Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 58

Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 58
58 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 efnum fatlaðs fólks. Það þýðir að staðgreiðslutekjurnar aukast nokk- uð en skattheimta ríkisins lækkar að sama skapi.“ Gunnlaugur segir að útsvars- tekjur gefi nokkuð raunhæfa mynd af efnahagsástandi þjóðarinnar. „Jú, við getum sagt að hjól at- vinnulífsins snúist hraðar um þess- ar mundir, aukin atvinnuþátttaka sýnir það líka svart á hvítu. Þá hefur kaupmáttur almennings auk- ist á árinu, sem hefur líka áhrif á þessar tölur. Ekki allt í vasann Nei, þessar auknu tekjur renna ekki til að bæta afkomu sveitarfé- laganna, síður en svo,“ segir Gunn- laugur Júlíusson. „Auðvitað er þetta almennt jákvæð þróun, en við megum ekki gleyma því að það eru tvær hliðar á peningnum. Út- gjöld sveitarfélaganna hafa vaxið á árinu og þau sjá fram á að verja hærri fjárhæðum til fræðslumála vegna aukins launakostnaðar, svo eitthvað sé nefnt. Þeir samningar eru reyndar ekki endanlega frá- gengnir, það á eftir að útfæra end- anlega gerð kjarasamninga í skóla- kerfinu, sem verður væntanlega verkefni næsta árs. Hins vegar hefur fjárhagsstaða flestra sveitar- félaga batnað nokkuð á undan- förnum árum, veltufé frá rekstri hefur verið að styrkjast ár frá ári. Sveitarstjórnarfólk sem ég hef rætt við segir að þetta ár verði lík- lega í þokkalegu jafnvægi. Hins vegar sé útlit fyrir að næsta ár verði þyngra í rekstri. Það er með öðrum orðum ekki nóg að auka tekjurnar, ef útgjöldin hækka á sama tíma. Sveitarfélögin hafa al- mennt verið að greiða niður skuld- ir á undanförnum árum og styrkja reksturinn, sem er jákvætt,“ segir Gunnlaugur. Samkvæmt nýjum þjóðhags- reikningi er áætlað að skatttekjur og tryggingagjöld skili ríkissjóði, almannatryggingum og sveitar- félögum samtals 188 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs, en á sama tímabili í fyrra voru tekjurnar 177 milljarðar. Áætlanir benda til þess að heildarútgjöld hins opinbera hafi aukist um 5% milli ára. Stærstu útgjaldaliðirnir eru laun, kaup á vöru og þjónustu, félagslegar tilfærslur til heimila og vaxtagjöld, segir í skýringum með þjóðhagsreikningi, sem kynntur var í vikunni. ASÍ sér fram á fjölgun starfa Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, segir að tölulegar staðreyndir um stað- greiðslutekjur sveitarfélaga komi ekki á óvart. „Starfandi fólki hefur fjölgað um liðlega þrjú þúsund á árinu, sem þýðir að skatttekjur hins opinbera aukast. Okkar hags- pár gera ráð fyrir að störfum fjölgi enn á næsta ári, aðallega í tengslum við mannvirkjagerð, auk þess sem fjölgun ferðamanna kem- ur fram í fjölgun starfa í verslun, gisti- og veitingaþjónustu. Þetta þýðir að launatekjur aukast og þar með tekjur sveitarfélaganna,“ seg- ir Róbert Farestveit. Í nýrri hagspá ASÍ fyrir árin 2014 til 2016 er ekki gert ráð fyrir að atvinnuleysi breytist mikið á næstu árum. „Staðan á vinnumark- aði hefur farið batnandi undanfarið og spáir ASÍ því að atvinnuleysi verði 3,7% á þessu ári og svo 3,5% að jafnaði út spátímann,“ segir í hagspá ASÍ. Greidd staðgreiðsla til sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs 2010 2011 2012 2013 2014 01 Janúar 02 Febrúar 03 Mars 04 Apríl 05 Maí 06 Júní 07 Júlí 08 Ágúst 09 September 10 Október 11 Nóvember 12 Desember Samtals 9.263.553.804 8.075.223.548 8.522.868.950 7.964.152.151 8.486.887.543 8.332.215.004 8.826.036.208 8.645.398.744 9.521.482.163 9.152.855.498 8.652.261.569 9.151.988.445 104.594.923.627 9.082.678.201 9.297.162.782 8.638.062.082 10.096.275.803 9.612.894.385 10.925.731.267 11.870.290.740 10.754.233.926 10.669.011.776 10.719.262.121 10.573.349.768 11.156.481.349 123.395.434.200 10.921.209.568 9.825.798.123 11.049.377.116 11.027.052.014 11.000.660.853 11.356.954.075 11.255.068.260 11.526.755.956 11.607.923.846 11.098.212.506 11.236.610.626 12.135.393.785 134.041.016.728 11.175.476.214 11.072.119.523 11.415.596.332 10.932.219.357 11.770.746.328 12.280.805.495 11.533.496.653 12.221.893.263 12.243.384.315 