Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 73

Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 73
73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 Frostið herðir Björn Rúnar Lúðvíksson, læknir og prófessor í ónæmisfræði, kórónar hressandi sjósund í Nauthólsvík með því að skokka sér til heilsubótar á ströndinni í norðangarranum. RAX Þegar stjórnvöld telja nauðsynlegt að gera sér- staka ívilnunarsamninga við fyrirtæki er það ekki merki um jákvætt viðhorf til uppbyggingar eða skyn- samlega langtímastefnu í atvinnumálum. Íviln- unarsamningar, hvort heldur er um skattamál eða aðra þætti sem marka um- gjörð atvinnulífsins, eru birtingarmynd úreltrar hugmyndafræði fyrirgreiðslu og forréttinda sem eru óskil- getin afkvæmi klíkukapítalismans. Árið 2008 var tekjuskattur fyrirtækja 15% en vinstristjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna hækkaði skattinn strax í 18% árið 2009. Ekki þótti það nægilega mikil hækkun því árið 2010 var skatturinn hækkaður í 20%. Þetta var í takt við aðrar umfangsmiklar skattahækkanir jafnt á at- vinnulífið sem á óbreytta launamenn. Undir lok maí 2013 tók ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks við völdum. Í september 2014 undirrituðu stjórnvöld ívilnunarsamning við fyrirtæki sem hyggst reisa verksmiðju til að fram- leiða sólarkísil. Í tíu ár mun fyrirtækið njóta skattalegra sérréttinda. Tekjuskatt- ur verður 15% (það sama og hann var fyr- ir fall fjármálakerfisins), veittur verður 50% afsláttur af tryggingagjöldum og 50% afsláttur af fasteignasköttum. Fleiri samkynja forréttindasamningar hafa ver- ið gerðir á undanförnum árum og ekki skal efast um góðan vilja sem að baki þeim liggur; að örva fjárfestingu og atvinnu- sköpun. Merki um sjúkt ástand Með því að undirrita skattalega íviln- unarsamninga eru stjórnvöld í raun að viðurkenna að sú umgjörð sem íslenskt skattkerfi sníður atvinnulífinu sé óhag- stætt. Kerfið örvi ekki frumkvæði ein- staklinganna og hamli fjárfestingum og dragi þar með þróttinn úr efnahagslífinu almennt. Forréttindasamningar væru óþarfir ef skattaleg umgjörð og annað regluverk væri hagfellt og með jákvæðum hvötum til efnahagslegra framkvæmda. Ívilnunarsamningar við útvalin fyr- irtæki eru því merki um sjúkt ástand. Fyrir utan óréttlætið sem er innbyggt í forréttindasamn- inga opinberra aðila við fá- eina útvalda er sú hætta fyrir hendi að stjórnmálamenn komi sér undan því að skera upp kerfi sem þeir telja þó sjálfir nauðsynlegt að gera göt á til að ný fyrirtæki taki til starfa. Hugmyndafræðinni sem liggur að baki ívilnunarsamn- ingum – forréttindum – er hægt að lýsa ágætlega með því að fara í smiðju Ronalds Reagans, fyrrverandi forseta Bandaríkj- anna, sem sagði: „Ef það hreyfist, skattleggðu það. Ef það heldur áfram að hreyfast, settu lög. Ef það stoppar, settu það á ríkisstyrk.“ Á Íslandi starfa þúsundir lítilla og með- alstórra fyrirtækja. Á hverjum einasta degi velta eigendur þessara fyrirtækja fyrir sér hvort og þá hvernig skynsamlegt kunni að vera að ráðast í fjárfestingar; í nýjum tækjum, nýjum tölvum og öðrum búnaði, í húsnæði og ekki síst að ráða nýja starfsmenn. Ekkert þessara fyrirtækja nýtur forréttinda. Öll þurfa þau að sætta sig það skattalega umhverfi sem vinstri- stjórn Jóhönnu og Steingríms bjó til. Mörg þeirra eru enn að berjast í ójafnri samkeppni við fyrirtækjasamsteypur sem lögðu undir sig markaðinn. Litli atvinnu- rekandinn sem áður glímdi við stórfyr- irtæki, sem virtust hafa ótakmarkaðan að- gang að láns- og áhættufé, glímir við sömu aðila, sem hafa fengið milljarða afskrifaða og nýtt áhættufé. Ágæt forskrift Ef einhverjir eiga rétt á skattalegum ívilnunarsamningum eru það sjálfstæðir atvinnurekendur sem hafa byggt upp glæsileg fyrirtæki, staðið við sínar skuld- bindingar og veita tugum þúsunda at- vinnu. Það eru litlu og meðalstóru fyr- irtækin sem eru burðarásar í íslensku efnahagslífi. Þess vegna er það eitt helsta verkefni ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að skera upp skatt- kerfið, lækka tekjuskatta á fyrirtæki og launafólk, lækka tryggingagjald, tolla og óbeina skatta samhliða því að einfalda allt regluverk. Fyrstu skrefin hafa verið tekin en það þarf að ganga rösklegar fram. Ívilnunarsamningar eiga að tilheyra fortíðinni, líkt og áætlunarbúskapur og forræðishyggja