Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 79
Leit að lífsskilningi Eg er eins og vígvöllur, þar sem tveir flokkar berjast, og ég ræð ekki, hvorir sigra. (124) Hin andstæðu öfl eru af ýmsu tagi; í afstöðunni tii konunnar sem ber hið táknræna nafn Auðna takast á tilfinningar og skynsemi. Alfur er heillaður af Auðnu, en skynsemin hvíslar því að honum að hún sé rétt eins og hver önnur kona — og það nægir ekki hinum drambsama Alfi. I þessu tilfelli er hann sekur um að hafa búið sér til goðkynjaða, upphafna kvenmynd — og þegar draumsýn hans stangast á við þá staðreynd að Auðna er aðeins mann-» leg hrekkur hann við, vaknar eins og af værum blundi og hverfur frá henni. Þetta minnir á hversu skammt er milli draums og veruleika í sögunni og að sekt Alfs er m. a. fólgin í því að má út þau mörk. Af öðrum toga er tvíhyggjan sem fram kemur fyrr í kaflanum um Auðnu, barátta góðra og illra afla í náttúrunni: Er það undarlegt þótt mönnum finnist þú ekki vera eitt afl, heldur tvö, guð og djöfullinn . . . (121) Þótt þessi tvíhyggja einkenni einnig mannlífið, eins og Sigurður boðar síðar, þá er ekki hægt að tala um að í sögunni eijþst við gott og illt nema að tak- mörkuðu leyti. I sameiningu leitast þeir Alfur og höfundur við að kynna hinar ýmsu lífsstefnur án þess að einhlít illska eða gæska komi til tals. I þættinum Óravegir eru tvær dæmisögur sem varpa hvor um sig ljósi á persónu Alfs. Hin fyrri gerir Alfi að velja milli níu konungsdætra, sem hver er annarri fegurri. Hann kveðst frekar vilja fá að dreyma um þær allar en kjósa eina: Síðan er ég landflótta og förumaður á leiðum jarðarinnar, en ek í purpura og gullreið um óravegu draumanna. (125) I dagdraumunum fær Álfur allar óskir sínar uppfylltar, þess vegna dvelur hann þar frekar en að takast á við harðneskju og baráttu hversdagsins. Hin sagan er um örn sem missir báða fætur sína í dýraboga og er því dæmdur til þess að fljúga hvíldarlaust þar til yfir lýkur. Vængir hans öðlast ótakmarkað flugþol og hann hefur farið yfir hvern blett jarðarinnar. Og örninn fótalausi miklast yfir frelsi sínu, valdi og víðsýni og fyrirlítur þá er á hreiðrum kúra. En í lokin er oflæti arnarins slökkt með svofelldum athuga- semdum: En er ekki eitt hreiður, sem þú átt, stærra en jörðin öll, sem enginn getur eignast? Ég er eins og konungur hundrað hersveita, sem á ekkert hjarta, sem ann honum. Brjóst mitt frýs í sólarhitanum, af því ég á engan til að verma. (127) 69
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.