Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 22
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sú hreyfing sem stendur að baki
batamiðaðri þjónustu er sterkur
áhrifavaldur á sviði geðheilbrigðis-
þjónustu í dag. Þetta hefur leitt til
breytinga á geðheilbrigðiskerfum
þeirra landa sem við berum okkur
saman við,“ segir Hjalti Einarsson,
sálfræðingur við geðsvið Landspít-
alans. Áherslubreytingar hafa verið
gerðar þar á bæ á síðustu misserum
og nú byggist starfið meira og minna
á þeirri nálgun að sjúklingar séu
hafðir með í ráðum. Þetta er til
dæmis ríkjandi stefna samfélags-
geðteymis, en starfsfólk þess vitjar
sjúklinganna í eigin nærumhverfi, til
að mynda í heimahúsi. Aðrar deildir
á geðsviði hafa einnig tekið þessa
þjónustuleið upp, í mismiklum mæli
þó, sem ræðst af aðstæðum og eðli
veikinda.
Rannsóknir og aukin
borgaraleg réttindi
Nýjar áherslur á geðsviði byggj-
ast á starfi þverfaglegs hóps sem
skv. ákvörðun þáverandi fram-
kvæmdastjóra sviðsins, Páls Matt-
híassonar, sem nú er forstjóri Land-
spítalans, fór árið 2012 að skoða
leiðir til frekari úrbóta með áherslu
á batamiðaða þjónustu. Í fyrstu var
lagt upp með að auka þjónustuna á
endurhæfingarþætti geðsviðs en
verkefnið hefur færst yfir á sviðið í
heild. Batamiðuð þjónusta var svo
skilgreind á þessu ári sem lykilverk-
efni undir stjórn Maríu Einisdóttur,
núverandi framkvæmdastjóra sviðs-
ins. Hjalti Einarsson er verk-
efnastjóri og starfar að þróun bata-
þjónustu með þverfaglegum hópi
fólks úr öllum fagstéttum.
„Verkefnið er umfangsmikið og
skiptist í fjölda undirverkþátta. Við
erum því með mörg járn í eldinum ef
svo má segja,“ segir Hjalti.
Upphaf hugmyndar um batamið-
aða geðheilbrigðiþjónustu má rekja
til 7. áratugar síðustu aldar. Er kom-
ið frá mannréttindahreyfingum og
baráttu hagsmunasamtaka notenda
fyrir auknum borgaralegum rétt-
indum fólks með geðröskun. Um
svipað leyti hleypti Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin WHO af stað
rannsóknarátaki sem efldi aukið
vægi persónumiðaðrar nálgunar.
Eykur hag notenda þjónustu
„Batamiðuð þjónusta hefur hvar-
vetna á Vesturlöndum haft mikil
áhrif á þróun geðheilbrigðismála,“
segir Hjalti. „Áherslur hér á Land-
spítalanum eru að mestu leyti sóttar
til Bretlandseyja þar sem svona
þjónusta hefur náð traustri fótfestu.
Þekking fagfólksins hér er annars
sótt í margar áttir. Almenn reynsla
notenda þjónustunnar, starfsfólks
hér, stjórnvalda, athuganir fræði-
manna og gæðaviðmið vitna um
ágæti þess þjónustukosts.“
Hjalti Einarsson segir að starf
allra á geðsviði hafi áhrif á framþró-
un bata sjúklinga. Hvað þetta svið
sjúkrahússins varðar séu sjúklingar
þar – sem réttilega eru orðnir not-
endur þjónustu með aukinni þátt-
töku sinni í eigin meðferð – og ýmis
hagsmunasamtök þeirra einnig þátt-
takendur í verkefninu.
„Innlegg notenda – eða þá sjúk-
linga – er mikilvægt. Batamiðuð
þjónusta hefur fátt, ef eitthvað, í för
með sér sem afmarkaðar fagstéttir
geta ekki skilið út frá eigin fræðum,
enda snýst þetta um að auka hag
notenda. Er ekki sett fram sem and-
stæða við hefðbundna heilbrigð-
isþjónustu heldur þörf viðbót. Jú,
þetta eru sannarlega töluverðar
breytingar en þær eru ekki neitt
sem fagfólk setur sig á móti. Raunar
þvert á móti,“ segir Hjalti. Bætir við
að þessi batahugsun, það er að sjúk-
lingarnir séu með í ráðum og finni
með hjálp fagfólks leið til betra lífs
og heilsu, sé beint og óbeint að verða
ráðandi þáttur í starfinu.