teknókrata sem telja að hægt sé að skipuleggja efnahagslífið og umsvif atvinnulífsins á teikniborðum stjórnarráðsins. En hitt er svo annað að sérréttindasamningurinn sem undirrit- aður var í september síðastliðnum er ágæt forskrift að þeim breytingum sem á að gera á skattaumhverfi atvinnulífsins: 15% tekjuskattur og 50% lækkun trygginga- gjalds. Á kostnað fjöldans Þannig getur ríkisstjórnin rutt brautina til aukinnar hagsældar með almennum að- gerðum. Snjöllum og útsjónarsömum ein- staklingum verður gert kleift að njóta ávaxtanna án sérréttinda sem aðrir greiða fyrir beint eða óbeint. Í stað klíkukapítal- isma – sem sameinar allt hið versta úr áætlunarbúskap sósíalismans og markaðs- hyggju kapítalismans – verður til lifandi og heilbrigt atvinnulíf undir aga sam- keppni og einfalds gagnsæs reglu- og skattaverks. Markaðurinn verður dómarinn þar sem allir eru jafnir fyrir lögum og reglum. Eng- um er tryggð velgengni en allir hafa mögu- leika á að leita hennar á grunni hæfileika og útsjónarsemi. Hægrimenn hafa lengi haldið því fram að þeir vilji móta þjóðfélag þar sem hin sanna dyggð mannanna er hæfileikinn til þess að geta lifað saman sem jafningjar, þannig að hver einstaklingur krefst eigi annars fyrir sjálfan sig en þess, sem hann veitir öðrum af frjálsum vilja, svo vitnað sé í John Stuart Mill. Skattkerfi og allt regluverk hins op- inbera yrði heilbrigðara og réttlátara ef unnið yrði eftir þessari forskrift. Við Ís- lendingar eigum a.m.k. að vita af biturri reynslu að sérréttindi fárra eru alltaf á kostnað fjöldans. Eftir Óla Björn Kárason »Ef einhverjir eiga rétt á ívilnunarsamningum eru það sjálfstæðir atvinnu- rekendur sem hafa byggt upp fyrirtæki og staðið við sínar skuldbindingar. Óli Björn Kárason Úrelt hugmyndafræði forréttinda og fyrirgreiðslu Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Guðlaugur Þór Þórðarson al- þingismaður hefur að undanförnu sett fram hæpnar fullyrðingar um fjármál Ríkisútvarpsins. Hef- ur hann m.a. borið brigður á þá kunnu staðreynd, sem greint var frá í fréttatíma Ríkisútvarpsins, að Alþingi hefur jafnan ákveðið í fjárlögum að Ríkisútvarpið fái ekki útvarpsgjaldið óskert. Taldi fréttastofa Ríkisútvarpsins óhjá- kvæmilegt að árétta frétt sína um útvarpsgjaldið af þessu til- efni. Guðlaugur telur sig greini- lega hafa fengið hirtingu sem undan svíður og krefst nú afsök- unar frá Ríkisútvarpinu. Vandinn er hins vegar sá að á und- anförnum vikum hefur Guðlaugur ítrekað farið með staðlausa stafi um fjármál Ríkisútvarpsins og beitt fyrir sig útúrsnúningum sem hvergi snerta kjarna málsins. Hann verður að sætta sig við að á það sé bent. Talnaleikfimi sú sem Guðlaugur hefur borið á borð felst í því að vísa hálfan áratug, og lengra, aft- ur í tímann til þess að finna rök- stuðning fyrir máli sínu. Guð- laugur burðast við að reikna út hver fjárframlög Ríkisútvarpsins voru fyrir árið 2009, með mistækum árangri, eins og það hafi nokkra einustu þýð- ingu fyrir umræðu um þá stöðu sem nú er uppi. Á meðan eru staðreyndirnar sem máli skipta nærtækar og skýrar; á síðastliðnum fimm árum hefur um 1.650 milljónum af inn- heimtu útvarpsgjaldi verið ráðstafað til annarra verkefna hins opinbera. Einkennilegast er þó að Guðlaugur bregst ekki við áréttingu Ríkisútvarpsins með því að draga fram stað- reyndir málsins, t.d. með því að leggja fram upplýsingar úr fjárlögum undangenginna ára. Þess í stað kveður hann Steingrím J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðaherra, til vitnis í málinu, þar sem Steingrímur mun einhvern tímann hafa sagt eitthvað svipað og hann sjálfur. Það virðist að mati þingmannsins vera fullnægjandi grundvöllur fyrir kröfu hans um afsökun. Hlýtur að teljast nokkurt nýnæmi að þingmaður Sjálf- stæðisflokksins leggi slíkt traust á yfirlýsingar og upplýs- ingar frá Steingrími J. Fram til þessa hefur traust milli þingmannanna tveggja ekki virst gagnkvæmt. Það skyldi þó ekki vera að Guðlaugur grípi þetta síðasta hálmstrá þegar rökþrot blasir við? Rökþrot þingmanns? Eftir Ingva Hrafn Óskarsson » Vandinn er sá að Guð- laugur hefur ítrekað farið með staðlausa stafi um fjármál Ríkisútvarpsins og beitt fyrir sig útúr- snúningum. Höfundur er lögmaður og formaður stjórnar Ríkisútvarpsins ohf. Ingvi Hrafn Óskarsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.