Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Qupperneq 109

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Qupperneq 109
Ævintýr í Moskvu (það er á við meðal hesthús — því ber ekki að neita, sagði Símon óþolinn), benti á þjóðminjasafnið, benti á söluhallirnar og kirkju heilags Basílíusar. . . (330. bls.). En í Landnámuútgáfunni segir: Ekillinjn] yfirgaf varðmennina og staulaðist í áttina til hans. Hafði hann eftir allt saman misskilið þvoglið í manninum málgefna?. . . Kreml! hrópaði hann og benti á múrinn, turnana, en sérstaklega grafhýsið. Því var Símon þegar kunnugur, tautaði óþolinmóður: Það er á við meðal hrossakofa heima, það segirðu satt, nema hvað það vantar á það risið. Ekillinn sat við sinn keip, — bandaði í áttina til Minjasafnsins, Söluhallanna; gat þess, að dómkirkju, sem verið hafði, hefði átt heilagur Basilíus. (203.—204. bls.). Hér er kúskurinn í lokin látinn geta þess að Basilíusdómkirkjan sé aflögð sem guðshús og er það í samræmi við það ásteytingarefni margra að í Sovétríkjunum eigi trúariðkanir undir högg að sækja. Svipuð vaxandi hneigð kemur fram í því að á kránni spyrja menn Símon Pétursson að því hver sé tilgangurinn með hringsóli hans umhverfis Kreml „uden Ledsagelse" eins og segir í dönsku gerðinni (86. bls.). I Helgafelli er notað lýsingarorðið „fylgdarlaus“ (332. bls.), en í Landnámuútgáfunni orðasambandið „án lögfyrirskipaðrar leiðsagnar“ (209. bls.). Þar virðist enn skírskotað til þess að Sovétríkin séu lögregluríki. Nokkur fleiri dæmi af sama toga mætti telja en hér verður látið staðar numið. Þessi smásaga Gunnars á sér rætur í heimsóknum þeirra skáldanna, Davíðs Stefánssonar og hans, til Moskvu. Þær einkenndust á sínum tíma af vinsamlegri forvitni um þjóðfélagslegar breytingar og tilraunir sem fylgdu byltingunni. Breytingar Gunnars á sögunni eru í samhljómi við breytta afstöðu margra borgaralegra manna í Vestur-Evrópu á því skeiði er leið frá fyrstu útgáfu sögunnar til hinna síðustu. Frásögnin þokast frá hlutlægni, sem vaxin var af ákveðnum skilningi og samúð með málstað byltingarmanna, til augljósrar hneigðar, er sprottin var af þeirri tortryggni og andúð á Sovétríkjunum og kommúnismanum sem pólitískri stefnu er ríkjandi var á Vesturlöndum áratuginn áður en síðasta útgáfa sögunnar birtist. 355
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.