Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Blaðsíða 49

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Blaðsíða 49
Morgundögg gefast upp, mætti ekki gefast upp. Hann var of þreyttur til að mögla nokkuð að ráði. Hálfsofandi lötraði drengurinn af stað niður túnið í dögginni. Hann nærri dró kaffisokkinn, þennan ólánssokk, sem gerði ekki annað en minna hann á slorugan beitningaskúrinn og hnýfilyrði karlanna. Eftir því sem nær dró þorpinu, fann drengurinn að þessi vinna var honum um megn. Kannski ekki vinnan í sjálfu sér, heldur viðmót heimsins innan þess ramma, sem hann hafði hrærst í undanfarna daga. Hann var hræddur við það umhverfi, fann sig vanmáttugan gegn því, fannst þetta umhverfi beita sig órétti, setjast að honum að ósekju, gera þær kröfur til hans, sem hann var ekki megnugur að leysa. Svo var líklegast, að hann fengi ekki græna krónu íyrir allt baslið, því flest allar línurnar, sem hann hafði beitt, höfðu komið flóknar. Nei, þetta var allt vonlaust — glórulaust. Og án þess að veita því raunverulega athygli, var hann farinn að gráta. Tárin streymdu úr augnakrókunum niður hálfóhreina vangana. Allt í einu heyrðist brestur og eitthvað blautt og volgt vætlaði um annan fótlegg hans. Það var kaffiflaskan, sem hafði brotnað. Hann hafði rekið hana í stein. Drengurinn nam staðar og varð sem ráðþrota í bili. Hann horfði á kaffiblautan sokkinn, síðan niður til sofandi þorps- ins og að lokum um öxl upp til fjallsins, þar sem sólargeislarnir teygðu sig sífellt neðar og neðar í brekkurnar eftir því sem sólin reis hærra yfir austurfjöllin, en svo tók drengurinn viðbragð. Pað var sem hann hefði tekið einhverja mikilvæga ákvörðun. Hann sveiflaði sokknum nokkra hringi yfir höfði sér, en lét hann síðan svífa út í loftið. Svo rak hann upp einhvers konar heróp, sneri úr leið og tók að skokka í átt til fjallsins og smátt og smátt jók hann hraðann. 295
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.