Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Síða 88

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Síða 88
RENÉ LEIBOWITZ Hugleiðingar um nútímatónlist „Mér geðjast ekki að þessu. — Hvers- vegna? — Það er fyrir ofan minn skilning." Hefur nokkurn tíma verið svarað þannig? F. Nietzsche (Handan við gott og illt). Inngangur AU reikningsskil, sem birtast reglulega um „ástand“ nútíma tónlistar byggjast flest á alvarlegum misskilningi. Athugand- inn vill að sjálfsögðu vera hlutlægur, en þeir sem eru á öðru máli, segja að hann láti stjómast af eigin smekk og ásaka hann þannig um huglægni, sem er talin höfuð- synd allrar gagnrýni. Þegar á allt er litið verður lausnin vanalega sú að höggva á hinn erfiða Gordíonshnút andstæðnanna hlutur-hugur með spakmælinu fræga „um smekk og liti er ekki hægt að deila“, en ef eitthvað er umhugsunarvert þessu varðandi, er það sú staðreynd að öldum saman hefur ekkert lát orðið á deilum um þetta efni. Er þá möguleiki að finna einhvern mæli- kvarða á gildi hinna mismunandi skoðana, þessara oft mótsagnakenndu og ávallt and- stæðu dóma, sem leitast við að skilgreina veruleika ef ekki sannleika ástands sem virðist ganga okkur úr greipum, þegar við ætlum að athuga það? Við skulum ekki láta þetta rugla okkur. Heldur vera ófeimin við að láta smekk okk- ar í ljós og leitast jafnframt við að sýna yf- irburði hans. I Flestir tónlistarmenn eru á einu máli um það, að þróun tónlistarinnar síðustu fimm- tíu árin hafi einkum ráðizt í verkum tveggja manna: Schönbergs og Stravinskys. Ég fyrir mitt leyti hef ávallt tekið hinn fyrmefnda framyfir. Að svo miklu leyti sem sagan dæmir í þessum málum virðist þróunin upp á síðkastið styðja þá, sem hafa samskonar smekk og ég fremur en liinar „herbúðimar" — miklu f jölmennari fyrir fáeinum árum — sem litu á Stravinsky sem hinn eina sanna leiðtoga tónlistar vorra daga. Segja má að „liðsmunur" fylgismanna „ný-klassísku“ stefnunnar (Stravinsky) annarsvegar og fylgismanna „tólftóna" stefnunnar (Schönberg) hinsvegar hafi gjörbreytzt síðustu árin. Allt til stríðsloka átti fyrmefnda stefnan ótölulegan fjölda fylgismanna, en sú síðamefnda aðeins ör- fáa, nú er þetta í þann veginn að snúast við: ný-klassíski stíllinn lætur stöðugt und- an síga, en fjöldi þeirra, sem aðhyllast tólf- tóna stefnuna eykst stöðugt. Með þessu er ekki sagt að tónlist Schön- bergs sé almennt viðurkennd nú á dögnm. Fjarri því! Þetta er erfið tónlist, mjög flók- in og merking hennar nær langt út yfir þann skilning sem venjulega er lagður í hana. Verk Schönbergs em oftast metin eft- ir yfirborðslegustu eiginleikum sínum, en hið þýðingarmesta fer framhjá mönnum. Þannig er talað um atónala tónlist, tólftóna- tækni, mishljórra o. s. frv., ef minnzt er á Schönberg, en þá gleymist að þetta eru að- 182
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.