Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Qupperneq 89

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Qupperneq 89
UMSAGNIR UM BÆKUR hendur þeim sem vilja rannsaka textann nánar í þágu íslenzkrar málssögu og bók- mennta. í vísindum varðar mestu að undir- staðan sé traust, og í þessari útgáfu Dínus sögu drambláta hefur grundvöllurinn verið skorðaður svo sem unnt er eins og ástatt er um varðveizlu textans. Fróðlegt er að lesa Dínus sögu málfarsins vegna; þar (í elztu gerð) má t. d. sjá ýmis útlend orð sem augljóst virðist að hafi um eitt skeið verið orðnir heimagangar í ís- lenzku (a. m. k. í ritmáli), eins og kólór f. lit og spíz f. krydd (sbr. colour og spices á ensku). Hins vegar má nefna að fyrir koma orð sem ekki verða fundin í orðabókum, eins og dómöld og áröld (miðgerð) og skrýtið er að sjá epli nefnt gras (miðgerð). Að efni til er sagan lærdómsrík um breyt- ingu bókmenntasmekks eftir 1300 og hefur reyndar verið tekin sem dæmi um hina al- gjöru gagnstæðu hófseminnar og göfginnar sem einkennir hinar beztu íslendinga sög- ur. Það er Margaret Schlauch sem gjörir þennan samanburð í liinu frábæra yfiriiti sínu yfir íslenzkar riddarasögur, Romance in Iceland. Kjaminn í Dínus sögu dramb- láta er eins og hún segir viðleitni karls og konu til að kúga hvort annað í kynferðis- málum og þau beita ruddalegum brögðum, galdravélum til að vekja losta, og svífast einskis til að auðmýkja og lítillækka hvort annað. En ekki er því að neita að einstaka sinn- um bregður fyrir glettni og gamansemi, þótt ekki nægi það til að veita söguhöfundi syndakvittun fyrir alla einfeldnina og smekkleysið. M. Schlauch rekur helztu rælur Dínus sögu til erlendra (einkum austrænna) sagna og söguminna og telur hana loks áþreifan- legan vitnisburð um of mikla og óvandláta gestrisni íslenzkra bókmenntamanna gagn- vart útlendu söguefni sem hafi að lokum leitt til hinnar dapurlegu smekkbreytingar. Mikil aukning hinna erlendu bókmennta- og menningaráhrifa hefur vafalaust stuðlað að smekkbreytingunni. Þjóðin hafði lengi þegar hér var komið orðið fyrir miklum og margvíslegum erlendum menningaráhrif- um — ekki sízt bókmenntaáhrifum — en hún hafði fram að þessu valið úr og samlag- að sínum eigin menningararfi það sem henni þótti álitlegast og eftirbreytniverðast og skapað um leið ódauðleg alfslenzk lista- verk — stundum meira að segja í uppreisn á móti hinum erlenda tíðaranda og innlend- um eftiröpurum hans. En þegar hér var komið — á 14. öld — er þjóðin á hraðri leið niður í dal pólitískrar og menningar- legrar undirokunar og kyrrstöðu eftir ósig- urinn mikla á síðara hluta aldarinnar á undan. Það tók þjóðina 600 ár að ganga þennan dal á enda og allan þann tíma las hún riddarasögur og kvað rímur. Bjarni Einarsson 79
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.