Fréttablaðið - 30.04.2015, Qupperneq 18
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Skattskrár vegna álagningar 2014 og
virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins
2013 verða lagðar fram 30. apríl 2015
Skrárnar, sem sýna álagða skatta og gjöld á gjaldendur í hverju
sveitarfélagi, eru lagðar fram á viðkomandi starfsstöðvum
ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum dagana
30. apríl til og með 15. maí 2015.
Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr.
laga nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988.
30. apríl 2015
BMW 320i
Nýskr. 06/10, ekinn 69 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.890 þús.
Rnr. 142204.
NISSAN QASHQAI ACENTA
Nýskr. 05/14, ekinn 4 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.380 þús.
Rnr. 142832.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
TOYOTA HILUX SR
Nýskr. 03/08, ekinn 142 þús. km.
dísil, beinskiptur.
Rnr. 120676.
SUBARU OUTBACK LUX
Nýskr. 03/13, ekinn 102 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.970 þús.
Rnr. 102524.
NISSAN NOTE VISIA
Nýskr. 05/12, ekinn 84 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 1.990 þús.
Rnr. 282554.
HYUNDAI i30 COMFORT
Nýskr. 11/10, ekinn 62 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.350 þús.
Rnr. 120677
HYUNDAI iX35 COMFORT 4x4
Nýskr. 05/14, ekinn 42 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.250 þús.
Rnr. 120625.
Frábært verð!
3.190 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
Fyrsti viðskiptadagur með bréf
í Eik fasteignafélagi á aðallista
Kauphallar Íslands var í gær og
nam velta með bréf félagsins 160
milljónum króna.
Garðar Hannes Friðjónsson, for-
stjóri fyrirtækisins, sagði í upp-
hafi dags að hann væri sáttur við
niðurstöðuna í útboðinu sem haldið
var. „Þetta seldist allt og það var
umframeftirspurn, þannig að ég
er alveg sáttur við þetta útboð,“
sagði hann. Í útboðinu bárust til-
boð fyrir samtals 8,3 milljarða
króna í 3,3 milljarða króna hlut.
Ákveðnar skyldur eru lagðar
á skráð fyrirtæki, til dæmis um
birtingu uppgjörs ársfjórðungs-
lega í stað einu sinni á ári. Garð-
ar Hannes telur það þó ekki vera
vandamál. „Við höfum alltaf gert
þessi uppgjör, þótt við höfum ekki
birt þriggja og níu mánaða upp-
gjör,“ segir Garðar Hannes. Eini
munurinn núna sé þá sá að núna
verði uppgjörin birt almenningi.
Eik er þriðja fasteignafélagið
á aðallistanum. Fyrir er Reginn
og fyrir fáeinum vikum bættust
Reitir við. Páll Harðarson, for-
stjóri Kauphallarinnar, telur að
Eik verði áhugaverð viðbót við
markaðinn. „Þetta er áhugaverð
leið fyrir almenna fjárfesta inn á
fasteignamarkað, hvort sem það er
í gegnum beinar fjárfestingar eða
óbeint í gegnum sjóði,“ segir hann.
Páll telur ekki of mikið að vera
með þrjú fasteignafélög. „Við
erum með þrjú tryggingafélög og
nú erum við komin með þrjú fast-
eignafélög. Ég held að það einfald-
lega geri markaðinn bara áhuga-
verðari fyrir þau félög sem eru í
þessum geira að hafa samanburð-
arfélög,“ segir hann. Páll segir að
virði fasteignafélaganna sé núna
um ellefu til tólf prósent af mark-
aðsvirði allra félaga á markaðnum.
Þess er vænst að þrjú félög muni
brátt bætast á aðallistann. Síminn
verður skráður í haust, Advania
verður skráð á næsta ári og svo
eru væntingar um að Skeljungur
bætist í hópinn. „Þetta er svona í
pípunum, en svo vonar maður að
það komi að því að stjórnvöld taki
skrefið og skrái Landsbankann.
Það væri gríðarlega mikilvægt
skref fyrir okkur,“ segir hann.
Páll segir að mjög vel hafi verið
búið að skráningum á markaðinn
á síðustu árum. „Þær hafa verið
undirbúnar mjög vel og þetta eru
félög sem hafa verið í mjög góðum
rekstri. Ég held að þetta sé mjög
góð leið til að byggja upp mark-
aðinn hérna. Þetta hafa verið að
miklu leyti til arðgreiðslufélög.
Vonandi fáum við líka inn fleiri
vaxtarfélög sem líta til útlanda
með vöxt,“ segir hann.
jonhakon@frettabladid.is
Þrjú fasteignafélög
komin í Kauphöllina
Um 160 milljóna króna viðskipti voru með bréf í fasteignafélaginu Eik á fyrsta
viðskiptadegi. Forstjórinn segist sáttur við niðurstöðu í útboðinu. Forstjóri Kaup-
hallarinnar segir skráningar á markaði undanfarið hafa verið vel undirbúnar.
Í UPPHAFI DAGS
Það er venja að
forstjóri nýskráðs
félags hringi inn
viðskiptin á fyrsta
degi. Það var
engin breyting
gerð á því í gær
og tók forstjóri
Eikar sig vel út
við bjölluna. Páll
Harðarson fylgdist
spenntur með.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við höfum alltaf gert
þessi uppgjör, þótt við
höfum ekki birt þriggja og
níu mánaða uppgjör.
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
C
-F
1
3
C
1
6
3
C
-F
0
0
0
1
6
3
C
-E
E
C
4
1
6
3
C
-E
D
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K