Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.04.2015, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 30.04.2015, Qupperneq 42
KYNNING − AUGLÝSINGGæludýr FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 20154 GEÐGOTT GÆLUDÝR Silkihænur eru dýr sem skera sig úr. Ekki einungis er fiðrið sérstaklega dúskmikið og silkimjúkt heldur er skinn þeirra svart og einnig kjötið og beinin. Silkihænur hafa fimm tær á fæti, en aðrar hænur hafa fjórar, og einnig hafa þær bláa eyrnasnepla. Silkihænur eru sagðar jafn silkimjúkar í skapi og þær eru á fiðrið og setja ekki fyrir sig að liggja á eggjum annarra tegunda og unga þeim út. Silkihænur eru sagðar frábær gæludýr, auðveldar í umgengni og í umönnun. Stjörnurnar í Hollywood vilja gjarnan skera sig úr og óvenju- leg gæludýr eru ekki óvenjuleg í Hollywood. Leikkonan Tori Spell- ing sást um tíma oft á gangi með silkihænuna sína Coco og tók hana jafnvel með sér á verðlaunaafhendingar og aðrar samkomur. Hefðbundin gæludýr eins og hundar, kettir, páfagaukar, fiskar og fleiri henta flestum dýravinum ágætlega. Þó eru þeir til sem vilja eiga meira exótísk gæludýr. Fyrir þá sem vilja eiga dýr sem er fyrst og fremst skrítið og frumlegt er tálknsalam- andran (e. axolotl) góður kostur. Tálknsalamandran er nærri því að vera í útrýmingarhættu í náttúrunni enda er mögulegt að fleiri slíkar séu hafðar sem gæludýr en lifa í náttúrulegum heimkynnum tálknsalamöndrunnar í Mexíkó. Tálknsalamöndrur eru forvitnilegar að því leyti að fullorðnu salamöndrurnar komast aldrei alveg af lirfustiginu. Þær vaxa en breytast aldrei alveg í landdýr eins og flestar aðrar salamöndrur gera heldur lifa í vatni alla tíð. Eins og aðrar salamöndrur hafa tálknsalamöndrur þann hæfileika að á þær vaxa líkams- hlutar aftur ef þær missa þá. Tálknsalamöndrur geta orðið allstórar eða um þrjátíu sentimetrar. Þess má geta að þær fást í gæludýrabúðum hérlendis. ÓVENJULEGT GÆLUDÝR HUNDAR MEÐ KVÍÐA Þunglyndislyf fyrir gæludýr voru seld fyrir rúmar sjö millj- ónir í Svíþjóð árið 2013 og hafði salan aukist um 35% á fjórum árum. Átta af hverjum tíu dýrum sem fá lyfið eru hundar. Svo virðist sem margir hundar þjáist af kvíða ef þeir eru einir heima, þá eru þeir sömuleiðis hræddir við hávaða. Að mati sænsks dýralæknis eru lyfin alltaf síðasti kosturinn. Fyrst þarf að reyna að þjálfa dýrið en ef það hjálpar ekki fær það þunglyndislyf. Fólk gerir mikla kröfur til hunda sinna, þeir fara til hundaþjálfara og á hlýðninámskeið. Þrátt fyrir mikla þjálfun getur verið erfitt að ná tökum á kvíðanum. Gæludýra- eigendur eru yfirleitt meðvitaðir um ástand dýra sinna og leita aðstoðar dýralækna ef hegð- unin verður sérkennileg. Hundar eru félagsverur og þeir þurfa mikla hreyfingu. Margir þola illa að vera einir heima á meðan eigandinn er í vinnunni. Tálknsalamöndrur eru í alls kyns litum, meðal annars eru til albinóa tálknsalamöndrur. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 C -C E A C 1 6 3 C -C D 7 0 1 6 3 C -C C 3 4 1 6 3 C -C A F 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 8 0 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.