Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.04.2015, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 30.04.2015, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 30. apríl 2015 | SKOÐUN | 27 Þannig heldur þetta áfram koll af kolli á hverju ári. Markaðsleiðin er ein- föld því ekki þarf bókhald um það hvenær hvert kíló var keypt og menn eiga auð- velt með að reikna hve stór- an hluta aflaheimildanna þeir fá endurgjaldslaust. Stöðugt rekstrarumhverfi Þrátt fyrir að rekstur útgerðarfyrirtækja hafi gengið vel almennt undan- farin ár hefur óvissan um framtíð- arkerfi valdið því að margar útgerð- ir hafa dregið við sig nauðsynlegar fjárfestingar. Því er það mikils virði fyrir þjóðina alla að sátt náist um kerfi til frambúðar. Um prósentuna sem útdeilt er án endurgjalds þarf að nást samkomu- lag, en þegar hún er komin á þarf hún að haldast stöðug, þannig að útgerðarmenn geti gert rekstrar- áætlanir til langs tíma. Þó má vel hugsa sér að gefin sé stutt aðlögun þar sem byrjað er á hærri prósentu sem lækkar ár frá ári. Nú gilda ákveðnar reglur um hámarksstærð kvóta sem útgerðir mega eiga og að þeim þarf að gæta. Í útgerð eru auðvitað alltaf sveifl- ur, en í stöðugleika felst að regl- urnar séu þær sömu í langan tíma og menn geti lagað sig að þeim, til dæmis þegar þeir ákveða fjárfest- ingar. Skip og veiðarfæri eru dýr og ekki tjaldað til einnar nætur. Sú leið sem hér er reifuð veld- ur engri kollsteypu. Það er ekki verið að innkalla veiðiheimildir í skyndingu heldur eru þær smám saman færðar á almennan kvóta- markað. Útgerðir fá eðlilegan aðlögunarrétt en greiða sanngjarnt afgjald. Aðalatriðið er að fyrir kom- andi kynslóðir verður komið sjálf- bært kerfi sem byggir á markaðs- stýringu. Viðreisn telur nauðsynlegt að brjótast út úr viðjum kerfis þar sem stjórnmálamenn ákveða hver veiðir og hve mikið hann borgar fyrir veiðiréttinn. Markmiðið er hvorki að hygla útgerðarmönnum né ná ofurtekjum til samfélagsins. Markaðslausnin tryggir að afgjaldið verður alltaf eðlilegt. ➜ Það er bæði almenningi og útgerðinni nauðsynlegt að ná sáttum í þessum máli þar sem reynt er að nálgast nokkur einföld megin- sjónarmið. Tökum völdin af stjórnmálamönnum Kvótakerfið og hugmyndir um sanngjarnt afgjald af auðlindinni haft skipt þjóð- inni í fylkingar. Stjórnvöld hafa heykst á því að hafa einfalt kerfi og vilja nú flækja málin með því að gera nýtingarsamninga til langs tíma með ýmiss konar útúrdúrum og flækjum, auk þess sem tortryggni ríkir um að gjaldið verði ekki sanngjarnt. Frumvarpið um makrílkvótann ýtir undir grunsemdir um að enn eigi að flækja kerfið. Stjórnmála- og emb- ættismenn taka sér hlutverk sem markaðurinn leysir best. Það er bæði almenningi og útgerð- inni nauðsynlegt að ná sáttum í þessu máli þar sem reynt er að nálg- ast nokkur einföld meginsjónarmið. Á fundi stjórnmálaaflsins Viðreisn- ar í vetur var kynnt einföld, mark- aðstengd lausn sem nær öllum sann- gjörnum markmiðum allra aðila. Skilyrði fyrir sátt Nefna má nokkur atriði sem ekki ætti að vera mikill styr um. Vissu- lega eru nokkrir útgerðarmenn sem telja að vænlegast sé að setja undir sig hausinn og hlusta ekki á „vit- leysingana“ sem vilji veiðigjöld, en margt bendir til þess að áhrif þeirra fari minnkandi. Afkoma af flestum útgerðarfyrirtækjum hefur verið ágæt að undanförnu og því hvati fyrir útgerðina að festa í sessi kerfi sem tryggir að svo verði áfram, svo fremi að ekki verði aflabrestur. Markmiðin sem nást eiga eru: ● Greitt sé hæfilegt gjald fyrir aðgang að auðlindinni ● Gjaldið sé markaðstengt ● Tryggt sé að umgjörðin sé stöðug til frambúðar ● Nýliðun sé möguleg ● Hvatt sé til hagræðingar og hámarksarðsemi til lengri tíma litið Þessi markmið eiga að vera af því tagi sem „sanngjarnir menn“ fallast á að séu æskileg. Við munum víkja nokkuð að þeim hverju um sig hér á eftir. Markaðsleið að sanngjörnu gjaldi Nú er verð á sjávarafurðum síbreyti- legt, markaðsaðstæður eru misjafn- ar og ekki er alltaf á vísan að róa um gæftir. Aflaheimildirnar hafa sveifl- ast frá ári til árs en á hverju ári er gefið að úthlutað er ákveðnum heild- arkvóta. Útgerðir hafa haft ákveðna prósentu af hverri tegund fyrir sig, en ekki fyrir fram ákveðinn tonna- fjölda. Leiðin sem hér er lýst tekur mið af þessu. Hugmyndin er sú að á hverju ári er ákveðnu hlutfalli aflaheimilda fyrra árs úthlutað til kvótahafa. Þetta hlutfall gæti verið á bilinu 90 til 95% af kvótanum frá fyrra ári og fyrir þetta greiða menn ekki neitt. Það sem eftir er, 5 til 10%, yrði sett á uppboðsmarkað þar sem allir gætu boðið í heimildirnar. Með þessu móti ræðst afgjald rík- isins af aðstæðum á markaði. Þegar vel árar bjóða menn hátt, annars lægra. Allir fylgja sömu reglum, þ.e. ekki er hagstætt að skulda eða vera á annars konar fleyi en aðrir. Kíló kostar það sama og kíló, sama hver kaupandinn er. Þeir sem ekki geta greitt þurfa ekki að taka þátt í uppboðunum. Á það ber að leggja áherslu að úthlutað er sama hlutfalli kvótans á hverju ári. Þannig eru alltaf 5 til 10% til sölu á markaði. Leiðin sam- einar ýmsa kosti sem nauðsynlegt er að uppfylla. Markaðurinn sér um að greitt er hóflegt gjald fyrir aðgang að auðlindinni. Allir eru jafnir fyrir kerfinu. Ekki er horft á hvenær rétt- indi voru keypt, heldur aðeins hver staðan er í lok árs. Nýi kvótinn er alveg jafnsettur þeim gamla, þann- ig að ekki þarf að halda utan um hvað var keypt hvenær. Nýliðun er einföld, öllum er heimill aðgangur að uppboðunum, og þeir sem upp- fylla þau skilyrði að geta gert út á Íslandsmið geta allir boðið. Þeir sem illa stendur á hjá geta sleppt því að taka þátt í útboðinu það árið. SJÁVAR- ÚTVEGUR Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 8 0 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 E -B C 6 C 1 6 3 E -B B 3 0 1 6 3 E -B 9 F 4 1 6 3 E -B 8 B 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 8 0 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.