Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 45

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 45
Heimspekin og Sigurður Nordal þessarar keðju virðist fólk losna einungis þegar það sefur, veikist eða ieitar á náðir vímugjafa sem enn auka á einsemd þess og firringu í fullu samræmi við þann lífsstíl sundurgreiningar sem tækninni fylgir. Hvernig getur heimspekin brugðist við þessum hugsunarhætti öðruvísi en með því að minna sífellt á þau verðmæti sem í húfi eru og hætta er á að hverfi úr sjónmáli, ef menn yfirvega ekki sífellt líf sitt og menningu? Þetta gerði Sigurður Nordal og hefði hans ekki notið við má ætla að við værum mun lengra komin í því að týna sjálfum okkur en ella. Það er raunar umhugsunarvert hversu fljótir Islendingar hafa verið að tileinka sér tækni- hyggjuna og þá sjálfdæmishyggju sem henni er nátengd. Ein hugsanleg skýring er sú hversu veikar og óþroskaðar menningarhefðir okkar hafa verið, að undanskyldum örfáum greinum bókmennta eða skáldskapar. Hefðaleysi á sviði hugmynda og stjórnunar, samfara einföldum búnaði í atvinnugreinum og húshaldi, virðist hafa orðið sá grunnur sem gerði okkur kleift á örskömmum tíma að nýta okkur aðfengna tækni og þann hugsunar- hátt sem er fylgifiskur hennar. Ef til vill má segja að Islendingar hafi orðið svo skjótir til að laga sig að tæknihyggjunni vegna þess að þeir þurftu aldrei að leggja á sig að hugsa menningu sína til grunna, yfirvega tilveru sína á skipulega og agaða fræðilega vísu. Slíkt þurfa þær þjóðir einar að gera sem mótað hafa um aldir eigið stjórnarfar, réttarkerfi, listir og menntun. Þetta virðist Sigurði einmitt hafa verið ljóst og þess vegna brýnir hann fyrir okkur að leggja rækt við arfleifðina, reyna að finna í henni það sem dugar okkur til að vera enn við sjálf í hringiðu nútímaþjóðfélaga. Kenningu sína reisir Sigurður einkum á þeim greinarmun sem hann gerir á milli þess sem hann kallar siðun (eða tækni) og menningu (kultur). Þessi greinarmun- ur, sem kemur víða fyrir í ritum hans bæði beint og óbeint, er greinarmunur á hinu innra og hinu ytra, hinu áþreifanlega og hinu andlega, hinu mælan- lega og hinu ómælanlega, hinu hlutlæga og hinu huglæga. Hvarvetna vakir fyrir Sigurði að minna menn á mikilvægi og sérstöðu hins andlega, þess sem ekki verður vegið eða mælt, ekki tölum tekið eða þreifað á. Hinn andlegi þroski og hin andlega reynsla er það sem mestu skiptir, það sem gerir mannlífið nokkurs virði. Sigurður hefði tekið undir með T.S. Eliot, þegar hann segir: „Culture may even be described simply as that which makes life worth living.“ M. ö. o. menning er það sem gerir lífið þess virði að lifa því. Svo mikilvægur sem þessi greinarmunur er og lærdómsrík sú áminning sem Sigurður gaf okkur, þá dugar heimspeki hans ekki til þess að móta þá heilstæðu orðræðu sem þarf til að skýra veruleika okkar, ná utan um þær þversagnir sem bærast í menningunni. Veikleikinn leynist, að mínum dómi, í þeim greinarmun sem Sigurður leggur til grundvallar á tækni annars vegar og eiginlegri menningu hins vegar. Með þessum greinarmun er nefnilega 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.