Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Síða 118

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Síða 118
Tímarit Máls og menningar „Sætu strákarnir" sem sagan er við kennd eru aðvífandi menn sem ganga í augun á sögukonu og fara oftar en ekki á fjörurnar við hana, og þá er viðburður ef hún stenst þá. Afstaða stúlkunnar í bókinni til þess- ara „sætu stráka" og sjálfrar sín hafa mjög farið fyrir brjóstið á kynsystrum höfundar meðal ritdómara. Er þá einatt vitnað til orðaskipta hennar og Homm- ans varðandi „strák“ sem hún hefur boð- ið heim: „Eg vona að hann sé farinn," segi ég. „Annars neyðist ég sjálfsagt til að sofa hjá honum í nótt. Ég nenni ekki að sofa hjá neinum núna.“ „Því þá vera að því?“ spyr Homminn og horfir undarlega á mig. „Þú getur þá bara sagt nei.“ Já auðvitað get ég það,“ segi ég, „en þú veist hvernig þetta er. Það er ekki alltaf svo gott að segja nei, gæinn býst kannski við ein- hverju af manni, það er einsog maður sé búinn að Iofa ein- hverju. Það er svo kjánalegt að segja nei, ekki síst ef maður bauð þeim með sér heim.“ (90) Þrátt fyrir skynsamlegt svar Homm- ans þess efnis að frelsi í kynferðismálum sé í því fólgið að segja nei ekki síður en já og að hún eigi líkama sinn sjálf, kem- ur í ljós nokkrum stundum síðar að hún er enn við sama heygarðshornið. Höfundur á auðvitað fullan rétt á því að leggja sögu sína í munn hvers konar persónu sem er, að því tilskildu að það henti og hæfi lögmálum sögunnar. Aður en við leggjum mat á það atriði skulum við huga að sjálfslýsingu þessar- ar persónu. Hún segist vera hugmynda- og framkvæmdalaus (7), vanta viljastyrk (9), sljó og heilastarfsemin í lágmarki (17), ístöðulaus og fyrirhyggjulaus (56), o. s. frv. Fram kemur að hún hefur ekki alltaf verið þannig, áður var hún virk, hress og áhugasöm (17, 72), en ekki er sagt hvað breytingunni veldur. Það eina sem lesandi getur ráðið í af sögunni, og það með talsverðum líkindum, er að or- sakarinnar sé að leita í sambandi stúlk- unnar við skrifstofumanninn. En eins og stúlkan bælir sársaukann innra með sér víkur höfundur sér undan því að takast almennilega á við niðurlægingu aðalpersónunnar. Því kannski er þetta í raun saga um bældan sársauka, ekki um sæta stráka. Satir strákar kemur víða við og því er brugðið upp nokkuð glöggri mynd af vissum hliðum Reykjavíkurlífs sem að vísu eru hættar að vera nýnæmi í ís- lenskum skáldsögum. Bókin er víða lip- urlega skrifuð, til dæmis verður heimsóknin til skáldsins og persónulýs- ing hans meinleg og sannfærandi. Fleiri dæmi mætti nefna: Vorið tefur fyrir mér næsta morgun. Ég tek ekki eftir því fyrst í stað, svaf yfir mig og er því sein fyrir. Svo hóar í mig tré, loðið af grænku og bendir mér á sig og heiminn allan. Uppúr því hægi ég á mér. Það er engu líkara en náttúran hafi á einni nóttu umbreyst í óðan málarasvein og slett litum hvar sem hún kom því við. Himinninn er sóllýstur og skærblár með örfáum fáránlega hvítum skýjum. (11) En þrátt fyrir góða spretti hér og þar er sagan undarlega ómarkviss. Höfundur gengur ekki á hólm við neitt af viðfangs- 364
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.