Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Blaðsíða 35
LÍTIL STEFNUSKRÁ FYRIR LEIKLISTINA
sjón litaðist maðurinn allsstaðar um eftir einhverju löngu þekktu, en ónot-
uðu, sem hann gæti hagnýtt sér til þæginda. Umhverfi hans breyttist jafnt og
þétt frá áratugi til áratugar, þá frá ári til árs, þá nærriþví frá degi til dags.
Eg, sem skrifa þetta, skrifa það á vél, sem þekktist ekki, þegar ég fæddist. Ég
hreyfi mig í nýju farartækjunum með hraða, sem afi minn gat ekki ímyndað
sér; ekkert hreyfðist þá svo hratt. Og ég hef mig upp í loftið, en það gat faðir
minn ekki. Við föður minn hef ég þegar talað þvert yfir meginland, en fyrst
ásamt syni mínum sá ég hinar hreyfðu myndir af sprengingunni í Hiroshima.
17 Endaþótt nýju vísindin hafi gert svo gífurlega breytingu á veröld okkar
mögulega og stuðlað framar öllu öðru að breytanleika hennar, þá getur mað-
ur þó ekki sagt, að andi þeirra fylli og ákvarði okkur öll. Astæðunnar til þess,
að liinn nýi háttur að hugsa og finna til gagntekur ekki ennþá í raun og veru
allan almenning, er að leita í því, að vísindin, sem hefur verið beitt með svo
miklum árangri við hagnýtingu og beizlun náttúrunnar, eru hindruð í að
erja annað svið, sem ennþá er myrkri hulið, nefnilega sambönd mannanna
sín á milli við hagnýtingu og beizlun náttúrunnar, — af stéttinni, sem á þeim
veldi sitt að þakka, borgarastéttinni. Þetta verk, sem snertir alla menn, var
innt af höndum án þess að nýju hugsunaraðferðirnar, sem gerðu það mögu-
legt, leiddu í ljós gagnkvæm sambönd þeirra, sem inntu það af höndum. Hin
nýja sjón á náttúruna beindist ekki að þjóðfélaginu.
18 í reyndinni eru hin gagnkvæmu sambönd mannanna orðin ógagnsærri
en þau hafa nokkrusinni verið. Hinar risavöxnu sameiginlegu framkvæmdir,
sem þeir hafa ráðizt í, virðast sundra þeim meir og meir, vöxtur framleiðsl-
unnar orsakar vöxt eymdarinnar, og á undirokun náttúrunnar græða aðeins
fáeinir, og meira að segja með því að kaupþrælka menn. Það, sem gæti verið
öllum til framfara, verður að forskoti fáeinna, og sífellt stærri hluti fram-
leiðslunnar er notaður til að búa til eyðileggingartæki fyrir voldugar styrjald-
ir. I þessum styrjöldum grandskoða mæður allra þjóða magnþrota himininn:
með börnin í fanginu skima þær eftir hinum banvænu uppfinningum vísind-
anna.
19 Eins og menn fornra tíma stóðu frammi fyrir óútreiknanleika náttúru-
hamfaranna, standa þeir nú á tímum frammi fyrir sjálfra sín framkvæmdum.
Borgarastéttin á vísindunum að þakka velgengnina, sem breytti henni í vald-
hafa. Hún veit vel, að það mundi tákna endalok stjórnartíma síns, ef sjón vís-
indanna beindist að hennar eigin framkvæmdum. Þannig hafa nýju vísindin,
TÍMARIT MÁLS OC MENNINCAR
129
9