Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 92

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 92
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Fjöldj tónlistarmanna í stöðugt fleiri löndum hefur tekið upp tólftónatæknina, sem hófst með Schönberg og að lokum hef- ur hún lagt að velii þann, sem var ávallt tal- inn höfuðóvinur hennar: Igor Stravinsky. Meðan Stravinsky var enn á öndverðum meiði við Schönberg var það vani hans að verða fyrir áhrifum af því, sem hann hafði óbeit á. í þvf nær fimmtíu ár lét hann sem verk Schönbergs og nemenda hans væru ekki til, en nú hefur hann skyndilega breytzt í þann sem mest vit hefur á þessum málum. Þessi síðbúnu umskipti eru reyndar dálítið hlægileg, og tólftónaverk höfundar Sacre eru ekki fyllilega megnug að leyna því. Alkunna er, að síðustu árin hefur Stra- vinsky samið nokkur verk að einhverju eða öllu leyti samkvæmt tólftónatækni. Þatt eru: Canticum Sacrum, Agon og Threni. Mér virðist að bæði hafi þau ekkert nýtt fram að færa, hvað snertir list Stravinskys sjálfs, og beri einnig vott um þverrandi sköpunarmátt sem „lærður" kontrapunkt- ur (en höfundur þessara verka hefur svnt honum sérstakan áhuga upp á síðkastið) dyltir ekki. Jafnvel þótt mér kunni að skjátlast um þetta atriði, virðist mér aug- ljóst að þegar Stravinsky tekur upp tólf- tónatæknina (sem hann hefði mátt gera fyrr — nteðan Schönberg og tveir merkustu nemendur lians vont enn á lífi) liggja svip- aðar hvatir að baki, eins og þegar hann satndi „í stíl Pergolesis", „í stíl Bachs“, „í stíl Rossinis" eða „í stíl Tsjækofskys“. Athugasemdir hans um Schönberg, Berg og Webem bæta svo gráu ofan á svart. Hin- ar nýlegu Viðrœður hans við Robert Craft eru þvílíkt samsafn af óljósum og fjarstæð- um hugmyndum, að mjög nákvæmur og leiðinlegur lestur væri sjálfsagt nauðsyn- legur til að komast til botns í því. Að vístt er hann sennilega ekki að öllu leyti ábyrg- ur íyrir þessu ömurlega safni. Samkvæmt ensku spakmæli hefur heimskuleg spuming jafn heimskulegt svar í för með sér. Lestur þessara Viðrœðna vekur óhjákvæmilega sömu hugmynd og alþýðan orðaði svo vel. Niðurlag Að endingu vil ég taka fram, að staða tónlistarinnar nú sem stendur byggist á ntargskonar misskilningi. Svipað ástand hefur reyndar ríkt mjög lengi, en vaxandi misskilningur skapar nú mjög óhollan rugl- ing. Auðvelt er að skilja hvað átt er við. Ann- arsvegar höfum við séð hvernig hinn frægi „framvörður" gengur út frá misskilningi á verkum Schönbergs og byggir á fáránlegum afbökunum á hugmyndum Weberns. Hins- vegar hefur þessari stefnu aldrei raunveru- lega tekizt að yfirstíga áhrif Stravinskys, en hin nýlegu sinnaskipti Stravinskys gagn- vart tólftónatækninni er einskonar trygging eða jafnvel „blessun“ þessarar viðleitni. Þegar hefur verið minnzt á hvers virði þessi sfðustu umskipti höfundar Sacre séu; mér virðist ekki votta þar fyrir raunvemleg- um skilningi á þeirri tónlistarstefnu, sem varð orsökin að slíkum umskiptum. Aug- Ijóst er, að allt þetta eykur aðeins mgling- inn og stuðlar að því að skapa þann tví- skinnung, sem um er að ræða. Ennfremur: hlutverk „upphafsmanns“ nútímatónlistar, sem hefur svo oft verið veitt Stravinsky (enn eitt atriði, sem stuðl- ar að tvískinnungnum í skilningi flestra ungra tónlistarmanna í dag), slíkt hlut- verk er ekki annað en þjóðsaga. Þessi frægð var ekki möguleg nema í skjóli næturinnar, ef ég má taka svo til orða, því hefðu verk Schönbergs — einnig verk Bergs og We- bems — verið almennt þekkt fyrir 1914 hefði slík saga aldrei komizt á kreik. En Sacre du Printemps (og slagurinn frægi) er það ekki sjálft upphaf nútíma tónlistar? Alls ekki. 186
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.