Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 83

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 83
MANNLEG SAMÁBYRGÐ kröfu að slík landamerki skuli færa út okkarmegin, leingra og leingra — ad infinitum. Vel haldin samfélög hafa veriö stofnuð á svæðum þar sem volæði réði áður ríkjum, svo að vér vitum af reynslu hverjar þær stoðir eru, sumar, sem renna undir afnám húngurs með þjóðum. Þar er efst á blaði kerfisbundin útrýmíng fáfræði í aðferðum manna við fæðuöflun, samfara beiníngu lánsfjár til þessara veiku svæða svo þarlandsmenn geti vélvæðst í samræmi við aukna þekk- íngu sína og þarmeð fullkomnað vinnubrögð sín. Einstakir fastir liðir sem útheimtast til viðreisnar þessum svæðum eru semsé óumdeilanlegir. Höfuðatriðið er að þau ríki sem bet- ur mega sj ái nauðsyn á að koma þess- ari framvindu á stað; og æski henn- ar. Það sem þar er umfram eru tækni- atriði. Ég ætla mér semsé ekki að mæla með einhverri lausn samkvæmt einka- rétti í þessu efni. Einkaleyfislausn gæti í sumu falli jafnvel orðið til þess að korn sviðnaði á ökrum og það lít- ið gras áður var hætti nú að vaxa með öllu. En jafnvel þó einkaleyfis- lausn væri hugsanleg mundi hún ekki fá bætt úr brýnni þörf einsog þeirri að sinna miljónum barna sem í dag, á þeirri stundu sem nú er, fá ekki verð sinn deildan. Vitanlega aðhyll- umst við hver sína kenníngu. Og þó eingin kenníng sé, fremur en galdrar, líkleg til þess ein saman að bera okk- ur nær settu marki, þá er ekki að vita nema hagkvæm blanda af fleir- um kynni að verða giftudrjúg í þá veru að lækna böl heimsins þegar fram líða stundir. En við barn sem í dag grætur af því að það fær ekki mjólkurlögg, tjóir lítt að segja, „ég hef ágæta kenníngu viðvíkjandi þér, og ef hún verður framkvæmd mun hún lækna öll börn í heimi af húngri þegar fram líða stundir“. Við skulum vona það eitt að þessi kenníng sé ekki atómbomban. Allar kenníngar, hvort heldur háfleygar eða jarðbundnar, eru þess ómáttugar að bæta úr brýn- ustu þörf líðandi stundar: ekkert get- ur hj álpað í dag, nema galdur einnar brauðsneiðar og mjólkurbolla. Það eitt stendur í valdi okkar sem hér erum samankomnir, að skora á menn að gleyma kjarnorkuvopnum og geimflugi einn dag og laða þá til þess í staðinn að setj a sér fyrir sj ónir nakið og beinabert barn sem mun deya á morgun nema þú hjálpir á þessari stundu. Um lítinn þann skír- skotum vér nú til ríkisstjórna heims- ins og almenníngs í löndunum og til skynsemi veraldarinnar. TÍMAIilT MÁLS OC MENNINGAR 177 12
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.