Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Page 112
Umsagnir um bækur
POLLI ER EKKERT BLÁVATN
Það sem hér fer á eftir eru vangaveltur
um bókina Polli er ekkert blávatn eftir
Andrés Indriðason (Mál og menning
1981). Ætlunin var að reyna að gera
bókinni þannig skil að þeir sem velja
bækur handa börnum og lesa fyrir börn
gætu haft einhver not af.
Sagan fjallar um 10 ára Reykjavík-
urstrák, daglegt líf hans heima og í skól-
anum. Hún er 203 blaðsíður prentuð
með sæmilega stóru letri en það er þétt
prentað á síðurnar og engar myndir.
Sögunni er skipt í 32 kafla þannig að
hver kafli er tiltölulega stuttur (6 — 7 bls)
og gerir það bókina auðveldari aflestrar,
en margir lesendur eru væntanlega ný-
lega orðnir læsir. Sá aldur sem hún
höfðar til er u.þ.b. 7—12 ára. Mér
finnst því galli að hún skuli ekki vera
myndskreytt.
Þetta er önnur bók Andrésar en sú
fyrri, Lyklabarn, fékk barnabókaverð-
laun MM 1979. Hann heldur hér áfram
á sömu braut, tekur sér stöðu við hlið
barna og deilir á foreldra sem hafa
brenglað gildismat og hugsa ekkert um
þarfir barna sinna. Það er þó miklu
léttara yfir sögunni um Polla. Einkum
eru það kaflarnir sem gerast í skólanum
sem hleypa svolitlu fjöri í leikinn án
þess þó að verða bara krydd sem skiptir
engu máli.
Sagan
Sagan hefst þar sem Polli hefur ákveðið
358
að fara að heiman. Pabbi hans hefur
skipað honum að snauta út í rifrildis-
kasti milli þeirra foreldra hans. Polli
ætlar að láta þau fá áhyggjur af sér og
vita hvort þau hætta þá ekki að rífast sí
og æ. Hann hefur þó ekki erindi sem
erfiði því þegar hann kemur heim seint
um kvöld eftir töluverða hrakninga þá
er mamma hans flutt að heiman með
litlu systur hans. I næsta hluta er sagt
frá hvernig lífið gengur hjá Polla sem
býr nú einn með pabba sínum en
heimsækir mömmu eins oft og hann vill,
bæði á hárgreiðslustofuna þar sem hún
vinnur og heim til ömmu sem hún hefur
flutt til.
Meginástæðan fyrir brottflutningi
mömmu er sú að pabbi er í vafasömum
félagsskap við Geira Pé. Sá er í sigl-
ingum og pabbi sem er leigubílstjóri
selur fyrir hann á svörtu og bruggar að
auki.
Eftir að mamma er farin drekkur
pabbi með Geira og stendur auk þess í
þessum ólöglega bransa sem endar með
því að pabbi missir bílprófið og þar með
atvinnuna. Nú syrtir í álinn fyrir Polla
því á sama tíma fer mamma til Spánar
með Systu og er í burtu nokkra mánuði.
Bót í máli er skólinn því Hallgrímur
kennari er frábær og það er sagt frá
skemmtilegum uppákomum þar sem
mótvægi við erfiðleikana heima fyrir.
Þó lendir Polli í vandræðum í skólan-
um vegna þess að hann er viðkvæmur
fyrir því að krakkarnir viti of mikið um
ástandið heima hjá honum. Þessar úti-