum. Á Hafnarárun- 77

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.