Morgunblaðið - 11.12.2014, Qupperneq 66
66 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
„Gangur hvaða efnahagskerfis
hvers hinna 18 landa evrusvæðisins
verður hvað veikastur árið 2015?
Verður það á Ítalíu þar sem enginn
hagvöxtur hefur orðið frá 1999?
Verður það á Kýpur, sem enn er að
glíma við afleiðingar bankahrunsins
2012-13? Eða mun þetta eiga við um
eitthvert annað suðurevrópkst ríki?
Nei. Að öllum líkindum verður
„hinn sjúki maður evrusvæðisins“
Finnland.“
Þannig hljóma upphafsorð um-
fjöllunar breska fjármálablaðsins
Financial Times um ástandið í Finn-
landi. Þriðja árið í röð á sér stað
samdráttur í finnska hagkerfinu og
allt bendir til að hagvöxtur verði í
besta falli torsóttur á næsta ári;
hann verður tæpast sjáanlegur.
Þingkosningar verða í Finnlandi í
apríl næstkomandi og spurningin er
hvort hinar myrku efnahagshorfur
munu nýtast flokknum sem nefnist
Finnar. Þetta er flokkur þjóðern-
issinna sem hét Sannir Finnar er
hann skelfdi mörg Evrópuríki með
því að hljóta 19% atkvæða í kosn-
ingunum 2011. Við það varð hann
þriðji stærsti flokkur Finnlands.
Finnland þykir vera sláandi dæmi
um það hvernig hleypidómar og of-
ureinföldun getur valdið því að
mönnum yfirsjáist hinn flókni veru-
leiki evrusvæðisins. Eftir að skulda-
kreppa Grikklands gaus upp 2009
skiptu spekingarnir svæðinu í
tvennt. Annars vegar nyrðri blokk
lánveitandi ríkja þar sem efnahags-
leg skilvirkni var fyrir hendi og fjár-
málaleg stefnufesta. Hins vegar
syðri blokk ríkja á klafa skulda,
veiks efnahagskerfis og óráðsíu í
ríkisfjármálum.
Finnland er eins norðarlega og
komist verður, bæði í landfræðilegu
og menningarlegu tilliti. Gengu
Finnar jafnvel lengra en Þjóðverjar
í kröfum um stranga fyrirvara á
þátttöku Evrópusambandsríkjanna
(ESB) í fjárhagslegri björgun
Grikklands í samstarfi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn (IMF). Á sama
tíma stefndi efnahagslíf Finna í
vandræði. Samdráttur er í fram-
leiðslustarfsemi, svartsýni gætir
meðal stjórnenda fyrirtækja og –
það sem alla hryllir við – opinberar
skuldir fara vaxandi.
Gullöld sem hvarf
Í ágúst síðastliðnum líkti for-
sætisráðherrann Alexander Stubb
ástandinu í Finnlandi við hinn týnda
áratug Japana undir lok nýliðinnar
aldar. Þegar svo greiningarfyrir-
tækið Standard & Poor’s svipti
Finna lánshæfiseinkunninni AAA í
október sagði Stubb, að „gullald-
artímarnir“ frá 2000 til 2008 væru
horfnir og við þjóðinni blasti að
byggja nýtt Finnland, eins og segir
í Financial Times.
Sumar orsakir vandræða Finna
blasa við. Ein þeirra er fall Nokia
sem lagði til um fjórðung finnsks
hagvaxtar á árunum 1998 til 2007.
Önnur er hrun í pappírsframleiðslu.
Alls mun störfum í framleiðslu-
starfsemi í Finnlandi fækka um
76.000 á sex ára tímabili fram til
ársins 2012, sem er há tala fyrir að-
eins 5,4 milljóna manna þjóð.
Þriðja orsökin er vaxandi efna-
hagslegur veikleiki Rússlands sem
verðlækkun á olíu hefur kynt undir
og endurspeglast í gengishruni
rúblunnar. Rússland er helsta við-
skiptaríki Finna sem gjalda fyrir
framferði Rússa í Úkraínu en þeir
eru bundnir af refsiaðgerðum sem
ESB hefur gripið til vegna þess.
Samkvæmt útreikningum finnska
seðlabankans leiðir 25% samdráttur
í innflutningi Rússa frá Finnlandi til
0,9 prósentustiga lækkunar hag-
vaxtar í Finnlandi.
Opinbera kerfið kostar sitt
Fleira kemur til, að sögn Fin-
ancial Times, sem segir ímynd
Finnlands sem skilvirks og skarps,
skapandi og samkeppnisfærs hag-
kerfis vera villandi. Opinber útgjöld
séu meðal þeirra mestu í heimi en
árið 2013 námu þau 57,8% af vergri
landsframleiðslu, að sögn Eurostat,
hagstofu ESB. Í einkageiranum hafi
fyrirtæki sem áttu blússandi vel-
gengni að fagna fyrir nokkrum ár-
um átt erfitt með að standast sam-
keppni og neyðst til að segja upp
starfsfólki. Dæmi um það væri fyr-
irtækið Rovio Entertainment, fram-
leiðandi Angry Birds-farsímaleiks-
ins.
