Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 78
Tímarit Máls og menningar ekki kærir sig um það; og við það myndi hún missa hluta af sínum karakter. Og hvað yrði unnið með því? Sælir eru einfaldir, sagði Grímur Elliðagrímur áður en hann var fluttur á hælið, í skáldsögu Gunnars Gunnarssonar. Þetta veldur að sjálfsögðu efasemdum hjá Alfi um gildi eigin þekkingarleitar: Hversvegna vil ég kafa hvern hy! og sjá í gegnum hvert fjall? Því hylurinn er ekki framar hylur, þegar hann hefur verið kafaður til botns. (116) Álfur hefur dregið þá ályktun af sambandinu við Dísu að einstaklingur- inn sé í eðli sínu jafnmáttugur og alheimurinn. I þessu felst m. a. að hver og einn verður að finna lífinu tilgang eftir því sem hugur hans býður. Og hugir tveggja persóna geta aldrei runnið saman. Maðurinn er alltaf einn. Skyld- leikinn við existentialismann er greinilegur og kemur líka fram í múrskipt- ingunni og skoðunum Álfs á því hvað sé raunverulegt líf. Þar er boðað að maðurinn endurskoði líf sitt og geri sér grein fyrir sérstöðu sinni, takist á við hana, þori að rísa upp og taka ákœttu, sem er grundvöllur þess að hægt sé að tala um raunverulegt líf. Allt eru þetta atriði sem existentialistar hafa lagt mikla áherslu á. Eins og oft þegar maðurinn kemst í tilvistarkreppu fær sú stefna byr undir báða vængi er boðar að vænlegast sé að reyna að höndla nútíðina sem mest og best, eins konar lífsnautnastefna. Þar sem engin algild sannindi eru til sem eru þess virði að leita að, er best að lifa hátt og stutt fremur en innantómu langlífi. Með tiltækum meðulum er reynt að rjúfa fjötra hvers- dagsins, boð og bönn, og hefja sig til flugs inn á huldar brautir. Þessar hug- myndir koma heim við nýrómantíkina sem var áberandi í Kaupmannahöfn á þeim árum er Sigurður Nordal dvaldi þar við nám. Rótina má kannski rekja til Nietzsche og enginn vafi er á því að Sigurður hefur orðið fyrir áhrifum af kenningum hans eins og flestir aðrir, um það ber Hel ótvírætt vitni. Eftir viðskilnaðinn við Dísu hellir Álfur sér út í botnlausan ólifnað. Það er ekki einföld nautnahyggja sem leiðir hann til þess, miklu heldur gríðarleg örvænting hins lífsleitandi manns: Eg er dæmdur til þess að þrá sífelt ástríður hins dauðadæmda og þyrsta í eitr- aðar veigar. Eldur haustsins brennur í æðum mér, og ég get hvergi framar unað. (120) Togstreita andstæðra afla er grundvallareinkenni á hugsunarhætti Alfs. Þetta nefndi Sigurður Nordal marglyndi í fyrirlestrum er hann flutti í Reykjavík 1918. Þessi hugmynd hefur því verið að brjótast í honum á þeim árum er hann semur Hel, 1913 — 1917, enda er Alfur hinn dæmigerði marg- lyndi maður: 68
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.