12.280.065.789 11.937.434.619 13.048.094.707 141.911.332.595 11.915.748.862 11.353.979.283 12.007.365.909 12.627.598.509 12.312.614.485 13.197.560.216 12.762.266.025 12.811.141.599 13.194.477.956 13.252.953.679 12.695.539.467 138.131.245.990 „Ég er einmitt með fjárhagsáætl- unina fyrir næsta ár á skrifborðinu og í henni er gert ráð fyrir að út- svarstekjurnar verði 416 milljónir. Á þessu ári stefnir í að þær verði 387 milljónir en í fyrra voru út- svarstekjurnar 359 milljónir, þann- ig að aukningin er veruleg,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð. „Hérna hefur íbúum fjölgað og uppbygging atvinnulífsins hefur þessi áhrif. Laun hækkuðu líka í kjölfar nýrra kjarasamninga, sem þýðir að útsvarstekjurnar aukast. Á móti höfum við náð að greiða niður skuldir, en á næsta ári munu þær hækka á nýjan leik tímabundið, þar sem sveitarfélagið ætlar að ráðast í ýmsar framkvæmdir sem eru nauð- synlegar. Í fjárhagsáætlun næsta árs verður varið 215 milljónum króna til nýframkvæmda, sem verða þær umfangsmestu í mörg ár. Þetta þýðir að skuldirnar hækka um 100 milljónir króna til þess að hægt verði að fjár- magna nýfjár- festinguna. Á móti verður reynt að selja eignir, með það að markmiði að greiða niður skuldir. Rekst- urinn er kostnaðarsamur, sveitar- félagið er til dæmis með þrjá skóla og þrjár hafnir. Okkar markmið er að veita góða þjónustu, þannig að auknar tekjur koma sér að sjálf- sögðu vel. Fasteignamatið hérna í Vesturbyggð hefur hækkað mikið og við ætlum okkur að lækka álagn- ingarprósentu fasteignagjalda og leikskólagjöldin verða ekki hækk- uð, þrátt fyrir að flestir kostn- aðarliðir hafi hækkað,“ segir Ást- hildur. Uppgangur er í Vesturbyggð Ásthildur Sturludóttir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Patreksfjörður Þróttmikil útgerð hefur verið mikilvæg fyrir bæjarfélagið. „Nánast allt atvinnulíf Vest- mannaeyja tengist með einum eða öðrum hætti sjávarútvegi. Útgerð- um hérna í Eyjum hefur fækkað og þar með störfum í greininni. Þess vegna gerum við ráð fyrir lægri útsvarstekjum bæjarsjóðs á næsta ári en þær verða í ár. Okkar áætl- anir gera ráð fyrir að tekjurnar verði á næsta ári 1,7 milljarðar, en í ár verða þær líklega um 1,9 millj- arðar. Við þetta bætist að útsvars- tekjur þessa árs verða ekki í sam- ræmi við áætlanir. Eins og staðan er í dag vantar um 400 milljónir króna og að mínu viti er vandséð að sú fjárhæð skili sér í kassann á þess- um fáu dögum sem eftir eru af árinu,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Hann segir að óvissa ríki auk þess vegna dómsmála sem tengjast sjávarútvegsfyrirtækinu Bergi- Hugin. „Ef það fyrirtæki verður flutt á brott skerðast beinar tekjur sveitarsjóðs líklega um 120 til 140 milljónir króna á ári. Það eru því blikur á lofti hvað varðar tekj- urnar.“ Elliði segir ekki hægt að reikna með sterkri stöðu sjávarútvegsins endalaust. „Við sem búum í sjávarbyggðum þurfum einfaldlega að búa við þess- ar sveiflur og gera ráð fyrir þeim í áætlunum. Það höfum við gert, enda skuldar sveitarfélagið ekki mikið.“ Elliði segir að ný skýrsla Haf- rannsóknastofnunar um ástand helstu nytjastofna við Ísland lofi góðu fyrir sjávarbyggðir landsins. „Við erum mjög háð uppsjávar- veiðum og vinnslu. Loðnan hefur ekki gefið sig að ráði undanfarin ár, en við kvíðum alls ekki framtíðinni, þrátt fyrir að útlit sé fyrir að tekj- urnar dragist saman á þessu ári og því næsta. Við erum vel í stakk búin til að veita áfram góða þjónustu.“ Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum Elliði Vignisson Samdráttur vegna fækkunar útgerða Morgunblaðið/Árni Sæberg Vestmannaeyjar Nánast allt atvinnulíf Eyja tengist sjávarútvegi. YOUR TIME IS NOW. MAKE A STATEMENT WITH EVERY SECOND. Pontos Day/Date Sígild en engu að síður nútímaleg hönnun sem sýnir það allra nauðsynlegasta. Áreiðanlegt sjálfvindu úrverk sem sýnir vikudaga og dagsetningu. Einfalt og stílhreint úr sem sendir skýr skilaboð. jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 6 1 Kringlan Smáralind
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.