Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 30

Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Meðal þeirra fjölmörgu grunnskóla- nemenda sem þreyttu samræmdu prófin í 10. bekk í haust var Óli Þór Sigurjónsson, nemandi í Hlíðaskóla í Reykjavík. Óli náði afburðagóðum ár- angri, m.a. hæstu einkunn í íslensku með raðeinkunn upp á 95 og 97 í bók- menntum og lestri. Árangurinn er at- hyglisverður í ljósi þess að Óli fædd- ist heyrnarlaus en fór í kuðungs- ígræðslu 20 mánaða að aldri. Fékk hann í kjölfarið góða heyrn en telst heyrnarskertur í dag. Var Óli fyrsta barnið á Íslandi sem var fætt heyrn- arlaust og fór í slíka aðgerð. En þessi árangur hefur ekki náðst nema fyrir þrotlausa vinnu hjá Óla og hans fjölskyldu, með dyggri aðstoð lækna og sérfræðinga á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ), kennara á leikskólanum Sólborg og síðar í Hlíðaskóla. Má þar helst nefna Ingi- björgu Hinriksdóttur, yfirlækni á HTÍ, og Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðing. Bróðir Óla, Nói Hrafn, bráðum 11 ára, fæddist einnig heyrnarlaus og fór þá strax í kuðungsígræðslu. Hon- um hefur jafnframt gengið mjög vel í skóla en Nói er í 6. bekk í Hlíðaskóla. Með þrálátar eyrnabólgur Óli Þór er fæddur í mars 1999 og fyrstu mánuðina var hann með þrá- látar eyrnabólgur og -sýkingar, ekki síst eftir að hann var kominn til dag- mömmu sex mánaða gamall. Þannig gekk þetta um tíma og engan grunaði að Óli væri heyrnarlaus. Þegar hann var að verða eins árs fékk hann það svæsna sýkingu í eyrað að hann varð að fá sýklalyf í æð og var sendur á spítala. Þar tók Ingibjörg Hinriks- dóttir, þá læknir á göngudeild háls-, nef- og heyrnarlækninga á Landspít- alanum, á móti þeim og við tóku ít- arlegar rannsóknir. „Í framhaldi af því ákváðum við að fara með Óla í heyrnarmælingu til að vera viss um að hann hefði ekki borið neinn skaða af öllum þessum sýk- ingum. Það var ekki gert vegna þess að við héldum að hann heyrði illa. Þá fengum við beint í andlitið eins og kalda vatnsgusu að Óli væri heyrnar- laus. Það var okkur auðvitað mikið áfall,“ segir Andrea Guðnadóttir, móðir Óla, við Morgunblaðið þegar blaðamaður og ljósmyndari heim- sóttu fjölskylduna í vikunni. Óli var viðstaddur og hlustaði á samtalið við foreldrana með athygli. Heyrnarleysi hans hafði ekkert með að gera þær eyrnabólgur og sýk- ingar sem höfðu verið að hrjá hann, hann einfaldlega fæddist heyrnarlaus vegna ákveðinna genagalla. Sýkingin varð hins vegar til þess að hann greindist fyrr en ella hefði kannski orðið. Ígræðsla í Svíþjóð Á þessum tíma var Ingibjörg ný- lega komin heim frá námi í Svíþjóð en þar var komin nokkur reynsla af kuð- ungsígræðslu til að bæta heyrn fólks. Hún benti Andreu og eiginmanni hennar, Sigurjóni Guðna Ólasyni, á þennan möguleika og eftir stutta um- hugsun ákváðu þau að slá til. Strax og ljóst varð að Óli væri heyrnarlaus, í mars 2000, tók við táknmálskennsla og í október fór fjöl- skyldan til Stokkhólms þar sem kuð- ungsígræðsla fór fram á Huddinge- sjúkrahúsinu. Sem fyrr segir var Óli fyrsta barnið hér á landi, sem