Morgunblaðið - 11.12.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Komdu inn
úr kuldanum
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af öruggri vetrarumferð
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Þeim var kalt Húnvetningunum
þegar þeir vöknuðu í morgun, nótt-
in var mjög köld,“ sagði Ásgeir
Sveinsson, bóndi á Innri-Múla á
Barðaströnd og formaður bæj-
arráðs Vesturbyggðar, í samtali
við Morgunblaðið seinni partinn í
gær. Þá hafði verið þar rafmagns-
laust frá því aðfaranótt þriðjudags
og yljaði fólkið sér meðal annars
við gasofna.
„Fólk svaf líka fullklætt uppi í
hvert hjá öðru til að halda á sér
hita. Það hefur eflaust verið 6 til 7
stiga hiti inni í húsunum í morg-
un,“ sagði Ásgeir, en hátt í tuttugu
hús á Barðaströndinni voru enn án
rafmagns í gærkvöldi. Mikið óveð-
ur hefur geisað á Vestfjörðum og
því hefur Orku-
búi Vestfjarða
gengið illa að
koma rafmagn-
inu í lag en mikil
ísing hefur
myndast á raf-
magnslínum.
„Við erum
hérna um tíu
manns, bændur
úr sveitinni auk nokkurra sem eru
hér veðurtepptir, að berja af lín-
unum og vita hvort við komum
þessu ekki í gang. Við erum á
dráttarvélum og bílum, hendum
bandi yfir rafmagnslínuna og svo
er það bara dregið til að reyna að
ná ísingunni af. Við notum líka
stunguskóflur í þetta. Línurnar
hanga bara niðri við jörð, ísingin
er svo svakaleg og staurarnir
bognir. Þeir eru líka að baksa eitt-
hvað við þetta þarna hjá Orku-
búinu en þeir eru bara frekar
mannskapslausir,“ sagði Ásgeir.
Var að verða bensínlaus
„Bensínið er að tæmast á öllum
vélum hjá okkur og við höfum ekk-
ert kveikt á ljósavélinni í dag. Ég
er þó búinn að leggja inn pöntun
og Orkubúið ætlar að koma með
bensín fyrir mig ef þeir geta, ann-
ars spörum við bara bensínið fram
á kvöld til að geta yljað okkur að-
eins fyrir nóttina,“ sagði Ásgeir að
lokum. davidmar@mbl.is
Deildu rúmum yfir nóttina
Í gærkvöld hafði verið rafmagnslaust á Barðaströnd frá
því aðfaranótt þriðjudags Bændur börðu ís af raflínum
Ásgeir Sveinsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Okkur er ekkert kalt. Við erum
með kubbaeldavél. Með henni get-
um við hitað okkur vatn og soðið
einfaldan mat. Núna erum við
t.a.m. að sjóða okkur bjúgu til að
hafa eitthvað að borða, þannig að
við höfum ekki yfir neinu að
kvarta,“ segir Jóhanna R. Krist-
jánsdóttir, bóndi í Svansvík. Hún
hefur ásamt íbúuum á a.m.k 12
sveitabæjum í Súðavíkurhreppi
verið án rafmagns frá því klukkan
22 í fyrrakvöld. Að sögn Þorsteins
Sigfússonar, svæðisstjóra hjá
Orkubúi Vestjarða, voru viðgerð-
armenn undir kvöld í gær að reyna
að brjóta sér leið yfir Steingríms-
fjarðarheiði frá Hólmavík til þess
að komast að biluðum rafmagns-
línum. „Það eru 150 kílómetrar sem
við þurfum að fara. Menn fara hægt
yfir og þegar við erum komnir yfir
heiðina þá þurfum við að finna bil-
unina í vondu veðri og ómögulegt
er að segja hvenær viðgerð lýkur,“
sagði Þorsteinn. Á níunda tímanum
í gærkvöldi fengust þær upplýs-
ingar að viðgerðarmenn væru
komnir að raflínum en ekki var bú-
ið að finna upptök vandans.
Norðan hvassviðri eða stormur
var yfir nær öllu landinu. Veður var
einna verst á Vestfjörðum. Loka
þurfti þjóðveginum um Súðavík-
urhlíð og Flateyrarveg vegna snjó-
flóðahættu. Undir kvöld hækkaði
Veðurstofan svo hættustig vegna
snjóflóða upp í mikla hættu á
Tröllaskaga og á norðanverðum
Vestfjörðum.
