Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Side 120

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Side 120
Tímarit Máls og menningar hús. Minna máli skiptir að eiga ánægð og frjálsleg börn enda verða börn þeirra óþyrmilega fyrir barðinu á þessu brjál- æðislega kapphlaupi um lífsgæðin. Þrátt fyrir pot og príl foreldra Dísu er ekki merkjanlegt að þau kunni að njóta þeirra lífsgæða sem þau afla með ærinni fyrirhöfn. Þvert á móti eru þau óánægð og alltaf í leit að einhverju meira og flottara. Og það er ekki að sjá að skiln- ingur, væntumþykja og tillitsemi ein- kenni heimilislíf þeirra. Eina skiptið sem pabbi Dísu er virkilega ánægður er þegar hann tilkynnir henni raðhúsa- kaupin í Mosfellssveit. Þá spígsporar hann um stofuna brosandi út að eyrum og getur í hvorugan fótinn stigið af monti. Og þegar hann hefur útlistað öll flottheitin fyrir Dísu segir hann: „Þetta er flott! En það verður vinna. Mikil vinna.“ (bls.127) Og þá er pabbi aldeilis í essinu sínu. Algjör andstæða foreldra Dísu er Guðfinna, nágranni þeirra í blokkinni. Hjá henni á Dísa athvarf þegar eitthvað bjátar á. Guðfinna er notaleg eldri kona sem býr ein og vinnur ekki úti. Hún hefur því nægan tíma til að líta til með börnunum. Reyndar hefur Guðfinna jafn mikla þörf fyrir félagsskap barn- anna og þau fyrir umhyggju hennar. Þegar Árni, dóttursonur Guðfinnu, dvelur hjá henni vikutíma kynnist Dísa nýjum viðhorfum um samband foreldra og barna. Arni, sem er jafnaldri Dísu, nýtur virðingar og jafnréttis hjá foreldr- um sínum og réttur hans sem fullgildrar manneskju er virtur. Dagurinn sem Dísa fer í ferðalag með Guðfinnu, Arna og pabba hans er henni mikils virði. Þennan dag er Dísa tekin sem jafningi hinna fullorðnu en slíku hefur hún ekki átt að venjast. I sambandi Dísu og for- eldra hennar er Dísa alveg réttlaus. En með sambandi Árna við foreldra sína vill höfundur sýna hvernig koma á fram við öll börn. Þau eiga að njóta virðingar og tillitssemi engu síður en fullorðnir. Aðalpersónan í Undir regnboganum eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur (1980) er Dagga. Hún er ellefu ára og á heima á Breiðuvík sem er sjávarþorp norðan- lands. Þegar sagan hefst er Birna, móðir Döggu, á sjúkrahúsi og Dagga á að fara til Maríu móðursystur sinnar í Reykjavlk. Heimili Döggu á Breiðuvík er sérlega snyrtilegt. Mömmu Döggu er fyrir öllu að allt sé fínt og fágað á heimilinu og „hún snoppungaði þá sem með um- gengni sinni reyndust þess óverðugir að dvelja þar innan dyra“ (bls.5). Pabbi Döggu, Sigurður, er lengst af á sjó, enda þarf hann að þéna mikið, bæði fyrir heimilinu og afborgunum af nýja sum- arbústaðnum. Þrátt fyrir góð efni og snyrtimennsku virðist lítið fara fyrir lífshamingju á þessu heimili og minn- ingar Döggu frá dvöl í sumarbústaðn- um eru bundnar við skammir og rifrildi foreldra hennar (bls.6—7). Dagga hlakkar ekki til að fara til Reykjavíkur því „þar er allt vitlaust, meira að segja voru þar þjófar og eitur- lyfjasjúklingar út um allt“ (bls. 15). En suður fer hún og á Brekku, heimili móðursystur sinnar, kynnist hún öðr- um lífsviðhorfum en hún á að venjast. Á Brekku búa María og Karl maður henn- ar, Dagný amma Döggu og krakkarnir Ella, Magga, Fannar, Fema og Flóki. Einnig er nágranni þeirra Runki næst- um því eins og einn af fjölskyldunni. Þrátt fyrir þennan fjölda er hér ekki sífellt nudd og skammir eins og heima á Breiðuvík. María situr róleg og hlustar á börnin sín þótt allt sé á tjá og tundri í kringum hana og fullt tillit er tekið til þess sem börnin hafa fyrir stafni. 366
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.