fæddist heyrnarlaust og fór í þessa aðgerð. Áður höfðu svona aðgerðir verið gerðar á Íslendingum í Ósló, þá fyrst og fremst fullorðnu fólki og einnig börnum sem höfðu misst heyrn eftir heilahimnubólgu. „Við vissum að ár- angur af þessum aðgerðum hafði ekki verið alltof góður. Við fórum af stað með litlar væntingar og vorum sátt við að hann fengi einhverja heyrn þannig að hann yrði nú ekki fyrir slökkviliðsbíl,“ segir Andrea og bros- ir er hún rifjar þetta upp. Í desember 2000 var Óli tengdur við tækin og strax í janúar 2001 hófst þjálfun undir stjórn Bryndísar tal- meinafræðings. Samhliða fékk Óli áfram kennslu í táknmáli. Þjálfunin fór fram í samstarfi við leikskól- Bara spurning um að fá að heyra  Eiga tvo drengi sem fæddust heyrnarlausir  Fóru báðir í kuðungsígræðslu og fengu heyrn með þrotlausri þjálfun hjá sérfræðingum  Sá eldri fékk hæstu einkunn í íslensku á samræmdum prófum Morgunblaðið/Golli Fjölskylda Nói Hrafn, Andrea Guðnadóttir, Óli Þór og Sigurjón Guðni Ólason eiga að baki þrotlausa vinnu og hafa uppskorið samkvæmt því. „Það er mjög ánægjulegt að heyra hvað þessum krökkum gengur vel í skóla og öðrum athöfnum daglegs lífs. Það er mik- ilvægt fyrir okk- ur, fagfólkið, að fá jákvæð við- brögð, og skiptir máli í okkar starfi,“ segir Ingibjörg Hin- riksdóttir, yfir- læknir á HTÍ, um árangur bræðr- anna Óla og Nóa og annarra barna sem farið hafa í kuðungs- ígræðslu. Frá árinu 1984 hafa um 80 Ís- lendingar farið í kuðungsígræðslu, þar af var 21 barn að aldri þegar aðgerðin var gerð. Flestar aðgerð- ir, eða um 70, hafa verið fram- kvæmdar frá árinu 2000, þar af 19 börn. Ingibjörg segir árangur þeirra yfirleitt mjög góðan þó að útkoman geti verið álíka misjöfn og börnin eru mörg. Hún segist vita dæmi þess að krökkunum farn- ist t.d. mjög vel í tónlistar- og dans- námi, þar sem krafist er góðrar heyrnar, alveg eins og í almennu bók- og verknámi eða íþróttum. „Við mælum almennt með því við foreldra að senda börnin í ígræðslu, til að gefa þeim mögu- leika á tjáningu og samskiptum með talmáli. Þetta gefur meiri möguleika í lífinu. Í flestum til- vikum velja foreldrar og forráða- menn að fara þessa leið, en það er ekki algilt. Þetta er undir þeim sjálfum komið. Með ígræðslunni tekur við mikil vinna við að þjálfa upp tjáskipti, lestur og talmál. Mik- il vinna fer fram hjá talmeinafræð- ingum og kennurum en það er ekki síður vinnan heima fyrir sem skipt- ir máli í þessu öllu saman,“ segir Ingibjörg. Frá því að Óli Þór fékk ígrædd sín heyrnartæki hafa mjög örar tækniframfarir orðið á því sviði. Ingibjörg segir tækin verða smærri í sniðum og fyrirferð- arminni, bæði þau sem eru ut- análiggjandi og þau sem eru íg- rædd, og börnin finna þar með minna fyrir þeim í sínum daglegu athöfnum. Jákvæð viðbrögð skipta okkur máli  21 barn fengið kuðungsígræðslu  Yfirlæknir HTÍ mælir með aðgerð Ingibjörg Hinriksdóttir Jólaföndur Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is Opið virka daga frá 9– 18 lau fr á 10– 16 TRÉPÚSL FYRIR ALLA UM JÓLIN VERÐ FRÁ 860 KR.- 
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.