Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Síða 58
Unglingar í Reykjavík
Snemma árs 1976 var gerð viðamikil könnun á lífsvenjum, stöðu og við-
horfum unglinga í Reykjavík, sú allra umfangsmesta sem hefur verið
gerð hér á landi. Allir unglingar í 8. bekk grunnskólanna í Reykjavík,
sem mættu í skólann 4. og 5. febrúar 1976, fengu spurningalista og not-
hæf svör fengust frá 1420 krökkum, 746 piltum og 674 stúlkum, en það
voru 92% allra 8.bekkinga í Reykjavík. Það voru sjö íslenskir nemend-
ur við sálfræðideild Árósaháskóla sem gerðu athugunina undir leiðsögn
Dr. Edvard Befring, núverandi rektors norska sérkennaraháskólans,en
hann var þá prófessor við sálfræðideild Arósaháskóla. Nemendurnir
sjö skrifuðu síðan hver sína ritgerð þar sem þeir unnu úr ýmsum
þáttum könnunarinnar.
Ritgerðirnar voru fjölritaðar í takmörkuðu upplagi og að hluta dreift
til aðila, sem hafa með mál unglinga að gera. Ahugafólki má benda á, að
þær má lesa á Háskólabókasafni og einhverjar þeirra munu enn vera til
sölu í Bóksölu stúdenta. Hér á eftir veita þrír úr hópnum fyllri
upplýsingar um gerð og niðurstöður athugunarinnar og sitthvað fleira,
þeir Asgeir Sigurgestsson, Jónas Gústafsson og Hugo Þórisson.
Auk þeirra hafa eftirtaldir skrifað eða eru að skrifa ritgerðir, sem
byggja á könnuninni: Einar Hjörleifsson skrifaði um einelti og stríðni í
skólanum, Andrés Ragnarsson skrifaði um aðstæður þeirra, sem verða
undir í skólanum, Pétur Jónasson skrifaði um unglinga og afbrot og
Brynjólfur Brynjólfsson vinnur að ritgerð um ávana- og fíkniefna-
neyslu.
Yfir kaffi og prýðilegum pönnukökum sem Jónas bakaði var fyrst
rætt um hvað rak hópinn til að taka þetta stóra verkefni að sér.
Jónas Markmiðið með rannsókninni var annars vegar að skrifa loka-
prófsritgerðir og hins vegar að fá upplýsingar um vanræktan
hóp með það fyrir augum að bæta aðstöðu hans.
Ásgeir Við Hugo vorum búnir að gera athugun á unglingum áður,
ásamt tveim öðrum. Það var 1974 sem við gerðum rannsókn á
fjórum stöðum á landinu, Breiðholti, Garðabæ, Olafsvík og
304