Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 26
Tímarit Máls og menningar
hafnafrelsi. Þá hikuðu Bretar heldur
ekki við að skipa gríska liðsforingja,
sem verið höfðu í þjónustu þýzku
öryggisdeildanna, til herstjórnar í
hinu nýja Þj óðvarnarliði. Þessar á-
virðingar urðu til þess, að EAM-ráð-
herrarnir gengu úr ríkisstj órninni 2.
desember. Næsta dag var efnt til mik-
illar kröfugöngu í Aþenu. Göngu-
menn voru allir óvopnaðir, sextíu
þúsundir að tölu, en skotið var á
mannfjöldann og sjö lágu dauðir í
valnum. Þetta var |kveikjan, sem
tendraði bál grísku borgarastyrjald-
arinnar, sem háð var af öllu því of-
stæki, sem Grikkjum er gefið. Oeirð-
ir gusu upp í Aþenu næstu daga og
Bretar urðu beinlínis að taka borg-
ina herskildi og þá framar öðru fá-
tækrahverfin, sem voru hraklega leik-
in, um fimm þúsund innbornir menn
lágu fallnir eða sárir. Churchill sendi
Scobie, hershöfðingja Breta í Aþenu,
símskeyti þann 5. desember og skip-
aði honum „að hika ekki við að fara
svo fram sem hann væri í hernuminni
borg, þar sem staðlæg uppreisn geis-
aði“, og hvatti hann til að halda og
stjórna Aþenu án blóðsúthellinga,
„en einnig með blóðsúthellingum ef
nauðsyn ber til“. Þar var ekki deigan
að brýna. Snemma í janúar bað
ELAS-hreyfingin um vopnahlé og
mánuði síðar, 12. febrúar, var gerð-
ur skriflegur sáttmáli um frið. ELAS-
sveitirnar skyldu framselja vopn sín,
en njóta verndar fyrir pólitískum of-
sóknum vegna undangenginna óeirða.
Miðstjórn EAM-hreyfingarinnar gaf
út ávarp til skæruliða sinna þar sem
lýst var yfir, að vopnaviðskiptum
væri hætt og þeir voru hvaltir til að
hverfa til friðsamlegra pólitískra
starfa og tryggja þjóðinni fullveldi
og lýðræði.
En þótt vopnin hefðu verið slíðr-
uð um stund og EAM- hreyfingin
sýndi af sér mikla hófstillingu, þá
færðust hægri öflin sí og æ í aukana
og linntu ekki á ofsóknum gegn fyrr-
verandi skæruliðum ELAS-sveitanna.
Fréttaritari brezka blaðsins Times
hafði Ijótar sögur að segja af mann-
vígum, handtökum og pyndingum
ELAS-manna. Allt gerðist þetta í
skjóli brezka hersins. Bretar horfðu
á aðfarir konungssinna og óaldar-
flokka hægri manna án þess að láta
sér bregða og létu þá hafast að sem
þá lysti.
Þegar komið var fram á surnar
1946 tóku skæruliðaflokkar að láta
á sér bæra í fjallahéruðum Grikk-
lands. Flestir vestrænir sagnfræðing-
ar, sem hafa rannsakað sögu þess-
ara missera eru á einu máli um það,
að kommúnistar hafi ekki verið þar
að verki fyrst í stað, heldur hafi fjökli
ungra sveitamanna myndað skæru-
liðasveitir vegna ofsóknar vopnaðra
óaldarflokka hægrimanna, er fengu
allan útbúnað sinn frá Bretum. Or-
birgðin í landinu, spilling embættis-
manna og hinna skammlífu grísku
16