Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 41

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 41
Heimspekin og Sigurdur Nordal grískra heimspekinga er önnur en orðræðulist skólaspekinga á miðöldum, og margt er ólíkt með heimspekilegri orðræðulist í Þýskalandi, Frakklandi og í Bretlandi. Og sama á við ef við horfum til Norðurlanda, heimspeki- hefðir Dana, Norðmanna, Svía og Finna eru verulega frábrugðnar hver annarri. Þetta ber okkur ævinlega að hafa í huga er við fjöllum um íslenska heim- spekinga. Jafnframt ber okkur að hafa hugfast að í heimspekilegri orðræðu skipta ekki einstakar kenningar eða hugmyndir yfirleitt meginmáli heldur hitt hvernig rætt er um efnið, á hvaða forsendum og með hvað í huga. Fleimspeki samanstendur ekki af neinum tilteknum hugmyndum eða kenn- ingum, og hún snýst ekki um nein ákveðin efni öðrum fremur (nema ef vera skyldi um samband manns og heims, og í því sambandi um náttúruna og hugsanlegan æðri veruleika). Heimspeki er fólgin í því að móta heilstæða orðrœðu um heiminn, orðræðu sem tengir saman hugmyndir og kenningar, spinnur vef utan um ótal hugsanir um veröldina, heldur þeim saman svo unnt sé að skýra þær og rökræða. Hugsanir fólks um náttúruna, æðri máttarvöld og sjálft sig eru oftast í lausu lofti. Heimspeki er öðru fremur sú list að grípa þær á lofti og festa í orðræðu þar sem unnt er að skýra þær og tengja saman, eða — ef þær eiga það skilið — að stinga á þeim eins og sápukúlum. Til þess að spinna orðræðu sína beitir heimspekingurinn ákveðnum brögðum; og hér kemur sérviskan til sögunnar. Heimspekingurinn vill móta heilstaða orðræðu um heiminn. Þar með gerir hann sig sekan um brot á einni reglu sem virðist í raun eiga við flestar ræður manna um heiminn, reglu ósamkvœmninnar. Mannfólkið skeytir yfirleitt ekki um mótsagnir í hugsunum sínum og orðræðum, nema þegar þær ógna lífi þess og jafnvel ekki þá. Það vill fullnægja löngunum sínum, hvötum og þörfum, og takist slíkt ekki (eins og sjaldnast gerist því að maðurinn þráir hið óendanlega), kemst fólk ekki hjá alvarlegum mótsögnum sem reyna á heilindi þess og samkvæmni. Ráði það ekki fram úr þessum mótsögnum varpar það sér oft skilningsvana í náðarfaðm einhverrar trúar. Heimspekingurinn stundar því orðræðulist sína gegn straumnum. Verk- efni hans kann að virðast álíka vonlaust og að láta tímann líða afturábak. Við þessu bregðast heimspekingar með ýmsum hætti og er ekki ætlunin að ræða það almennt hér, heldur koma að því hvernig Sigurður brást við og mótaði sína heimspekilegu orðræðu. Hann brást við með því að leita skýringa á þeirri lifandi mótsögn sem maðurinn er og reyna að finna leiðir til lausnar á henni. Þetta stef tekur á sig margar myndir í verkum Sigurðar. Ein merkust þeirra er í fyrirlestrunum Einlyndi og marglyndi sem hann flutti í Reykjavík 31
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.