Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Page 7
ÍSLENZK ÞJÓÐERNISMÁL
ingarræðu sinni sagði Björn M. Ólsen: „AS íslenzka þjóðin væntir sér góðs
af háskólanum, það hefur alþingi íslendinga sýnt með því að ákveða, að
stofnun hans skuli fara fram á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar ...“ Um
stofnun háskólans segir Guðni Jónsson: „Þjóðina hafði dreymt um að eignast
háskóla, og draumurinn hafði rætzt“, og „hinum unga háskóla var fagnað
sem óskabarni þjóðarinnar og sigurtákni í sjálfstæðisbaráttu hennar.“ Hefur
háskólinn reynzt óskabarn íslendinga, og hversu annt hefur þing og stjórn
látið sér um hann?
Fimmtíu ár eru ekki langur tími í sögu háskóla. Flestir háskólar álfunnar
eru miklu eldri og rótfastari, eiga sér langa þroskasögu. Háskóli Islands var
í upphafi reistur af litlum efnum, frekar af þjóðarvilja en mætti. íslendingar
höfðu ekki úr miklu að spila árið 1911. Við stofnun hans gerðist ekki annað
en sameinaðir voru lagaskóli, prestaskóli og læknaskóli og bætt við heimspeki-
deild þar sem íslenzkudeild var innifalin. Hann var því frekar vísir að háskóla
en fullgildur háskóli, gegndi litlu öðru hlutverki en að útskrifa embættismenn
og sinna kennslustörfum. Brautryðjendunum var það vel ljóst. Björn M. Ólsen
segir í setningarræðu sinni: „... Vér megum ekki gera oss neinar gyllingar
eða þykjast hafa himin höndum tekið, þó að vér höfum fengið menntastofnun
með háskólanafni . .. Þrjár af deildum háskólans standa að vísu á gömlum
merg, þær sem til eru orðnar upp úr eldri skólum: guðfræðisdeildin, laga-
deildin og læknadeildin, og þær eru bezt úr garði gerðar, að því er snertir
kennslukrafta. En þó er varla við því að búast fyrst í stað, að þær geti sett
markið hærra en það að vera góðar undirbúningsstofnanir fyrir embættis-
menn, eins og gömlu skólarnir vóru áður . .. Heimspekideildin stendur þó
enn verr að vígi. Þar er einn kennslustóll í heimspeki, einn í íslenzkri tungu og
íslenzkri menningarsögu og einn í sögu íslands. Þeir sem vita, hve nauðsyn-
legt það er fyrir hvern mann, sem vill læra íslenzku til nokkurrar hlítar, að
kunna önnur germönsk mál, t. d. sér í lagi gotnesku, og jafnvel hin fjarskyld-
ari indo-evrópeisku mál, svo sem fornindversku, og að bera skyn á saman-
burðarmálfræði, þeir geta farið nærri um, hve mikil vöntun það er, að ekki er
neinn kennslustóll í öðrum málum en íslenzku og enginn í samanburðarmál-
fræði. Líka er hætt við að kennslan í íslandssögu komi ekki að fullum notum,
þar sem enginn kennslustóll er í almennri sagnfræði og enginn í sögu annarra
NorðurlandaþjóSa. Eg tek þetta aðeins sem dæmi þess, hve mikið vantar við
heimspekideildina, af því að það er svo bagalegt fyrir kennsluna í íslenzkum
fræðum. StærSfræðisdeild og náttúruvísinda vantar alveg.“ Enginn skyldi þó
lá þeirri kynslóð sem grundvallaði háskólann þótt hún megnaði ekki að gera
341