Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eigendur félagsins Gamma ehf. hafa haft til skoðunar að breyta notkun lóðar norður af Bergstaðastræti 4. Þar stendur nú gamalt tveggja hæða steypt hús sem er notað sem bakarí. Sú bygging nýtir aðeins hluta af mögulegu byggingarmagni á lóðinni sem tilheyrir Bergstaðastræti 4. Húseignin Bergstaðastræti 4 er í eigu Gamma ehf. Það félag á jafn- framt rekstrarfélagið sem rekur Hótel Óðinsvé á Þórsgötu 1. Íbúi við götuna setti sig í samband við Morgunblaðið vegna hugsanlegra áforma um að hefja framkvæmdir á lóðinni. Af því tilefni var spurst fyrir um málið hjá eigendum viðkomandi húseignar og lóðar. Bjarni Hákonarson, fram- kvæmdastjóri á Hótel Óðinsvéum, segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um framkvæmdir á umræddri lóð, sem er milli Tösku- og hanska- búðarinnar og Bólstrunar Ásgríms, á Bergstaðastræti 2. Drög fyrir átta árum „Það kom til umræðu fyrir um átta árum að gera eitthvað með lóðina. Það mál var sett á ís og er þar óbreytt,“ segir Bjarni um stöðu mála. „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar um framhaldið,“ segir hann. Hótel Óðinsvé leigir út hótelíbúðir á efstu hæð Bergstaðastrætis 4. Hús- eignin er reyndar skráð sem Skóla- vörðustígur 7 í símaskránni. Hjá Sýslumanninum í Reykjavík er fast- eignin Bergstaðstræti 4 skráð í eigu Gamma ehf. Það er í 50% eigu Pama ehf. og í 50% eigu Punds ehf., skv. Creditinfo. Pama ehf. er í eigu Vallaness ehf., sem er í 100% eigu Bergljótar Þor- steinsdóttur fv. flugfreyju. Pund ehf. er í 100% eigu Hannesar Hilmarssonar, forstjóra Air Atlanta. Bergljót er gift Magnúsi Steph- ensen, viðskiptafélaga Hannesar. Tvö fyrirtæki leigja nú atvinnu- húsnæði af Gamma ehf. á Bergstaða- stræti 4. Annars vegar Tösku- og hanskabúðin og hins vegar Matar- kistan, sælkeraverslun Sigurveigar Káradóttur. Þeir leigusamningar eru til skemmri tíma. Íhuga nýbyggingu á Bergstaðastræti  Félagið Gamma ehf. hefur haft til skoðunar að breyta notkun lóðar norður af Bergstaðastræti 4  Drög voru gerð að nýbyggingu  Hótel Óðinsvé rekur hótelíbúðir við lóðina sem er í eigu Gamma Bergstaðastræti í vetrarbúningi Horft upp Bergstaðastræti frá Laugavegi og upp að Skólavörðustíg. Bergstaðastræti 4 er gula húsið efst til hægri á vinstri myndinni. Hótel Óðinsvé rekur hótelíbúðir á efstu hæð þess húss sem er einnig sýnt frá öðru sjónarhorni á myndinni hér til hægri fyrir ofan. Morgunblaðið/Kristinn Meðal nýrra hótela sem áformað er að opna á næsta ári er ónafngreint hótel í Þórunnartúni 4, gegnt Foss- hótelsturninum á Höfðatorgi. Kostnaður við verkefnið er áætl- aður á annan milljarð króna. Magnús Einarsson, annar eigandi fasteignarinnar Þórunnartúns 4 og framkvæmdastjóri byggingar- félagsins sem byggir hótelið, segir rekstraraðila hafa verið valinn. Sá sé að ganga frá fyrirkomulagi rekstrarins og því sé ótímabært að ræða þá hlið mála. Framkvæmdir eru þegar hafnar og segir Magnús stefnt að því að opna hótelið 15. júní næsta sumar. Tafir hafa orðið á framkvæmdum og seinkar opnun um mánuð. Spurður hvort þessi skammi tími sé því raunhæfur til að ljúka fram- kvæmdum bendir Magnús á að sami verktaki hafi breytt Laugavegi 66 í Hótel Öldu á aðeins hálfu ári. Það hótel var opnað 15. maí sl. Hulunni svipt af nýju borgarhóteli  Hótel rís í Þórunnartúni á mettíma  Sami verktaki og byggði Hótel Öldu Teikning/Gunnlaugur Jónasson og Gunnar Bergmann Nýtt útlit Fram kemur í umsókn Þórunnartúns 4 slf. til byggingarfulltrúans í Reykjavík að sótt sé um leyfi til að byggja viðbyggingu á bakhlið, byggja inndregna 5. hæð ofan á og til að innrétta gististað með 93 herbergjum. Morgunblaðið/Þórður Fyrir breytingu Þórunnartún 4. Túrmalín, silfur og gull Opið alla daga til jóla kl. 8–24 í Lágmúla og á Smáratorgi - Lifi› heil www.lyfja.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.