Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 114
Tímarit Máls og menningar leika breytinganna. Fullyrt er að nýju málararnir séu þjóðlegir. Að verk þeirra beri einkenni þeirra landa sem þau eru unnin í. Listfræðingar telja sig geta fundið sameiginleg einkenni meðal ungra listamanna einstakra þjóð- ríkja eða sameiginleg þemu í verkum þeirra. Það er í vissum skilningi misvísandi að tala um nýja málverkið og kannski er sú misvísun viljandi tilkomin. Margir halda því fram að allt standið í kringum nýja málverkið sé allsherjar samsæri: safnara, galleríseigenda, umboðsmanna og listfræðinga. Sjálfsagt er eitthvað til í því. Endurvakning málverksins er mikið hagsmunamál fyrir þá sem hafa lífsviðurværi af listasögunni. Gengi málverka fortíðarinnar gæti fallið ef séð væri fyrir enda málarahefðarinnar. Auk þess er málverkið seljanlegra en loftkenndar hug- myndir þeirra sem fylgdu þeirri sveiflu sem fyrir var, konseptinu. Mál- verkið er seljanlegri vara jafnvel þó stundum sé málað með lélegum litum á ódýrt efni í stærðum sem eru ekki stofutækar. Plott eða ekki plott þá hefur endurvakning málverksins orðið þáttur í að blása lífi í listina eftir nokkurt stöðnunartímabil jaðartilrauna módernism- ans. Eftirhermulistin verður hvati að lífi. Hversu lengi það nýja í því nýjasta endist er erfitt að geta sér til um en áherslan virðist vera að færast frá niðurrifi til uppbyggingar. Þessvegna er dálítið misvísandi að tala um „nýja málverkið", því hér er ekki aðeins um að ræða málara og málarahefðina, heldur myndlistarmenn og myndiðkun almennt. Þó að listiðkunin sé uppbyggileg fremur en efa- bundin þá þýðir það ekki nauðsynlega þróun frá gagnrýninni þjóðfé- lagsafstöðu til samþykkis á núverandi samfélagsfyrirkomulagi. Fremur er að listin sem stofnun er tekin sem gefin. Auðvitað er morðtilraunin á módernismanum skilgetið afkvæmi hans. Þetta er einskonar misheppnað föðurmorð. Það sem er nýtt er að þurfa ekki nauðsynlega að fylgja því nýjasta, þurfa ekki að vera á undan eða breyta gangi (lista)sögunnar. I vissum tilfellum efla listiðkendurnir kraft sinn með því einfaldlega að setja markið lægra. Það er í sjálfu sér gefandi að fást við myndlist, syngja dansa og segja sögu (þessu höfðu avant-gardistarnir gleymt, enda búið að gera þetta áður). Sköpunargleðin verður að bæta fyrir það sem upp á vantar í tækni. Þessa afstöðu má líta á sem fullkomna huglægni þar sem óhátíðlegt metnaðarleysi kemur í stað þess hlutlæga valds sem listamenn eignuðu iðju sinni. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt að kalla sig, „geníala dilitanta“. I vissum skilningi er þetta uppgjöf eða hámark firringarinnar. Uppgjöfin er ekki fyrst og fremst gagnvart listasögunni og mælikvörðum listarinnar sjálfrar heldur gefast listamennirnir upp fyrir því sem með nokkrum ein- földunum mætti kalla fagurfræði vörunnar. Þeir gera ekki uppreisn gegn of- 104
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.