Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 40

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 40
Tímarit Máls og menningar Það er komið fast að roki. Báran eykst. Þeir eru nú þar á ferðinni úti und- ir eyjunum, sem straumröstin er mest. Eftir svo sem tvo bóga ættu þeir að ná uppfyrir skerjagarðinn, þangað sem sjórinn er sléttari og hættulaus hverj- um báti. En það er einmitt þessi seinasti spölur sem sker úr um fararheill þeirra félaga. Báðum mönnunum er það ljóst. Hið minnsta skeytingarleysi, eitt einasta rangt handtak, eins augabragðs röng ákvörðun gæti nú hrifið þá félaga niður í hafið og sent þá inní eilífðina. Hugul augu formannsins lesa hverja báru. Grágrænn og öskrandi rís sjórinn allt í kringum veikbyggðan seglbátinn. Straumröstin er í essinu sínu. Lögmálslaus hrynjandi æðisgeng- inna straumhnúta. — Er þetta kannski útfararsálmur bóndans á Lyngeyjum? Klár til að venda, kallar Lýður. Klár til að venda, öskrar Geiri. Olræt. Hann gefur út á fokkuskautinu, og báturinn leitar uppí vindinn. Hæglátt en öruggt snýr hann við milli freyð- andi sj óa. Það er eins og hann staldri fáein andartök til að horfa til veðurs. Hvernig lízt honum á hann? 0, hann er andskoti svartur. I sömu svipan klýf- ur hann báruna fullri ferð á næsta slagi. Geiri stendur í ströngu. Hann veröur bæði að gæta fokkunnar og ausa. Það eru miklar ágjafir. í þessari röst, í þessu veðri, verður enginn bátur varinn að ráði. Geigvænleg bára rís framundan kinnung til kuls. Bezt að bíða hana af sér, hugsar Lýður og snýr bátnum uppí storminn. Slaka á fokkuskautinu Geiri, kallar hann, og báran ríður framhjá. Báturinn þrífur skriðið af nýju. Hann titrar. Það brakar í honum. Hann sýpur sjó til hlés og kafar löður til kuls. Hann er eins og lifandi dýr, tryllt, sem veit þó för sinni stefnumið. Lýður er í essinu sínu. Um stund hefur hann týnt niÖur raulinu, nú upphef- ur hann það á nýjaleik: Og undir fríðu eyjarnar og undir fríðu eyjarnar og allvel skríður knörinn. Og mitt í þeirri kveöandi æðir að þeim seinasta himinlæva rastarinnar, meiri og verri öllum hinum. Hvernig ætli hann bregðist nú við þessari kell- ingunni? hugsar Geiri. En Lýður kallar: Hækkaðu seglið Geiri. Og á svip- stundu er stórseglið hækkað í pikkinn. Báturinn æðir skáhallt undan veðr- inu. Það sýður á keipum. Falir þandir. Skaut strengd. Báran fleygist áfram. Fái ekki þessi litli bátur hlaupið hana af sér, þá ...? Ja, þá hvað? Andartök 30
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.