Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 71
Hugmyndafrxbi Sigurdar Nordal nasismans, þrátt fyrir þessi hugmyndatengsl við þann jarðveg sem nasism- inn óx úr. Sigurður Nordal heyrði til þessum straumi á 3. áratugnum og var jafnvel áhrifamesti talsmaður hans. En þegar rætt er um skyldleika við nasíska hugmyndafræði, sem hefur verið viðkvæmt mál allt frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, verður að fara með gát. Sigurður aðhylltist ekki mér vitanlega mannkynbótafræðina, og rifja má upp að hann og fleiri borgara- legir menntamenn höfðu samúð með samfylkingarstefnu sósíalista á 4. áratugnum. Sigurður leit jafnvel Sovétríkin fremur jákvæðum augum, eins og fram kemur í inngangi hans að útgáfu Máls og menningar á Undir rdðstjórn eftir Hewlett Johnson árið 1942. Undirrótin að skoðunum Sigurð- ar Nordal hefur án efa verið einhvers konar mannúðarstefna eða að minnsta kosti þjóðhollusta. Eins má geta þess að þjóðernishyggjan á 3. áratugnum var að mörgu leyti eðlilegt framhald af sjálfstæðisbaráttunni. Ef leggja á dóm á bókmenntafræði Sigurðar held ég að hún hafi þann meginkost að vera frjó og víðfeðm. Varðandi áróður hans fyrir æðri gildum mannlífsins, andlegum verðmætum og þess háttar, held ég að segja megi að þau eigi meira erindi til okkar í dag heldur en á fyrstu áratugum aldarinnar þegar þjóðin var að skríða úr moldarkofunum. Athugasemdir 1. Fornar dstir, 2. útgáfa 1973, bls. 160 (í eftirmála rituðum 1949). Skoðunum Sigurðar á samhenginu í íslenskum bókmenntum og bændamenningunni má kynn- ast í inngangi hans að íslenskri lestrarbók (1924), „Islandsk kultur“ í Ord och bild 1927, „Bókmenntaþáttum" í Vöku 1928, greininni „Þýðingar" i Skírni 1919 og í Utsikt over Islands litteratur i det 19. og 20. drhundre (Oslo 1927). í síðastnefndu riti segir hann að íslenskar nútímabókmenntir eigi engan rétt á að rjúfa samhengið með því t. d. að hætta stuðlasetningu. „Skulde vár litteratur i sprog og stil fjerne sig fra tidligere Irhundrers, vilde den ogsá fjerne sig fra oss. Men vi har ikke rád til slikt“ (44). Sbr. íslenzk lestrarbók bls. XXyiII-XXXI. 2. „Islenzk yoga“ og „Oræfi og Oræfingar“ eru endurprentaðar í Aföngum I (1943). Hugmynd Sigurðar um þroskandi áhrif erfiðs landslags liggur einnig að baki þeim bókum sem Guðmundur Finnbogason skrifaði um Island og íslendinga. Guðmundur vildi kanna hvernig landið (og veðrið o. s. frv.) hefði mótað þjóðina og „þjóðareðlið". I hugmyndasögu eru slíkar kenningar (eins konar lamarckismi í þjóðasálfræði) raktar til bókar Thomas H. Buckle, History of Civilization in England I—II (1857—61), sbr. Tore Frángsmyr: Framsteg eller förfall. . . (Stock- holm 1980), bls. 180-84, og til hugmynda Montesquieus um tengsl milli stjórnarfars og veðurfars (eða þjóðarsálar og landfræðilegra aðstæðna). Ragnar E. Kvaran skrifaði skeleggar greinar á móti þjóðernissinnaðri íhaldssemi og á móti nýju rómantíkinni, og er „Flóttinn“ í Iðunni 1928 einna best þeirra. 61
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.