Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 37
Sögukorn af LýS bónda í Lyngeyjum Styrk já. Styrki. Maður veit það. En svo þarf að endurgreiða þessa styrki. Oj á, en samgöngubætur þýða peninga. 0 ætli það? — Það eru alltaf nógir peningar til í Landssjóði. Og þarf ekki Landssjóð til. Peningamenn Reykvíkingar. Ojú. Ojaja. Sumir hverjir nokkuð efnaðir, jú. Efn, segir Lýður, og stendur í honum orðið, því nú fer snörp vindhviða í seglin. Báturinn tekur sjó til hlés. Bóndi kippir að sér stýrissveifinni og gefur út á stórseglsskautinu. — Hvaða hönnvuð læti eru í veðrinu? Er hann að hvessa? . . . Hvessarahvessa já. Gott ef hann gerir ekki rok í flæðina. Hérna, hvað ég vildi mér sagt hafa. 0 þetta eru forríkir skrattar. Tórsatarnir, það eru nú menn sem eiga peninga. Og fleiri. Miklu fleiri. Þeir halda sig líka flott þessir höfðingjar fyrir sunnan. Að koma inn til þeirra maður. Það er nú meiri dýrðin. Postulínsbollar, postulínskönnur og postulínsdiskar. Allt úr postulíni. Og sallafín plussteppi og myndir uppum alla veggi. Þeir sjást lítið á götunni greyin. Þeir eru víst lítið útivið kallarnir. Þeir fara nú sumir hverjir í ferðalag á stundum, gegnir verkfræðingurinn. Já, þeir rússa. Þeir rússa uppum allar sveitir á bílum. Lúxusbílum mestu. Það er eitthvað annað en hér í eyjunum. Annars skil ég nú ekki hvað fólk hefur gaman af þessu rússi. Það er að skoða veröldina og anda að sér hreinu lofti. Skoða já. Já, það er bölvuð reykjarsvæla í þéttbýlinu og skítur. Jú, það þykist vera að skoða landið. Ég held það sé nú ekki mikið að skoða. Fjand- ann er það að skoða? Hraun og mosi. Mosi og hraun. Það gengur ekki á öðru þarna fyrir sunnan. Það er náttúrlega fróðlegt að koma til Þingvalla. Merkur staður Þingvellir. Og Geysir. Og Gullfoss. Ég skil nú ekki að þessi Gullfoss sé svo merkilegur. Grenjandi vatnsfall eins og aðrir fossar. Tilkomumikið vatnsfall Gullfoss, gegnir Skúli verkfræðingur. Tilkom. Jú, hann er náttúrlega tilkomumikill greyið. Það er fjandans hávaði í honum. Og Lýður bóndi tekur ofan sjóhattinn og klórar sér í skallanum. Þú hefur ferðazt eitthvað fyrir sunnan, segir verkfræðingurinn í spurnar- tóni og lítur til Lýðs um leið og hann hallar sér útað borðstokknum til kuls. Bára ríður undir bátinn svo hann kastast á keipa og sýpur sjó. Sannast að segja finnst Skúla nóg um þessa siglingu þó hann láti ekki á því bera. En það er eins og vaknað hafi með honum áhugi fyrir einhverju í fari þessa hispurslausa og dálítið barnalega bóndamanns: Þarna siglir hann að heiman í vaxandi veðri, rabbandi um daginn og veginn jafn rólegur og skrýtinn og hann sæti á rúminu sínu inni í baðstofu á hjali við heimilisfólkið. 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.