Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 11
Grallari Hér er Ólöf í hlutverki Sólu Grýludóttur, stelpunnar skemmtilegu sem börnin vilja sjá.
hin hversdaglega ég. Nú vilja
börnin aldrei sjá mig, þau vilja
alltaf Sólu,“ segir Ólöf og hlær og
bætir við að Sóla hafi einnig komið
fram í Stundinni okkar um tíma.
En þegar bókabíllinn Æringi fer á
stjá er sögukonan ekki alltaf hún
Sóla, hún þarf líka frí og þá bregð-
ur Ólöf sér í hlutverk bókaver-
unnar Bjarkar, álfs sem hefur
misst vængina og sefur inni í bók-
um. Sögukonan er líka stundum í
hlutverki Nínu nornar, en hún er
hávaðasöm og með blátt hár.
Fannst vanta sögu um sólina
Nú hefur Ólöf tekið persónuna
Sólu skrefinu lengra og samið um
hana sögu sem hún hefur gefið út á
bók. „Mér fannst vanta sögur um
sólina, en í bókinni minni týnist
einmitt sjálf sólin. Ég leitaði að
gömlum íslenskum sögnum um
slíkt og fann ekkert nema Bakka-
bræður. Svo ég bjó bara sjálf til
nýja sögu um týnda sól sem Sóla
Grýludóttir fer að leita að og á
þeirri vegferð lendir hún í ýmsu.“
Myndirnar í bókinni teiknaði
bandarísk listakona, Rio Burton, og
er Ólöf fjarska ánægð með hana.
„Hún gat teiknað ísbjörn og
krumma á sannfærandi hátt og það
var norrænn bragur yfir mynd-
unum hennar, en ekki óíslenskur
eins og vildi vera hjá hinum teikn-
urunum sem ég hafði úr að moða
hjá bókaútgáfunni Óðinsauga sem
gefur bókina mína út. Rio Burton
nær vel þessu íslenska landslagi og
hún hefur góða tilfinningu fyrir ís-
lenskri stemningu.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
FÍNT FYRIR JÓLIN
Jólatilboð frá 1.12- 13.12
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
ALMAR Spring
Sturtuhaus 20 cm
Áður kr: 9.450,-
Tilboð kr. 6.900,-
TEKA Calm Sport
Sturtusett
Áður kr: 8.500,-
Tilboð kr. 6.900,-
ALMAR Onda
Handsturtuhaus
Áður kr: 2.490,-
Tilboð kr. 1.990,-
Sturtubarki 150 cm
Áður kr: 1.910,-
Tilboð kr. 1.490,-
ALMAR Skinny
Handsturtuhaus
Áður kr: 1.990,-
Tilboð kr. 1.490,-
ALMAR Emotion
Sturtuhaus 10 cm
Áður kr: 3.990,-
Tilboð kr. 2.990,-
Það getur verið gaman að njóta nýs
listaverks á degi hverjum allt árið og
aldrei eftir sama listamanninn. Nú
hefur Art365 gefið út öðru sinni lista-
almanak sem nefnist List í 365 daga
2015. Almanakið byggist á 365 lista-
verkum eftir íslenskt listafólk, hönn-
uði, skáld og fleiri, bæði eftir vel
þekkt og upprennandi listafólk.
Reykjavíkurborg hefur fest kaup á
listaalmanaki fyrir alla grunnskóla
borgarinnar og verða almanökin nýtt
við listkennslu.
Útgáfuhóf verður haldið í dag,
fimmtudag, í sal Myndhöggv-
arafélags Íslands á Nýlendugötu 15,
milli kl. 17 og 19. Sala á almanakinu
fer fram í gegnum vefsíðu
www.art365.is, en einnig að Lauf-
ásvegi 45-B alla daga milli kl. 14 og
18.
Vefsíðan www.art365.is
Gróttubaka Elsa Nielsen er höfundur þessarar myndar sem prýðir einn dag.
Almanak með 365 listaverkum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.