Morgunblaðið - 11.12.2014, Síða 40

Morgunblaðið - 11.12.2014, Síða 40
VIÐTAL Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is „Þetta er rosalega fjölbreytilegt starf og ég er alltaf að gera eitthvað nýtt. Engir tveir dagar eru eins,“ segir Ester Ósk Hilmarsdóttir, vef- stjóri og ritstjóri yfirlitsgreina hönn- unarblaðsins Home Journal í Hong Kong. Ester tók við starfinu í ágúst síðastliðnum, en Home Journal er stærsta hönnunarblað Hong Kong og gefið út í 40 þúsund eintökum mánaðarlega. Ester segir starfið mjög krefjandi og vinnumenninguna í Hong Kong gjörólíka því sem hún hafi áður kynnst. „Hérna byrjar vinnudag- urinn á slaginu níu og á að vera bú- inn klukkan sex á daginn en það er alltaf unnið lengur, allavega til sjö eða átta. Þá á eftir að koma sér heim en það tekur tæpan klukkutíma með rútu og neðanjarðarlest,“ útskýrir hún. Alltaf að gera eitthvað nýtt Starf Esterar felst í því að koma með hugmyndir að umfjöllunum, greinum og þema fyrir hvert tölu- blað af tímaritinu. Þá skrifar hún greinar, meðal annars um innan- hússhönnun, list, ferðalög og mat, finnur falleg heimili til að fjalla um, tekur viðtöl við innanhússhönnuði, arkitekta, listamenn og hönnuði ásamt því að stýra myndatökum og sinna almennum störfum á skrifstof- unni. Þar að auki sér hún um allt efni fyrir vefsíðu Home Journal og sam- félagsmiðla eins og Facebook og Instagram. Ester segist stundum vera á skrif- stofunni í heilan dag að svara tölvu- póstum og leita að fallegri hönnun til að fjalla um, en aðra daga á þeytingi um borgina að taka viðtöl, fara í myndatökur eða einfaldlega mæta á opnanir nýrra veitingastaða eða hót- ela. „Stundum fæ ég að gista á fínum fimm stjörnu hótelum og ferðast til annarra borga til að skrifa ferðasög- ur, aðra daga er ég á fjórum fótum með tusku að skrúbba ef einhver gleymir að þrífa heima hjá sér fyrir myndatöku,“ segir hún kímin. Íslenskt hugarfar í forgrunni Ester segist fara með sitt íslenska hugarfar í öll verkefni og sem bónda- dóttir norðan úr landi hjóli hún í öll verk, sama hver þau eru. „Skemmti- legast finnst mér samt að fá að koma inn á öll þessi fallegu heimili. Í þess- ari borg er allt í boði og það er ekk- ert sem ekki er hægt að gera og það endurspeglast í hönnun heimilanna hérna úti. Hvaða vitleysu sem þér dettur í hug er hægt að framkvæma í Hong Kong.“ Eiginmaðurinn dró hana til HK Ester lauk á síðasta ári meistara- prófi í útgáfu frá Edinburgh Napier University. „Ég hef alltaf verið rosa- legur bókaormur og með ástríðu fyr- ir prenti, hvort sem það eru bækur eða tímarit, svo ég flutti til Edin- borgar til að taka master í útgáfu.“ Stuttu eftir útskrift fékk Ester vinnu hjá útgáfufyrirtæki í Edinborg sem heitir Charles Letts & Co þar sem hún vann sem ritstjóri áður en hún flutti til Hong Kong fyrir tæpu ári. Eiginmanni Esterar, sem hafði unnið fyrir HSBC-banka (Hong Kong and Shanghai Banking Cor- poration) í Edinborg, bauðst flutn- ingur til bankans í Hong Kong á síð- asta ári. Þau hjónin slógu því til, pökkuðu skosku lopapeysunum og íslensku kjötsúpubréfunum í tösku og héldu af stað í nýtt ævintýri. „Ég var búin að draga hann um allan heim og nú var komið að honum að draga mig eitthvert,“ segir hún, en þau hjónin hafa búið í Reykjavík, Flórída, Madríd, San Diego og Ed- inborg. Datt í tvöfaldan lukkupott Þegar Ester var nýflutt til Hong Kong heyrði hún af því að það væru hreyfingar innan Edipresse Media Hong Kong Limited, fyrirtækisins sem gefur út Home Journal, og ákvað hún því að hafa samband og sækja um. „Ég var svo boðuð í viðtal og sat í gegnum þriggja tíma stíft próf, bæði sjónrænt og