Nær ófært frá Reykjavík
Á tímabili lokuðust allir vegir
frá höfuðborginni að Reykjanes-
braut og Suðurstrandarvegi und-
anskildum. Ófært var um Hellis-
heiði, Þrengsli, Mosfellsheiði,
Kjalarnes og undir Hafnarfjalli um
miðjan dag. Vegirnir um Kjalarnes
og undir Hafnarfjalli voru þó fljót-
lega opnaðir en hinir þrír voru fær-
ir um kvöldmatarleytið. Þá var ekk-
ert ferðaveður undir Eyjafjöllum
og á Lyngdalsheiði.
Björgunarsveitir sinntu tugum
útkalla um allt land. Flest voru í
gærmorgun vegna bíla sem höfðu
lent utan vegar, m.a. fór rúta út af
vegi nærri Kirkjubæjarklaustri.
Samkvæmt upplýsingum frá Lands-
björg þurfu flestir aðstoð á Hellis-
heiði og í Þrengslum þar sem fjöldi
ökumanna lenti í vandræðum áður
en ákveðið var að loka veginum.
Ísafjörður Hús á Ísafirði eru þakin snjó eftir veðurham undanfarna daga.
Hér hefur verið vandað til verka og ljósaserían enn á sínum stað.
Slæmt skyggni Betra er að vera vel búinn og með góða linsu þegar myndað er í slæmu skyggni. Veðurstofan hækk-
aði hættustig vegna snjóflóða upp í mikla hættu á Tröllaskaga og á norðanverðum Vestfjörðum.
„Okkur er ekki kalt“
Víða rafmagnslaust á Vestfjörðum Minnst 12 sveitabæir
án rafmagns í sólarhring Mikil hætta á snjóflóðum
Ljósmyndir/Sigurjón J. Sigurðsson
Fáir á ferli Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði voru fáir öku-
menn á ferli enda ill- eða ófært um helstu vegi á Vestfjörðum.
Rafmagnsleysi og hætta á snjóflóðum vegna vonskuveðurs fyrir vestan
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Öll tiltæk snjómoksturstæki hafa
verið notuð síðustu daga, hvort
sem það er hjá sveitarfélögum,
Vegagerðinni eða verktökum
þeirra. Af þeim upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk í gær um
kostnað má ráða að snjómokstur
hefur ekki verið jafnmikill í byrjun
vetrar og á sama tíma í fyrra.
Hjá Vegagerðinni var kostn-
aður við snjóhreinsun og aðra
vetrarþjónustu 526 milljónir króna
frá byrjun september sl. til nóv-
emberloka. Það er nokkru minna
en eftir sömu mánuði árið 2013,
þegar hann var tæpar 700 millj-
ónir króna.
Kostnaður við snjómokstur í
Reykjavík það sem af er vetri ligg-
ur ekki fyrir, en frá síðustu ára-
mótum er hann um 400 milljónir
króna. Öll möguleg tæki hafa síð-
ustu daga verið í önnum að halda
stofnbrautum og húsagötum borg-
arinnar færum. „Þetta er okkur
mjög dýrt, svo mikið er víst,“ segir
Björn Ingvarsson, deildarstjóri
Þjónustumiðstöðvar borgarlands-
ins, sem telur að kostnaður á degi
hverjum hlaupi á milljónum króna
þessa dagana.
Alls er Reykjavíkurborg með
níu snjómokstursbíla á þönum og
25 vélskóflur og veghefla sem not-
uð eru til að hreinsa húsagötur.
Björn bendir fólki á að kynna
sér allar upplýsingar um snjó-
hreinsunina á borgarvefsjánni, þar
er m.a. hægt að sjá hvaða götur
eru forgangsleiðir.
Samkvæmt upplýsingum frá
bæjarskrifstofunum á Akureyri
hefur kostnaður við snjómokstur
að öllum líkindum verið minni en á
sama tíma í fyrra. Nýjustu tiltækar
tölur eru fyrir mánuðina sept-
ember og október, þegar hann var
rúmar 5 milljónir króna. Síðustu
vikur hefur bæst í snjóinn þó að
hann sé ekki orðinn eins mikill og
Akureyringar eru vanir að búa við.
Til samanburðar var kostnaður af
snjóhreinsun nærri 37 milljónir
króna í nóvember og desember á
síðasta ári. Helgi Már Pálsson bæj-
artæknifræðingur segir kostn-
aðinn geta verið 2-3 milljónir
króna á dag ef það snjóar hressi-
lega.
„Þetta er okkur mjög dýrt“
SNJÓMOKSTURSTÆKI HAFA Í NÓGU AÐ SNÚAST
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Mokstur Nóg er að gera núna hjá
eigendum vinnuvéla.