Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 76
Tímarit Máls og menningar
margir telja eitt fárra íslenskra skálda sem hægt sé að bendla við nýróman-
tík. Við lestur kaflans koma einkum tvö ljóð Jóhanns upp í hugann; hér er
það „Bikarinn“:
Haustið hefur reynt alt, fundið alt, og svo tæmir það alla reynslu lífsins í
einum teyg, og deyr um leið . . . Eg var unglingur þegar ég bar bikarinn að
vörum mér, en öldungur þegar ég hafði drukkið hann í botn. (119)
Og svo ljóðið „Sorg“ sem tengist Hel ekki síður hugmyndalega:
Og sólin og stjörnurnar halda áfram hringferð sinni og sjá ekki að kynslóð
kemur á eftir kynslóð. En guð hlustar eftir hverju visnuðu blaði, sem hrynur,
og aldrei hafa tvö tár, sem hrukku til jarðar, nokkurn tíma látið eins í eyrum
hans. (120)
Náttúrulýsingar og umhverfi endurspegla líka hverju sinni hugarheim Alfs
og þær hræringar sem þar eiga sér stað. Lítum á upphaf kaflans þar sem Alfi
verður í lokin ljós blekking lífs síns:
Á eftir þessu hausti kemur ekkert sumar. I þessum gráköldu næðingum
visnar ekki einungis allur gróður, heldur kell líka ræturnar í sverðinum, og
hvert fræ í moldinni kulnar. Aldrei framar getur kviknað líf á hnettinum.
(135)
Frásögnin hnitast öll utan um Alf frá Vindhæli. Hann er hvort tveggja í
senn, sögumaður og söguhetja og segir frá í fyrstu persónu. A þessu verður
breyting í síðasta kaflanum sem samnefndur er sögunni, þar segir alvitur
söguhöfundur frá í þriðju persónu. Þetta stílbragð fjarlægir lesanda Alfi, um
leið og Alfur fjarlægist sjálfan sig.
III
Þó að Hel fjalli fyrst og fremst um leit mannsins að lífsskilningi, þá er hún
líka þroskasaga Alfs frá Vindhæli. Það er því eðlilegast að fylgja söguþræð-
inum til þess að átta sig á þróuninni í lífsstefnu hins marglynda manns.
Upphaf sögunnar sýnir okkur uppgjör Alfs við nánasta umhverfi sitt,
hvernig hann slítur af sér alla fjötra, hvort sem þeir eru úr járni eða rósum.
Frelsið kallar á hann og biður þess að verða notað, og að lokum yfirgnæfir
það allt annað:
Ég leita gæfunnar, og ég finn hana þegar ég missi hennar, því sjálf leitin er
gæfan. Boðorð hennar er: leitið og finnið ekki. Gæfan er ekki til þess að eiga
66