skriflegt. Ég var svo boðuð í annað viðtal eftir það og fékk svo starfið,“ segir hún. Ester segist hafa dottið í tvöfaldan lukkupott þegar henni bauðst starf- ið, enda sé útgáfa hennar ástríða og svo hafi hún alltaf haft mikinn áhuga á innanhússhönnun. „Home Journal var fyrsta tímaritið sem ég fletti hérna úti og því finnst mér svolítið gaman að ég skuli hafa fengið vinnu þar,“ segir hún, en blaðið hefur verið gefið út frá árinu 1980 og er bæði á ensku og kínversku. „Það eru algjör forréttindi að fá að starfa við það sem maður hefur áhuga á.“ Laumar íslenskri hönnun að Ester segist ekki vita betur en að hún sé fyrsti Íslendingurinn sem hefur komið að útgáfu blaðsins, og segir hún fólk verða mjög hissa þeg- ar það kemst að því hvaðan hún er. „Ég reyni að lauma íslenskri hönnun með í blaðið annað slagið. Ég er til dæmis búin að fjalla um Vað- fuglana hans Sigurjóns Pálssonar og Kisukertið frá Pyropet. Það er samt pínu erfitt stundum því ég má bara fjalla um hluti sem eru aðgengilegir fyrir lesendur í Hong Kong og sumar af þessum fallegu vörum heima er erfitt að nálgast frá Asíu.“ Með íslenskt hugarfar að vopni  Ester Ósk Hilmarsdóttir er vefstjóri og ritstjóri yfirlitsgreina stærsta hönnunarblaðs Hong Kong  Home Journal er gefið út í 40 þúsund eintökum mánaðarlega og hefur verið starfrækt í 35 ár Ljósmynd/Ester Ósk Hilmarsdóttir Alsæl Ester hefur búið ásamt eiginmanni sínum í Hong Kong í tæpt ár. Hún hóf störf hjá Home Journal í ágúst sl. og er hæstánægð með starfið. Heimilisdagbók Home Journal er stærsta hönnunarblað Hong Kong. Hægt er að fylgjast með tímaritinu á vefsíðunni www.homejournal.hk, á Facebook- síðunni www.facebook.com/ HomeJournal og á Instagram und- ir notendanafninu @homejournal. 40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti Ester segir lífið í Hong Kong frá-brugðið öllu því sem hún hafi áðurkynnst. „Þó að Hong Kong eigi að vera ein vestrænasta borg Asíu er hún samt rosalega asísk. Hong Kong er suðupottur af alls konar spennandi og skrýtnu og það er rosalega mikið gert úr lúxus hérna úti, en þeir halda samt líka fast í hefðbundnar venjur sem verður til þess að mótstæðurnar eru rosaleg- ar. Þú finnur gamla kaupmanninn á horninu að reyta kjúkling við hlið- ina á Bentley-bílaumboði. Hermés- verslun á mörgum hæðum við hlið- ina á vafasamri núðlubúllu, og allt þar á milli.“ Ester segist oft vera orðin þreytt í lok dags og á leiðinni heim sé mik- ið áreiti sem taki við. „Að troða sér í neðanjarðarlest með milljón manns á hverjum degi eins og sard- ína í dós. Þetta er stundum svona álíka ánægjulegt og að fara til tannlæknis. Stundum ræður maður ekki einu sinni hvert maður fer heldur berst bara með straumnum og er ýtt fram og til baka í æsingn- um.“ Hún segir troðninginn geta orðið ótrúlegan, en þá sé best að slaka á og hlusta á tónlist. „Smásalsa með Willie Rosario og Tito Puente er al- veg á við tvo espressobolla, það dugir ekkert minna til að koma sér í gegnum þessi ósköp.“ Þá segir hún flesta í Hong Kong vera með húshjálp sem sér um heimilið og sé það í raun ekki und- arlegt þegar fólk er að skríða heim úr vinnu seint á kvöldin. „Mér finnst það samt aðeins of skrýtið og moppa því mín gólf sjálf. Eða rek eiginmanninn í það á miðnætti þeg- ar við erum loksins búin að borða,“ segir hún og hlær. „Mér fannst oft mikill asi í hvers- dagsleikanum á Íslandi, en eftir að hafa búið hér finnst mér íslenski takturinn bara eins og vangadans við rólegan djass.“ Lífið í Hong Kong frábrugðið Íslandi Hong Kong Ester segir taktinn mun hraðari en þann íslenska.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.