Ör þróun og meiri þekking
„Síðustu ár hafa svo einkennst af
stöðugt örari þróun batamiðaðrar
geðheilbrigðisþjónustu erlendis og
hér heima, samfara aukinni þekk-
ingu á viðfangsefninu. Þetta hefur
smitað út frá sér. Samt er ekki ein-
falt mál að meta árangur þessa bata-
miðaða starfs, enda er hún ekki eitt-
hvert eitt afmarkað fyrirbæri eða
aðferð,“ segir Hjalti og bætir við:
„Meðferðarkosturinn er nánast
altækt starf sem snertir starfsemina
með ólíkum hætti eftir því hvert er
horft. Við reynum þó í sífellu að
finna leiðir til þess að meta gæði
þjónustu í því skyni að reyna að
auka við. Meginmarkmið okkar er að
finna lausnir sem auka lífsgæði fólks
og getu þess til að skapa sér merk-
ingarbært líf í samfélaginu, hvort
sem lækning frá veikindum er að
fullu fyrir hendi eða ekki.“
Lausnirnar skapi fólki
gæði og merkingarbært líf
Breytt vinna á geðsviði Landspítalans Batamiðuð þjón-
usta er áherslumál Fagfólk úr öllum stéttum tekur þátt
Morgunblaðið/Þórður
Heilsa „Batamiðuð þjónusta hefur hvarvetna á Vesturlöndum haft mikil
áhrif á þróun geðheilbrigðismála,“ segir Hjalti Einarsson sálfræðingur.
Að notendur geðheilbrigðisþjónustu og fagfólk leggi
línurnar um meðferð sameiginlega er mikil breyting.
Fyrr á árum voru ráð lækna og heilbrigðisstarfsfólks
algild boðorð sem fara átti eftir. Hjalti Einarsson segir
að þetta hafi sennilega verið arfur frá því að talið var
að fólk með andlega sjúkdóma væri ekki fært um að
taka ákvarðanir í eigin málum.
Mörkin færast í sífellu
„Ég trúi því að fagfólk hafi alla tíð unnið eftir bestu
sannfæringu og með velferð notenda í huga. Það hefur
bara tekið þennan tíma fyrir heilbrigðisvísindin að
þróast frá því sem áður var. Er þeirri þróun hvergi
nærri lokið. Mörk þekkingar og viðhorfa færast í sí-
fellu. Með reynslu af batamiðaðri þjónustu verðum við
svo betri í að veita hana. Þar skiptir samráð við not-
endur og aðrar lykilstofnanir á sviði geðheilbrigðimála
miklu máli,“ segir Hjalti.
Í þessu sambandi segir Hjalti sögu af manni sem
þurfti að leggjast inn á geðdeild fyrir 20 árum. Rifjaði
sá upp að ráð lækna voru að hann skyldi róa á ný mið.
Hverfa frá starfi sem var – þrátt fyrir streitu og álag –
líf hans og yndi. Sú lending náðist í málinu að viðkom-
andi breytti takti í starfinu, en hélt að öðru leyti áfram.
Skilningur reyndist á því að bati byggðist ekki á því að
hverfa frá verkefni sem veitti viðkomandi lífskraft.
„Gagnkvæm skoðanaskipti milli sjúklings og fólks í
öllum þeim stéttum sem þjónustu veita um hverjar séu
bestu leiðirnar er batamiðuð þjónusta. Sátt þarf að nást
um lausn fyrir fólk sem glímir við geðræna erfiðleika
sem þarf að miðast út frá frá lífsmarkmiðum viðkom-
andi. Samkvæmt batahugsjóm gegnir fólk hlutverki
sérfræðings í eigin lífi að fenginni reynslunni. Því hlýt-
ur niðurstaða sem fellur vel að vilja notenda – sem og
bestu fagþekkingu sem völ er á hverju sinni – ávallt að
vera farsælasta leiðin.“
Gagnkvæm skoðanaskipti
batamiðuð þjónusta í reynd
Fagfólk og sjúklingar leggja línur um framtíðina saman
Morgunblaðið/Eggert
Hlaup Virk þátttaka í samfélaginu getur ráðið miklu
um andlegan bata og öll hreyfing gerir sálinni gott.
| www.flytjandi.is | sími 525 7700 |
80
ÁFANGASTAÐIR
UMALLTLAND
OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR
JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA
750KR.
Minnum á fatasöfnun Rauða Krossins
á móttökustöðum Eimskips Flytjanda
um land allt
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m
og hámarksþyngd 45 kg.
Glimrandi gott verð fyrir allt að 45 kg þungan pakka
– aðeins 750 krónur hvert á land sem er.
Sendu jólapakkann þinn fljótt og örugglega
með Eimskip Flytjanda. Upplýsingar um næsta
afgreiðslustað á www.flytjandi.is
ALLT
AÐ
0,5 x
0,5 x
0,5m
KG45