Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 76
76 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Fjármál hjúkrunarheimila
landsins hafa ekki farið hátt í um-
ræðunni undanfarið. Skýrsla Rík-
isendurskoðunar (nóv. 2014) þess
efnis að hallarekstur þeirra árið
2013 hafi numið rúmlega einum
milljarði, eða 4,66% af rekstr-
artekjum, vakti furðulitla athygli.
Þá virðast sveitarstjórnarmenn
vera sáttir og sælir með þá stað-
reynd að sveitarfélögin lögðu sín-
um hjúkrunarheimilum til tæpan
milljarð árið 2013 vegna ónógra
fjárframlaga ríkisins. Furðuleg af-
staða svo ekki sé meira sagt.
Við gerð kjarasamninga sl. vor
sömdu aðildarfélög Samtaka fyr-
irtækja í velferðarþjónustu, SFV,
við viðkomandi stéttarfélög með
sambærilegum hætti og ríkið
gerði. Og við hjá SFV reiknuðum
með því og höfðum reyndar vilyrði
fyrir því að fá sambærilegar og
sanngjarnar launabætur þegar
koma skyldi að fjáraukalagagerð
ársins 2014 og að sérstaklega yrði
horft til skýrslu RES í þeim efn-
um. En þegar við eigum síðan
fundi með fulltrúum heilbrigðis-
og fjármálaráðuneytis vegna þess-
ara mála á síðustu vikum, þá kem-
ur í ljós að fjármálaráðuneytið
reiknar með því að launakostn-
aður heimilanna nemi 75% af dag-
gjaldatekjum þeirra, en í ofan-
greindri skýrslu kemur fram að
hann nemur 87,15%.
Enginn smá munur
og þegar launabætur
eru reiknaðar miðað
við réttar upplýs-
ingar, og nýrri geta
þær vart orðið, þá
munar rétt tæpum
90 milljónum króna
hversu lægri þær
eru en þær ættu í
raun að vera. Svör
fjármálaráðuneytis
við því af hverju 75%
eru notuð voru á þá
leið að hlutfallið hefði verið 75%
einhvern tíma. Fjármálaráðuneyt-
inu er (vonandi) fullkunnugt um
þessar hlutfallstölur úr
skýrslunni góðu en
virðist vísvitandi nota
75% hlutfallið þar sem
slíkt þýðir lægri fram-
lög til heimilanna í ár.
Og þar að auki „flyst“
þessi skekkja yfir í
daggjöld ársins 2015 ef
þannig mætti að orði
komast. Fleiri atriði
mætti tína til sem
leiða til þess að fjár-
framlög til hjúkr-
unarheimila eru með
ófullnægjandi hætti. Allt þetta
hefur leitt til þess að lausa-
fjárstaða allnokkurra hjúkrunar-
heimila er grafalvarleg og líkur á
greiðsluþroti einhverra þeirra á
næstunni hafa aukist verulega
vegna þessarar afstöðu ráðuneyt-
anna.
Helst dettur manni í hug að rík-
isvaldið ásælist fleiri Sunnuhlíðar
og aðferðin til þess er að knýja
fleiri hjúkrunarheimili í greiðslu-
þrot og taka síðan yfir starfsemi
þeirra. Öðruvísi mér áður brá.
Sérstaklega sé litið til þess að
ráðuneyti heilbrigðis- og fjármála
heyra undir stjórnmálaflokk sem
hingað til hefur ekki verið þekktur
fyrir áhuga á ríkisvæðingu einka-
fyrirtækja.
Ríkið ásælist fleiri Sunnuhlíðar
Eftir Gísla Pál
Pálsson »Helst dettur manni í
hug að ríkisvaldið
ásælist fleiri Sunnuhlíð-
ar og aðferðin til þess er
að knýja fleiri hjúkr-
unarheimili í greiðslu-
þrot og taka síðan yfir
starfsemi þeirra.
Gísli Páll Pálsson
Höfundur er formaður Samtaka fyr-
irtækja í velferðarþjónustu.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir ör-
yggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift