Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Síða 12

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Síða 12
TIMARIT MALS OG MENNINGAR íslenzkrar menningar, sem hefur uin langa hríð verið skyldug trúarjátn- ing íslenzkum menntamönnum, kunni að vera varasöm ef hún gerir ráð fyr- ir sjálfkrafa lífrænu sambandi milli nútímans og íslenzkrar fornaldar. Að minnsta kosti þyrfti alltaf að hafa það í huga að það lífræna samband getur ekki byggzt á formalisma né eintómri vegsömun. En fornmenning vor varð snemma að þjóðsögu í þeim skilningi sem Jeanson talar um. Til þess að hún geti orðið lífrænn þáttur í nútímamenningu vorri væri fyrsta skilyrðið að skilja hana; en því er varla hægt að neita að fyrirbærið ís- lenzk fornmenning hefur enn ekki verið skilið: of mörg atriði hennar virðast falin í myrkri aldanna til þess að unnt sé að skilj a hana sem lifandi heild síns tíma; og þær tilraunir sem hafa verið gerðar til þess hvíla á of mörgum ósönnuðum tilgátum og þegja um of margar óleystar gátur. Þessi skoðun kann að verða einhverj- um ásteytingarsteinn, en þá vil ég að- eins geta þess atriðis að meðan enn er óráðin gátan um uppruna og fé- lagslegar rætur íslenzkra fornbók- mennta er skilningur íslenzkrar forn- menningar langt undan landi. Aðeins aular munu skilja þessi orð svo að hér sé verið að agnúast út í ástundun fornmenningar vorrar, né nokkurs tímabils sögu vorrar og menningar. Aftur á móti hygg ég að það sé hættulegt að benda á hina fornu menningu, mælikvarða hennar og hugsýnir sem fyrirmynd, ef ekki hefur tekizt að skilj a nema brot henn- ar, og ef ekki hefur tekizt að gera liana skiljanlega. Of oft má sjá menn vísa núlifandi kynslóðum til forn- menningar vorrar sem eftirdæmis, eða miða við hana óbeint í dómum um nútímann, blátt áfram og án fyr- irvara, þannig að helzt lítur út fyrir að þeir virði einskis þann reginmis- mun sem er á þjóðfélagi vorra daga og hinu forna. Slíkur hugsanagang- ur er miklu verra en einskis nýtur og sú þekkingarfræðilega nægjusemi sem kemur fram í honum er skaðleg. Sannfæring mín er sú að mjög sé illa farið ef dýrð fornaldarinnar hindrar að vér sýnum rækt því tíma- bili sem er bakhjallur íslenzks þjóð- ernis, menningar og stj órnmálahugs- unar á vorum tímum, en það tímabil er 19. öld. Saga og menning íslands frá því um 1800 er vor saga í fyllstu merkingu orðsins og snertir oss beint. Sú saga hlýtur að auka oss skilning á sjálfum oss miklu fremur en saga hins forna þjóðfélags; sem nákvæm- ust og ófölsuðust þekking á henni er nauðsynlegur þáttur menningar vorr- ar nú; og þegar öllu er á botninn hvolft kemur rannsókn hins forna þjóðfélags oss að litlum notum, nema því aðeins að vér látum oss ekki nægja þjóðsögur um það tímabil sem er beinlínis grunnur tilveru vorrar nú. Því miður er saga þess flestum 106
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.