Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 49

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 49
LÍTIL STEFNUSKRÁ FYRIR LEIKLISTINA þegar hann fer að snuðra í bókunum og gefa drengnum Andrea Sarti lexíu um hið nýja sólkerfi. Þarftu ekki að vita, ef þú átt að leika þetta, að við munum enda á kvöldmáltíð hins sjötíu og átta ára gamla manns, sem einmitt þessi sami lærisveinn hefur yfirgefið fyrir fullt og allt? Hann hefur þá breytzt skelfilegar, en þessi tímalengd getur gert manni í hugarlund. Hann etur af taumlausri græðgi, ekkert annað kemst lengur fyrir í höfði hans, hann hefur á skammarlegan hátt verið losaður við kennarastarf sitt eins og byrði, hann, sem drakk einusinni morgunmjólkina sína umhugsunarlaust, gráðugur i að fræða drenginn. En drekkur hann hana í raun og veru umhugsunarlaust? Er ekki nautn hans af drykknum og þvottinum samþætt nautn hans af nýju hugsununum? Gleymdu því ekki: hann hugsar, vegna þess að það veldur hon- um vellíðun! Er það eitthvað gott eða eitthvað vont? Þar eð þú munt ekki í öllu leikritinu finna neitt, sem styður það, að þetta sé skaðsamlegt þjóðfélag- inu, og sérílagi vegna þess, að þú ert þó sjálfur, að ég vona, tápmikið barn vísindaaldarinnar, ráðlegg ég þér að setja það fram sem eitthvað gott. En gerðu þér þess glögga grein: mörg skelfingin mun gerast í þessu máli. Að maðurinn, sem heilsar hér nýju öldinni, mun á endanum neyðast til að knýja þessa öld til að vísa sér á bug með fyrirlitningu, ef ekki gera allar eignir sínar upptækar, snertir líka dálítið það, sem er hér á döfinni. Um kennslustundina er það að segja, að þú þarft að úrskurða, hvort um munninn líði aðeins það, sem hjartað er fullt af, svo hann mundi ræða um það við hvern sem væri, jafn- vel barn, eða hvort drengurinn, sem þekkir Galilei, verður fyrst að freista hans, með þvi að sýna áhuga, til að hann miðli honum af þekkingu sinni. Einnig er hugsanlegt, að hvorugur þeirra geti haldið aftur af sér — annar verði að spyrja, hinn að svara: þvílíkt bræðralag mundi vera forvitnilegt, því dag einn mun því verða fullkomlega spillt. Vissulega muntu vilja fara í flýti yfir lýsinguna á snúningi jarðar um sól, þar eð hún er ekki borguð, því nú gengur fram hinn ókunni, efnaði lærisveinn og breytir tíma lærdómsmanns- ins í gulls ígildi. Hann reynist vera áhugalaus, en honum verður að þjóna, Galilei er alltént efnalaus, og þannig mun hann standa milli efnaða lærisveins- ins og hins gáfaða og velja andvarpandi á milli þeirra. Hann getur ekki upp- frætt hinn nýja mikið, svo hann lætur fræðast af honum; hann fréttir af stjörnukíkinum, sem hefur verið fundinn upp í Hollandi: á sinn hátt notfærir hann sér truflunina við morgunverkin. Rektor Háskólans kemur. Umsókn Galileis um launahækkun hefur verið synjað, Háskólinn borgar ógjarna fyrir eðlisfræðikenningar það, sem hann borgar fyrir guðfræðikenningar; af Gali- lei, sem fæst, þegar alls er gætt, við eina af lægri greinum vísindanna, æskir 143
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.