Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Blaðsíða 89

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Blaðsíða 89
Halldór Laxness á krossgötum sem óhjákvæmilegt skilyrði sköpunar. Ýmis sjónarmið gagnvart starfi skáldsins spegla sömuleiðis augljós og meðvituð tengsl við hina sígildu íslenzku sagnritunarhefð. Það gildir um formlega hlið verksins, svo sem orðfæð og hnitmiðun engu síður en sjálfa afstöðuna til efnisins: fjarlægð- ina, hina köldu hlutlægni, afneitun hvers kyns boðunar skoðana. 11 Ef til vill væri rétt að reyna hér að sýna hvernig Halldór í einstökum til- vikum Iítur á skáldverk sín eftir 1960. Gott dæmi gætu verið nokkrar bréf- legar athugasemdir um Prjónastoj- una Sólina, dagsettar 27/4 1964. Hall- dór kveður yfirleitt ekki auðvelt að vita „hvað segja skuli um jafnóor- jjódoxa Ieikritagerð einsog mína“. Það er fjöldi hluta sem „vantar“ — eða sem fólk álítur vanta — í verkið. Meðal annars hafnar höfundurinn, ekki hæðnislaust, tilraunum ýmissa ritskýrenda til að finna einhvers kon- ar táknakerfi í atburðarásinni. Að þessu leyti gat ég tekið ádrepuna að nokkru leyti til mín þar sem ég — að vísu með mestu varkárni — hafði þótzt sjá uinfangsmeiri merkingu bak við sérstæða atburðarás verksins og persónuskipun (Sbr. Stickateljén Solen, bls. 28 og áfram). En annars virðist innlenda gagnrýnin einkum hafa kallað fram þessi svör hans: Líka er skiljanlegt, að inargur útfarinn bókmentamaður finni sig knúðan að búa til einhvern táknfræðilegan lykil að verk- inu til þess að ná út úr því einhverjum heimssögulegum skilníngi, í vonunt þess að í verkinu kunni eftilvill að finnast einhver siðferðileg útskýring, eða jafnvel lausn, á vandamálum tímans. Hitt kynni að vera erfiðara að koma auga á það litla horn af heiminum með tilheyrandi manngerðum og atburðum etc., sem þetta sérlega leiksvið og „tími“ þess takmarkast af. Eg tók eftir því heima á Islandi, að eftir því sem menn voru hámentaðri samkvæmt okkar tíma og stálslegnari í bókmentum, þeim mun tor- veldara eða jafnvel gerómögulegra varð þeim að meta verkið eða botna yfirleilt nokkurn skapaðan hlut í því. Það lá við að ýmsir slíkir ágætismenn blátt áfrant emjuðu af líkamlegum kvölum útaf öllu því sem þeim þótti vanta í verkið — á sama hátt og t. d. ákaflega þyrstur maður mundi gera ef honum væri borinn harðfiskur að drekka: fyrir utan alt annað, þá vantar t. d. íyrst og fremst vatn í harðfiskinn. Halldór bendir einnig beinum orð- uin á tvær hliðar nútímamenningar sem hann telur hafa gert áhorfendum — og þá líklega fyrst og fremst hin- unt menntuðu — erfitt um vik að til- einka sér verk á borð við Prjónastof- una Sólina átakalaust: Ef hinsvegar ætti að telja upp það sem vantar í jietta leikrit, en sleppa því að skifta sér af því sem er þar, þá virðist ntér einkum tvent skifta meginmáli af þeim ó- endanlega mörgum hluturn sem ekki er þar að finna. Það sem „vantar“ í þetta leikrit, Prjónastofuna, eru tvær höfuð„ídeólógíur“ sem menntun okkar nútímamanna, liugsun- arháttur og viðhorf við heiminum rísa á öðru freniur, einkum og sérílagi á Vest- 79
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.