Fréttablaðið - 30.04.2015, Síða 40
Gæludýr FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 20152
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Gunnhildur Geira Þorláksdóttir, geira@365.is, s. 512 5036
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Ég gaf Katrínu Seif í jólagjöf jólin 2013. Við höfðum talað um það í nokkur ár að fá
okkur hund en aldrei látið verða af
því. Þegar til stóð að ég færi í að-
gerð og yrði heima í nokkra mán-
uði á hækjum sá ég fyrir mér að þá
væri sniðugt að taka feðraorlofið
í leiðinni,“ segir Ólafur sem sótti
hvolpinn nokkrum vikum fyrir
jól og kom Katrínu sinni á óvart
með loðna vininum. „Ég pakkaði
honum nú ekkert inn í jólapakka
samt,“ segir hann glettinn.
Bjargað úr sófanum
Nafnið völdu þau saman. „Í fyrsta
lagi þótti okkur Seifur flott nafn
úr goðafræðinni. Í öðru lagi var
það smá grín á milli okkar að
hann myndi „Save us from the
couch“ með því að draga okkur út
í göngutúra, og hann hefur fylli-
lega staðið undir því.“
Hræðileg hugmynd
Og hvernig hefur uppeldið geng-
ið? „Mér finnst frábært að ég hafi
prófað að vera með lítinn hvolp og
sjálfur á hækjum. Þá get ég ráðlagt
öllum að gera þetta aldrei,“ svar-
ar Ólafur kíminn. „Þetta var arfa-
slæm hugmynd. Hann hljóp um
allt, meig inni og ég á eftir honum
á hækjunum. Það varð stórslys á
hverjum degi,“ segir hann hlæj-
andi en bætir við að þeim Katrínu
finnist stórskemmtilegt að eiga
hund. „Þetta er, eins og allir segja,
miklu meiri vinna en maður gerir
sér grein fyrir. En þetta er ofsalega
skemmtilegt og gefandi.“
Vaktaskipti á morgnana
Seifur er stuðbolti og vaknar alla
daga klukkan sex á morgnana og
vekur Ólaf og Katrínu með látum.
„Það er engin lygi að við höfum
vaknað klukkan sex í eitt og hálft
ár. Það hefur reyndar myndast
smá system og við skiptumst á að
fara framúr.“
Ólafur lýsir Seifi þó sem sér-
lega ljúfum og góðum. „Hann er
gríðar lega mikil kelirófa og vill
kúra eins og köttur. Hann hefur
rosa gaman af öllu fólki og vill
vera í kringum það öllum stund-
um. Hann er alveg klár á því að
Katrín er húsbóndinn en ég er
hinn hvolpurinn á heimilinu.
Hann lítur á mig sem jafningja og
vill gera allt eins og ég. Svo vekur
hann mig alltaf fyrst á morgn-
ana.“
Auglýsti eftir íbúð
Katrín og Ólafur eru bæði utan
af landi en höfðu búið á höfuð-
borgarsvæðinu í mörg ár. Þau
ákváðu að breyta til og flytja út
fyrir höfuðborgina, til Akraness.
„Við ákváðum að það væri snið-
ugt að leigja til að byrja með til
að sjá hvernig okkur litist á,“ segir
Ólafur en áttaði sig á því að ekki
væri sjálfgefið að finna leiguhús-
næði þar sem þau gætu verið með
hundinn. „Ég vinn við sölu og
markaðssetningu þannig að við
Seifur settumst saman og bjugg-
um til auglýsingu í hans nafni
sem var birt í Póstinum, bæjar-
blaði á Akranesi. Hún hljóðaði
svona:
Kæru Skagamenn, ég heiti
Seifur og er rúmlega árs gamall
labrador.
Mig langar óskaplega mikið
að flytja á Akranes og er því að
leita að húsnæði til leigu þar sem
ég get búið. En þar sem ég er ekki
einn á ferð heldur með öldruð-
um (að mínu mati) eigendum
mínum þarf ég að hafa pláss fyrir
þau. Það er einn karl og ein kona,
mjög snyrtileg og vel alin og alveg
húsvön. Ég þarf að vera flutt-
ur inn með þau í byrjun febrúar
2015 og þætti því vænt um ef þið
hefðuð samband fljótlega. Hægt
er að hafa samband við eigendur
mína (ég má ekki tala við ókunn-
uga).
„Ekki liðu nema tveir tíma frá
því blaðið var borið út og þang-
að til við vorum komin með íbúð.
Það var hringt og sagt að viðkom-
andi hefði íbúð sem hentaði fyrir
Seif og við Katrín mættum koma
með ef við stæðum við það að vera
húsvön,“ segir Ólafur og hlær.
Á nokkra göngufélaga
Þríeykið kann vel við sig á Akra-
nesi. „Hér er stórt og gott hunda-
svæði þar sem Seifur getur leik-
ið við aðra hunda. Svo auglýstum
við á Facebook eftir fólki sem gæti
farið með hann í göngutúr á dag-
inn meðan við værum í vinnu og
það voru fjölmargir sem gáfu sig
fram. Hann á því nokkra göngu-
félaga á Akranesi.“ solveig@365.is
Hundurinn Seifur
reddaði íbúðinni
Seifur er eins og hálfs árs gamall, fjörugur, kelinn og mannblendinn labrador-
hundur. Hann hefur bjargað eigendum sínum Ólafi Jónssyni og Katrínu
Kjartansdóttur Arndal frá hreyfingarleysi og sófasetu og nýverið gerði hann
gott betur og útvegaði þeim leiguíbúð á Akranesi á innan við tveimur tímum.
„Takk kærlega fyrir, Seifur minn,” gæti Ólafur verið að segja við vin sinn sem reddaði leiguíbúð á Akranesi á tveimur tímum. MYND/ERNIR
SKRÁÐU
ÞIG Í VILD!
Fríðindakerfi
fyrir áskrifendur 365
50%
AFSLÁTTUR
50%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
af skyrtuhreinsun
7 KR.
AFSLÁTTUR
50.000 KR.
AFSLÁTTUR
YFIR
FERÐIR Á
BETRA VERÐI
Allir áskrifendur sjónvarps- eða fjarskipta-
þjónustu 365 fá nú sjálfvirkan afslátt hjá fjölda
fyrirtækja og verslana án þess að þurfa að biðja
um hann. Það eina sem þarf að gera er að skrá
greiðslukort fjölskyldunnar í VILD á 365.is.
skráðu þig á365.is
30.000 KR.
AFSLÁTTUR
af golfferð til Flórída með Trans Atlantic
Mér finnst
frábært að ég
hafi prófað að vera með
lítinn hvolp og sjálfur á
hækjum. Þá get ég
ráðlagt öllum að gera
þetta aldrei.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
C
-A
C
1
C
1
6
3
C
-A
A
E
0
1
6
3
C
-A
9
A
4
1
6
3
C
-A
8
6
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K