Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 16
TIMARIT MALS OG MENNINGAR vorum nýlenduþjóð í fullum skilningi orðsins. Hinsvegar er það illhrekjan- legt að vér höfum mjög mörg huglæg einkenni nýlenduþj óða, og einmitt í þeim púnkti sem nú hefur verið drep- ið á hygg ég að komi í ljós mesta vöntun íslenzks menningarlífs nú til dags, að í honum mætist raunar og margeflist allir þeir ágallar sem áður hefur verið getið. Skilgreiningin, hin hlutlæga glýju- lausa og óbilgjarna skilgreining hef- ur verið vanrækt. Menningarstarfið hefur sætt sig aðeins við grófustu drætti skilgreiningar, við að skilja hlutina aðeins að hálfu, en gera sér að öðru leyti þjóðsögur og ímyndan- ir að góðu; og þá er annaðhvort litið svo á að þjóðfélagsástandið sé „sjálf- sagt“ eins og það er, eða óskiljan- legt. Þannig myndast vítahringur kyrrstöðunnar, því að vanmætti vort, ráðleysi og undanhald getur af sér hinar óskilgreindu mótsagnir, en þær verða aftur helztu orsakir þess að oss tekst ekki að yfirbuga vanmætti vort og ráðleysi. Hvarvetna blasir við augum getuleysið að skilja stöðu vora; vér vitum í mesta lagi að staða vor er ekki þetta og ekki hitt, en vér vitum ekki hvað hún er. Þessi fáfræði getur stundum gengið svo langt, ef hún er meðvituð, að afsaka sj álfa sig með því að örbirgð skilgreiningar- innar sé ekki um neitt að kenna, held- ur sé þjóðfélag vort í rauninni ómark og gefi ekki tilefni til neinnar skil- greiningar. Og þá er auðvitað hitt j afn-algengt að fullyrða að staða vor sé einmitt þessi en ekki hin, án þess nokkur umhugsun sé við höfð. Þess- vegna á líka hinn opinberi sannleik- ur um eðli þj óðfélags vors — sem er lygi — auðvelt með að koma ár sinni fyrir borð: sá „sannleikur“ að þjóð- félag vort sé einfaldlega „vestrænt“, borgaralegt þjóðfélag, og að oss henti því samskonar úrlausnir við- fangsefna vorra og taldar eru eiga við í borgaralegum þjóðfélögum í kring- um oss. Vér munum draga þá álvktun að mikilvægasta hlutverk þess menning- arstarfs, er lítur óhikað á þjóðfélag- ið sem sitt æðsta og raunar eina verk- svið, verði nú um sinn að skilja og gera skiljanlega stöðu hinnar íslenzku þjóðar, eðli og mótsagnir þessa sér- staka samfélags sem er vort. AS það sé frumskilyrði allrar frekari viðleitni að eyða þeim blekkingum og sjálfs- blekkingum sem há starfi voru, og láta þekkingu koma í stað þeirra á- gizkana og sögusagna og þjóðsagna sem vér höfum of oft að grundvelli baráttu vorrar. Því aðeins að oss tak- ist að skilgreina mótsagnir stöðu vorrar hætta vandamál samfélags vors að vera óleysanleg. Og skilning- ur mótsagnanna er eina leiðin til að uppræta þá sálrænu veilu sem þekkir ekki aðra mælikvarða á menningu vora og tilveru en mælikvarða heims- markaðsins. Ég veit ekki hvort ein- 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.