Allt þykir benda til þess að ríkis-
stjórn Stubbs bíði ósigur í komandi
þingkosningum. Ólíkt 2011 hafa
óvinsældir hennar ekki gagnast
flokknum Finnum nú. Í skoð-
anakönnun frá 21. nóvember mæld-
ist flokkurinn í fjórða sæti með
16,2% fylgi. Var hann langt á eftir
Miðflokknum, einum gömlu finnsku
flokkanna, sem er í stjórnarand-
stöðu, sem mældist með 24,5% fylgi.
Ólíkt því sem hefur gerst í Grikk-
landi, Spáni og jafnvel í Frakklandi
hafa helstu stjórnmálaforingjar í
Finnlandi látið ógert að spila á
óánægju fólks og beita lýðskrumi til
að afla sér fylgis. Það segir FT gefa
vonir um að eftir kosningar verði
grunnur lagður að nýrri gullöld í
finnsku efnahagslífi. Sem byggist á
orðlögðum sköpunargáfum og
ískaldri færni.
„Norræna módelið“ á undir
högg að sækja
Norðurlönd hafa lengi skarað
fram úr. Til dæmis hafa þau skorað
hæst í könnunum á lífshamingju
þjóða, samkeppnisfærni, kvenfrelsi
og þar hefur jafnvel þótt best að
fæðast. Dáðst hefur verið að hinu
„norræna módeli“ fyrir viðvarandi
öflugt velferðarkerfi og samkeppn-
isfært efnahagslíf, meira að segja
gegnum efnahagskreppuna. Nú
virðast hins vegar vera að koma
sprungur í módelið og áhyggjur
stjórnmálamanna og atvinnulífsins
um sjálfbærni þess fara vaxandi.
Bent hefur verið á vanda sem fylgir
vaxandi fólksflutningum til þessara
landa, jafnræði fari þverrandi og
hagvöxtur sé lítill eða enginn, svo
sem í Finnlandi og Danmörku. Kall-
að hefur verið eftir lækningu en
fjármálakreppan þykir hafa opnað
augu manna fyrir veikleikum nor-
ræna módelsins.
Þannig segir Lars Fäste, fram-
kvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins
Boston Consulting Group á Norð-
urlöndum, að umbreytinga sé þörf.
„Væru Norðurlönd fyrirtæki þyrfti
það að gangast undir umbreytingar.
Og væru Danmörk og Finnland fyr-
irtæki þyrfti kúvending að eiga sér
stað í rekstri þeirra.“
Frostið herðir í finnska hagkerfinu
AFP
Erfiðleikar framundan Alexander Stubb, forsætisráðherra Finnlands, segir að við þjóðinni blasi að byggja upp nýtt
Finnland. Útlit er fyrir að ríkisstjórnin bíði ósigur í þingkosningum, sem fara fram snemma á næsta ári.
Gullaldartímarnir í byrjun aldarinnar
eru horfnir Samdráttur þrjú ár í röð
Finnska tæknifyrirtækið Nokia,
sem um tíma var stærsti farsíma-
framleiðandi heims, seldi banda-
ríska tæknifyrirtækinu Microsoft
farsímaframleiðsluna fyrr á þessu
ári. Nokia leggur nú megináherslu
á fjarskiptanet og þjónustu við
þau en um miðjan nóvember til-
kynnti fyrirtækið óvænt að það
ætlaði að framleiða nýja spjald-
tölvu sem ætluð er fyrir kínversk-
an markað.
Tölvan, sem nefnist N1, verður
framleidd hjá tæknifyrirtækinu
Foxconn í Taívan, en það fyrirtæki
er jafnframt helsti framleiðandi
íhluta fyrir bandaríska tæknifyr-
irtækið Apple. Miðað er við að
tölvan komi á markað í Kína í vor
og hugsanlega verði hún einnig
seld víðar. Tölvan mun keyra á
Android-stýrikerfinu en ekki á
Windows Phone 8-stýrikerfinu
eins og Lumia 2520-spjaldtölvan,
sem Nokia reyndi að selja á banda-
rískum markaði í fyrra með litlum
árangri.
Nokia, sem var stofnað árið
1871, var í upphafi 21. aldarinnar
stærsti farsímaframleiðandi
heims en lenti undir í snjallsíma-
kapphlaupinu sem hófst eftir að
Apple hóf að selja iPhone árið
2007. gummi@mbl.is
Á spjaldtölvumarkað í Kína
NOKIA
Ný spjaldtölva N1-spjaldtölvan, sem
Nokia ætlar að selja í Kína.
Uppskriftina í heild sinni ásamt eldunaraðferð
er að finna á www.holta.is/uppskriftir.
Rauðvínssoðinn, reyktur kjúklingur
með skallottulauk og sveppum.